Fréttablaðið - 25.01.2008, Síða 78
38 25. janúar 2008 FÖSTUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ!NÝTT Í BÍÓ! NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
14
16
16
10
7
14
10
14
7
CLOVERFIELD kl. 6 - 8 -10*
BRÚÐGUMINN kl. 6 - 8
ALIEN VS PREDATOR 2 kl. 10
*KRAFTSÝNING
14
7
16
10
7
16
12
16
THE DARJEELING LIMITED kl.6 - 8 - 10
BRÚÐGUMINN kl. 6 - 8.20 - 10.30
LUST CAUTION kl.6 - 9
ÍM NOT THERE kl.5.20ótextuð
THE MIST kl. 8 - 10.30
CLOVERFIELD kl. 4 - 6 - 8 -10
BRÚÐGUMINN kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
BRÚÐGUMINNLÚXUS kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
ALIEN VS PREDATOR 2 kl. 6 - 8 - 10.10
THE MIST kl. 5.30 - 10.30
THE GOLDEN COMPASS kl. 8
ALVIN & ÍKORNARNIR kl. 4 ÍSLENSKT TAL
DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 3.45
CHALIE WILSONS WAR kl. 5.45 - 8 - 10.15
THE DARJEELING LIMITED kl. 6 - 8 - 10
BRÚÐGUMINN kl. 5.50 - 8 - 10.10
PERSEPOLIS kl. 8 - 10
DUGGHOLUFÓLKIÐ kl. 6
5%
5%
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN
MEÐ KREDITKORTI TENGDU AUKAKRÓNUM!
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
EITTHVAÐ SKELFILEGT
ER Á SVEIMI!
STÆRSTA
JANÚAROPNUN
SÖGUNNAR
Í BANDARÍKJUNUM!
TILNEFND TIL
ÓSKARSVERÐLAUNA
BESTA TEIKNIMYNDIN
REYKJAVÍK AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS
ÁLFABAKKA KEFLAVÍK
KRINGLUNNI
AKUREYRI
SELFOSS
CHARLIE WILSON´S WAR kl. 3:40D -5:50D -8D -10:20D 12
CHARLIE WILSON´S WAR kl. 3:40 - 5:50 - 8 -10:20 VIP
THE GAME PLAN kl. 3:20 - 5:40 - 8 -10:20 L
NAT. TREASURE 2 kl. 5:30 - 8 - 10:30 12
DEATH AT A FUNERAL kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 7
I AM LEGEND kl. 8 14
TÖFRAPRINSESSAN M/- ÍSL TAL kl. 3:30 L
ENCHANTED M/- ENSK TAL kl. 5:50 L
AMERICAN GANGSTER Síðustu sýningar kl. 10:20 16
BÝFLUGUMYNDIN M/- ÍSL TAL kl. 3:30 L
CLOVERFIELD kl. 6 - 8 - 10 14
CHARLIE WILSON´S WAR kl. 8D - 10:20D 12
MICHAEL CLAYTON kl. 5:40 - 8 7
THE GAME PLAN kl. 3:40 - 5:50 L
NAT. TREASURE 2 kl. 10:30 12
TÖFRAPRINSESSAN M/- ÍSL TAL kl. 3:30 L
BÝFLUGUMYNDIN M/- ÍSL TAL kl. 4D L
BRÚÐGUMINN kl. 8 - 10 L
GAME PLAN kl. 5:45 L
SYDNEY WHITE kl. 8 L
THE NANNY DIARIES kl. 10 L
ALVIN OG ÍK... M/- ÍSL TAL kl. 6 L
BRÚÐGUMINN kl. 8 - 10:10 7
NANNY DIARIES kl. 8 L
RUN, FAT BOY, RUN kl. 10:10 L
CHARLIE WILSON´S WAR kl. 8 - 10 12
EATH AT A FUNERAL kl. 8 7
THE GAME PLAN kl. 6 L
TÖFRAPRINSESSAN ÍSL TAL kl. 6 L
NATIONAL TREASURE 2 kl. 10 12
Tom Hanks, Julia Roberts og Philip
Seymor Hoffman fara á kostum í
þessari gamansömu mynd sem byggð
er á raunverulegum atburðum.
TILNEFNDTIL ÓSKARSVERÐLAUNA.
- bara lúxus
Sími: 553 2075
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
C L O V E R F I E L D kl. 4, 6, 8 og 10 14
BRÚÐGUMINN kl. 4, 6, 8 og 10 7
ALIENS VS PREDATOR 2 kl. 8 og 10 16
THE GOLDEN COMPASS kl. 5 10
Átök brjótast út á milli andstæðra
skrímslafylkinga í geimskipi á
sporbaug um jörð, með þeim afleið-
ingum að það hrapar og brotlendir
í bandarískum smábæ. Blóðþyrst
kvikindi sleppa úr haldi og leita inn
í bæinn, þar sem grandvaralausir
íbúarnir reynast framan af alls
vanmáttugir gagnvart óvættunum,
þar til þeim berst óvæntur „liðs-
auki“ utan úr geimnum.
Alien vs. Predator 2 er sjálfstætt
framhald Alien vs. Predator, þar
sem tveimur af frægustu skrímsl-
um kvikmyndasögunnar er att
saman. Hugmyndin var fengin úr
teiknimyndablöðum þar sem fjend-
urnir voru leiddir saman, eftir að
hafa lifað góðu lífi hvor í sínum
myndabálkinum. Kvikmyndalegi
samslátturinn frá 2004 olli nokkr-
um vonbrigðum, ekki síst vegna
lélegs handrits.
Framleiðendurnir sáu sér ekki
annað fært en að byrja frá grunni í
nýju myndinni, þar sem áhorfend-
um er lofað tvöfalt betri mynd.
Sjálfsagt er það ástæða þess að
ekki dugði minna til en tveir leik-
stjórar, bræðurnir og brellumeist-
ararnir Colin og Greg Strause, sem
hétu því að ganga skrefi lengra í
viðbjóði.
Sá hluti loforðsins hefur sannar-
lega verið efndur. Skrímslin ganga
berserksgang í bænum og sporðr-
enna þar hverju manngreyinu á
fætur öðru milli þess sem þau
reyna að murka lífið hvert úr öðru.
Blóðbaðið nær hámarki á fæðingar-
deild bæjarins en þá er líka ekki
laust við að manni finnist fulllangt
gengið.
Sagan virðist því miður hafa
gleymst í öllum hamaganginum,
þar sem ekki er meira kjöt á bein-
unum en á einu fórnarlamba
skrímslanna. Persónusköpun er
engin, auk þess sem menn virðast
seint ætla að skilja að meira þarf
til en hlýrabol, byssu og blautar
krullur til að skapa áþekka hetju
og Ripley. Fögur fyrirheit um tvö-
falt betri mynd virðast því fara
fyrir lítið, sé miðað við þær fyrri.
Alien vs. Predator 2 hefur engu
að bæta við hinar myndirnar.
Roald Viðar Eyvindsson
Blautar krullur duga skammt
KVIKMYNDIR
Alien vs. Predator 2
Leikstjórar: Colin og Greg Strause.
Aðalhlutverk: Reiko Aylesworth, Ste-
ven Pasquale og John Ortiz.
★★
Alien vs. Predator 2 hefur engu við
fyrri myndir að bæta.
Sönghópurinn Luxor er hættur eftir stutta
viðveru í bransanum. Ekki er beint hægt að
segja að skiptar skoðanir séu á skyndilegu
fráhvarfi sveitarinnar.
„Ég á ekki eftir að sakna þeirra persónulega en ég
óska þessum piltum alls hins besta í framtíðinni,“
segir Óli Palli á Rás 2. „Ég tel alls ekki að þetta sé
dauðadómur yfir þessari tegund tónlistar. Það
hefur fullt af fólki smekk fyrir svona tónlist þótt ég
hafi það ekki persónulega. Ætli Einar Bárðarson sé
ekki bara að fókusera á England og Garðar Cortes
og því líklega lítið bensín eftir fyrir Luxor-vélina.“
Brynjar Már Valdimarsson hjá FM957 er á
svipaðri skoðun og Óli. „Nei, ég get nú ekki sagt að
ég sakni Luxor, enda var ég ekki fan, en mér fannst
þetta konsept engu að síður ekkert galið,“ segir
hann. „Maður hefur nú trú á því sem Einar Bárðar-
son hefur verið að setja saman og því kom þessi
stutti líftími Luxor mikið á óvart. Manni finnst
skrýtið að þessu hafi ekki verið haldið lengur úti
fyrst það var á annað borð verið að fara í gang með
þetta. Líklega er Einar bara of upptekinn í öðru.“
Brynjar segir Luxor-hópinn smávegis hafa verið
spilaðan á stöðinni. „Aðallega á kvöldin þegar við
erum með rólegri og þægilegri tónlist. Þeir voru
miklu meira spilaðir á Bylgjunni.“
„Var þessu ekki sjálfhætt?“ spyr Ívar Gumunds-
son hjá Bylgjunni. „Þetta byrjaði með svaka
flugeldasýningu og reykbombum og fuðraði svo
bara upp. Mér sýndist þeir ekki ná neinu flugi. Við
spiluðum einhver 3-4 lög með þeim en það stóð alls
ekki upp úr af því sem var í gangi á síðasta ári. Ég
missi ekki nætursvefn og á ekki eftir að sakna
þeirra.“
Ívar segir þó ekki útilokað að „drengja“-band á
borð við Luxor geti gengið hérlendis. „Það þarf þá
að kveikja betur á perunni. Eða öllu heldur að
skipta bara alveg um peru.“
Mest eru fagnaðarlætin hjá útvarpsstöðinni X-
inu. Þar hefur andstaðan við meint hryðjuverk
Einars Bárðarsonar verið svo mikil að farið var í
gang með undirskriftalistann „Stöðvum Einar
Bárðarson“.
„Andlát Luxor eru klárlega bestu fréttir
vikunnar,“ segir Þorkell Máni á X-inu. „Í kringum
siðleysi borgarstjórnarinnar, hrun verðbréfamark-
aðarins og slælegt gengi handkastlandsliðsins var
kominn tími á góðar fréttir.“
Þótt Luxor hafi gefið upp öndina segir Þorkell
Máni að baráttunni fyrir betri og skemmtilegri
tónlist sé hvergi nærri lokið. „Það er nóg eftir og
það þarf að bæta margt í þessum tónlistarheimi.
Fólk er ennþá að mæta á böll með hljómsveitum
eins og Á móti sól og Dalton-bræðrum. Það munu
líka alltaf koma upp fleiri svona framleiðsluhug-
myndir og einhver ófrumleg poppbönd. Síðasti
hálfvitinn er ekki fæddur. Baráttan heldur áfram.“
gunnarh@frettabladid.is
Syrgja ekki Luxor-hópinn
BARÁTTAN HELDUR ÁFRAM
Þorkell Máni á X-inu.
FULLT AF FÓLKI SEM HAFÐI
GAMAN AF LUXOR Óli Palli
á Rás 2.
MISSIR EKKI NÆTURSVEFN
Ívar Guðmundsson á Bylgj-
unni.
EINAR LÍKLEGA OF UPPTEK-
INN Í ÖÐRU Brynjar Már hjá
FM957.
Næsta kvikmynd um leyniþjón-
ustumanninn James Bond mun
heita Quantum of Solace. Þetta
var tilkynnt á blaðamannafundi
með framleiðendum myndarinnar
í gær. Titillinn er fenginn frá smá-
sagnasafni Ian Fleming, skapara
Bond. Þótt James Bond flakki allt-
af um heiminn í kvikmyndum
sínum verður stærsti hluti mynd-
arinnar tekinn upp í Pinewood-
myndverinu í Buckingham-skíri.
Breski leikarinn Daniel Craig
mun endurtaka leikinn sem hinn
kvensami leyniþjónustumaður en
talið er að myndin verði framhald
af Casino Royale sem skaut Craig
upp á stjörnuhimininn. En leikar-
inn hefur aldrei haft jafn mikið að
gera á hvíta tjaldinu eftir að hann
skellti sér í smókinginn víðfræga.
Craig verður að sjálfsögðu
umkringdur fögrum fljóðum en
þær Gemma Arterton og Olga
Kurylenko munu berjast um hylli
Bond auk þess sem telja verður
líklegt að þær setji strik í reikn-
inginn hjá Bond. Illmennið verður
hins vegar í höndum hins franska
Mathieu Amalric.
Bond-mynd fær nafn
Poppsveitin Hjaltalín heldur
útgáfutónleika í kvöld á Græna
hattinum á Akureyri. Aðrir
útgáfutónleikar
verða á Nasa
14. febrú ar
ásamt Ólöfu
Arnalds og
Borko.
Hjaltalín mun
spila lög af
plötu sinni
Sleepdrunk
Seasons sem
kom út fyrir jól
og fékk úrvals
viðtökur
gagn rýnenda.
Framundan eru tónleikar í Belgíu
26. febrúar og tvennir tónleikar í
Danmörku; þeir fyrri með múm og
Borko 27. febrúar og hinir síðari
með Sprengjuhöllinni 1. mars.
Hjaltalín
fagnar plötu
HÖGNI EGILSSON
Högni og félagar
í Hjaltalín halda
útgáfutónleika á
Akureyri í kvöld.
NÝTT TEYMI Næsta Bond-mynd hefur
hlotið nafnið Quantum of Solace og að
sjálfsögðu verður Daniel Craig í hlut-
verki flagarans Bond. Með honum eru
leikkonurnar Olga Kurylenko og Gemma
Arterton. NORDICPHOTOS/GETTY