Fréttablaðið - 17.01.2008, Blaðsíða 70
54 17. janúar 2008 FIMMTUDAGUR
HANDBOLTI Íslenska hand-
boltalandsliðið hefur leik á Evr-
ópumótinu í Noregi í kvöld gegn
Svíum. Strákarnir okkar vonast
til þess að gengið verði eitthvað í
líkingu við þegar íslenska liðið
sló það sænska út úr undankeppni
HM 2007 fremur en gengið á stór-
mótunum þar sem Svíar hafa
unnið átta síðustu viðureignir
þjóðanna.
Svíar hafa unnið fimm af þess-
um leikjum með fimm mörkum
eða meira og stærsti sigurinn var
einmitt þegar þjóðirnar mættust
síðast í undanúrslitaleik Evrópu-
mótsins í Svíþjóð 2002.
Ingólfur var leynivopnið
Það eru liðin 44 ár síðan íslenska
handboltalandsliðið vann síðast
Svíþjóð á stórmóti og sá sigur var
jafnframt einn sá óvæntasti og
glæsilegasti í sögu íslenska lands-
liðsins. Ísland vann 12-10 sigur á
Svíum sem höfðu unnið bronsið á
HM 1961 og áttu síðan eftir að
fara alla leið í úrslitaleikinn í
þeirri heimsmeistarakeppni sem
fram fór í Tékkóslóvakíu.
Þetta var annar leikur íslenska
liðsins á mótinu en daginn áður
hafði Ísland unnið Egyptaland 16-
8. Ingólfur Óskarsson var leyni-
vopnið í leiknum en hann skoraði
5 af 12 mörkum íslenska liðsins
eftir að hafa verið hvíldur í leikn-
um gegn Egyptum. Þá má ekki
gleyma framlagi Hjalta Einars-
sonar í íslenska markinu sem átti
stórleik. Það er örugglega í fyrsta
og eina skiptið sem Ísland átti
langbesta markvörðinn á vellin-
um í landsleik gegn Svíum.
Mats Olsson alltaf erfiður
Sænsku markverðirnir hafa oft
reynst okkur erfiðir. Mats Olsson
fór ávallt mikinn í landsleikjum
gegn Íslandi og hann var sem
dæmi maður leiksins í 27-23 sigri
Svía á HM í Sviss 1986 og varði
um 65 prósent skota í 20-14 sigri
Svía á Íslendingum á Ólympíu-
leikunum í Seúl 1988.
Eftirmenn hans eins og Tomas
Svensson og Peter Gentzel hafa
einnig reynst erfiðir og það er
enn í fersku minni þegar Genzel
varði 14 skot (3 víti) í seinni hálf-
leik í undanúrslitaleik Íslands og
Svíþjóðar á EM í Svíþjóð 2002.
Staðan var 14-12 fyrir Svía þegar
Gentzel kom í markið en Svíar
unnu seinni hálfleikinn 19-10 og
þar með leikinn með ellefu marka
mun.
Byrjað gegn Svíum í fjórða sinn
Þetta verður í fjórða skiptið sem
íslenska landsliðið hefur stórmót
með því að mæta Svíum en það
gerðist einnig á HM 1993 í Sví-
þjóð, á EM 2000 í Króatíu og á
HM 2001 í Frakklandi.
Síðasti leikurinn af þessum var
annað minnsta tap íslenska liðs-
ins fyrir Svíum frá 1964 en þeir
sænsku unnu leikinn með þremur
mörkum, 24-21. Átta árum fyrr
mættu íslensku strákarnir kok-
hraustir í fyrsta leik á móti Svíum
á þeirra eigin heimavelli. Íslenska
liðið var vel inni í leiknum fram-
an af, í hálfleik var jafnt 9-9 og
staðan var 15-15 þegar Svíar lok-
uðu vörninni (og Mats Olsson
markinu) og á meðan íslenska
liðið skoraði ekki í tólf mínútur
komust Svíar í 21-15 og unnu loks
21-16.
Sigur Íslands á Svíþjóð í umspil-
sleikjunum fyrir HM 2007 hefur
vonandi markað tímamót og enda-
lok Svíagrýlunnar en það stað-
festist þó ekki fyrr en með leikn-
um í kvöld. Nú gæti nefnilega
verið komið að stundinni þar sem
Ísland losnar endanlega undan
tökum Svíanna.
ooj@frettabladid.is
Ekki unnið Svía á stórmóti í 44 ár
Íslenska landsliðið mætir Svíum í fyrsta leik sínum á EM í Noregi í kvöld. Íslendingar hafa tapað átta stór-
móts leikjum í röð á móti Svíum og unnu þá síðast á stórmóti í HM í Tékkóslóvakíu árið 1964.
STÓR STUND Hornamennirnir Alexander Petersson og Guðjón Valur Sigurðsson fagna
því að hafa slegið Svía út úr undankeppni HM í Þýskalandi 2007. Þetta var síðasti
leikur Ísleninga við Svía fyrir leikinn í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
ÍÞRÓTTIR Það verður ein allsherjar
íþróttaveisla í Laugardalnum um
helgina þegar níu íþróttafélög,
undir forystu Íþróttabandalags
Reykjavíkur og með stuðningi
Reykjavíkurborgar, munu standa
að alþjóðlegu íþróttamóti í
Laugar dalnum.
Síðustu ár hafa sundfélagið
Ægir og frjálsíþróttadeild ÍR
staðið að alþjóðlegu mótahaldi í
janúar og þau mót verða stærstu
mót helgarinnar en einnig er
keppt í sjö öðrum greinum: dansi,
badminton, júdó, hópfimleikjum,
skylmingum, listhlaupi á skaut-
um og íshokkí.
Landsmönnum verður því
boðið upp á fjölbreytta íþrótta-
veislu þar sem yfir 2.000 kepp-
endur munu taka þátt.
Stefnt er að því að innan fimm
ára verði allt mótahaldið með
alþjóðlegum hætti þar sem
íþróttamenn geta unnið sig inn á
stórmót eins og ólympíuleika og
heimsmeistaramót. Á sundmóti
Ægis í ár munu sem dæmi þrjár
af bestu sundkonum landsins
keppast við að ná lágmörkum inn
á Ólympíuleikana í Peking sem
fara fram næsta haust.
Margar af þessum greinum
eiga það sameiginlegt að hafa
fengið minni athygli undanfarin
ár, en Íþróttabandalag Reykja-
víkur ætlar nú að sjá til þess að
þessar íþróttagreinar hafi grund-
völl til þess að geta haldið sterkt
alþjóðlegt mót sem þau höfðu
ekki burði í að gera eitt og sér en
eiga að geta vaxið og dafnað
undir verndarvæng þessa alþjóð-
lega íþróttamóts. Það er von til
þess að keppt verði í fleiri
greinum á mótinu á næstu árum.
Mótið sem ber nafnið Reykja-
vík International 2008 verður
sett á sérstakri opnunarhátíð í
Laugardalslauginni á föstudag-
inn og lokahátíðin fer síðan fram
í Laugardalshöllinni á sunnu-
dagskvöldið.
- óój
Alþjóðlegt íþróttamót Íþróttabandalags Reykjavíkur með stuðningi Reykjavíkurborgar er komið til að vera:
Íþróttaveisla í Laugardalnum um helgina
VEL HEPPNAÐ Alþjóðaleikar ungmenna
tókust vel í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LANDSLEIKIR VIÐ SVÍA Á
STÓRMÓTUM
HM 1961 (milliriðill) Svíþjóð 18-10
HM 1964 (riðill) Ísland 12-10
ÓL 1984 (Um 5. sæti) Svíþjóð 26-24
HM 1986 (Milliriðill) Svíþjóð 27-23
ÓL 1988 (Riðill) Svíþjóð 20-14
ÓL 1992 (Riðill) Svíþjóð 25-18
HM 1993 (Riðill) Svíþjóð 21-16
EM 2000 (Riðill) Svíþjóð 31-23
HM 2001 (Riðill) Svíþjóð 24-21
EM 2002 (Undnaúrslit) Svíþjóð 33-22
Samtals
Leikir 10
Sigrar Ísland 1
Jafntefli 0
Sigrar Svía 9
Íslensk mörk í leik 18,3
Sænsk mörk í leik 23,5
KÖRFUBOLTI Fjölnir hafði ekki
heppnina með sér þegar dregið
var í gær í undanúrslitin í
Lýsingarbikar karla og kvenna.
Fjölnir er eina liðið sem á enn
bæði karla- og kvennalið eftir í
keppninni en bæði lið fengu
útileik, karlaliðið á móti Skalla-
grími í Borgarnesi en kvennaliðið
gegn Íslandsmeisturum Hauka á
Ásvöllum. Hinir leikirnir eru
milli Njarðvíkur og Snæfells í
karlaflokki og Grindavíkur og
Keflavíkur í kvennaflokki.
Undanúrslitin fara fram 2. og 3.
febrúar. - óój
Undanúrslit Lýsingarbikarsins:
Fjölnisliðin
fengu útileiki
Iceland Express-deild kvk:
Grindavík-Valur 76-68
Tiffany Roberson 23, Joanna Skiba 17, Petúnella
Skúladóttir 12 - Molly Peterman 27, Tinna Sig
mundsdóttir 15, Signý Hermannsd. 11.
Haukar-Fjölnir 72-57 (36-30)
Stig Hauka: Unnur Tara Jónsdóttir 23, Kiera
Hardy 17, Kristrún Sigurjónsdóttir 11, Telma
Björk Fjalarsdóttir 5, Ragna Margrét Brynjarsd.4,
Kristín Fjóla Reynisd. 4, Heiðrún Hödd Jónsdóttir
3, Guðbjörg Sverrisdóttir 2, Bryndís Hreinsdóttir
2, Bára Fanney Hálfdanardóttir 1.
Stig Fjölnis: Gréta María Grétarsdóttir 15, Birna
Eiríksdóttir 14, Slavica Dimovska 8, Efemia
Sigurbjörnsd. 8, Hrund Jóhannsd. 4, Eva María
Emilsd. 2, Erla Sif Kristinsd. 2, Edda Gunnarsdóttir
2, Bryndís Gunnlaugsdóttir 2.
FA-bikarinn á Englandi:
Man. City-West Ham 1-0
1-0 Elano (73.).
Newcastle-Stoke 4-1
1-0 Michael Owen (8.), 2-0 Claudio Cacapa (31.),
3-0 James Milner (68.), 4-0 Damien Duff (76.),
4-1 Liam Lawrence (89.).
Havant & Waterlooville-Swansea 4-2
Hereford-Tranmere 1-0
ÚRSLITIN Í GÆR
551 70 30
EM í kvöld:
ÍSLAND - SVÍÞJÓÐ
á stóru tjaldi.
Kaffiterían opin.
Öll réttindi.
Norræna húsið
www.nordice.is
FÓTBOLTI Kevin Keegan var í gær
ráðinn knattspyrnustjóri New-
castle í ensku úrvalsdeildinni en
hann náði góðum árangri með
félagið á árunum 1992-1997 og
var meðal annars nálægt því að
gera liðið að Englandsmeisturum
árið 1996 en varð að lúta í lægra
haldi gegn Manchester United.
Fyrsti leikur Newcastle undir
stjórn Keegans verður á laugar-
dag þegar Grétar Rafn Steinsson
og félagar í Bolton koma í
heimsókn á St. James‘s Park. - óþ
Enska úrvalsdeildin:
Keegan tekinn
við Newcastle
KOMINN AFTUR Keegan er afar vinsæll
í Newcastle eftir að hafa náð frábærum
árangri með liðið á árunum 1992-1997.
NORDIC PHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Einar Hólmgeirsson
tók þátt í æfingunni af fullum
krafti í gær og virðist vera klár í
slaginn. Hann var svo óheppinn
að meiðast illa fyrir HM í fyrra
og hann er því öðrum fremur
búinn að bíða sérstaklega spennt-
ur eftir þessu móti.
„Þetta er mjög gaman. Undir-
búningurinn hefur verið erfiður
en samt mjög skemmtilegur.
Langt síðan ég tók þátt í svona
undirbúningi en mér líður vel hér
í Noregi. Líst vel á Höllina og allt
í kringum þetta,“ sagði Einar sem
getur vart beðið eftir fyrsta leik
mótsins gegn Svíum í kvöld.
„Ég er algjörlega tilbúinn að
spila þó svo að ég sé ekki í eins
góðu leikformi og ég vildi vera.
Það var samt gott að spila á
Posten Cup hér í Noregi um dag-
inn og það hjálpaði mikið til. Það
er eitthvað að ef menn eru ekki
klárir í svona slag. Við erum að
fara að spila við Svía, Slóvaka og
Frakka. Þetta gerist ekki betra.
Þetta verður algjör veisla. Við
þurfum samt að ná okkar besta
leik til þess að vinna. Það er
ljóst,“ sagði Einar, sem stóð sig
mjög vel gegn Svíum í Globen í
byrjun júní árið 2006 þegar
Ísland vann frækinn sigur og
fóru leikar 32-28 fyrir Íslandi í
frábærum leik. - hbg
Einar Hólmgeirsson verður í eldlínunni í kvöld:
Þetta mót er veisla
SPENNTUR Einar Hólmgeirsson nýtur
sín vel í Noregi og getur ekki beðið eftir
fyrsta leiknum á EM. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HANDBOLTI Jaliesky Garcia Padron
er kominn aftur í herbúðir
íslenska liðsins og hann er allur
að koma til eftir veikindi.
„Það er alltaf gaman að vera
með þessu liði eftir nokkuð langa
fjarveru. Það er heiður fyrir mig
að spila með íslenska landsliðinu
og ég nýt mín alltaf vel,“ sagði
Garcia brosmildur en hvaða
væntingar hefur hann fyrir
mótið?
„Við erum með gott lið og ég
hef trú á því að við getum komist
í undanúrslit,“ sagði Garcia. - hbg
Jaliesky Garcia Padron:
Nýt mín mjög
BJARTSÝNN Jaliesky Garcia Padron telur
að íslenska landsliðið hafi alla burði til
þess að komast langt. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
FÓTBOLTI Newcastle, Manchester
City, Hereford og Havant &
Waterlooville komust í fjórðu
umferð FA bikarsins í gær.
Elano skoraði eina markið í leik
Manchester City og West Ham og
City mætir Sheffield United á
Bramall Lane í fjórðu umferð.
Michael Owen kom heima-
mönnum í Newcastle yfir gegn
Stoke í byrjun leiks og Claudio
Cacapa bætti öðru við með skalla
eftir hálftíma leik, en Emre hafði
þá fengið að líta rauða spjaldið
stuttu áður og Newcastle því
einum manni færri. James Milner
og Damien Duff bættu svo við
tveimur mörkum áður en Liam
Lawrence minnkaði muninn fyrir
Stoke. Newcastle mætir Arsenal á
Emirates-leikvanginum í fjórðu
umferð.
Utandeildarliðið Havant &
Waterlooville kom mörgum á
óvart með því að sigra Swansea 4-
2 og mætir því Liverpool á
Anfield í fjórðu umferð. - óþ
3. umferð FA bikarsins í gær:
Utandeildarlið
fer á Anfield
FÖGNUÐUR Leikmenn Havant & Water-
looville fögnuðu hressilega í gærkvöldi.
NORDIC PHOTOS/GETTY