Fréttablaðið - 27.01.2008, Síða 30
27. janúar 2008 SUNNUDAGUR12
ATVINNA
Starfsmaður í mötuneyti:
50% stöðugildi
Allt á
einum stað
Starfslýsing:
Aðstoð við matreiðslumann með salatbar
Létt matreiðsla ef þörf krefur
Móttaka aðfanga og frágangur á vörum
Tiltekt og þrif í eldhúsi
Veitingaumsjón fyrir fundi, námskeið og tilfallandi
uppákomur
Umsjón með kaffivélum og eldhúskrókum í húsinu
Önnur tilfallandi störf í eldhúsi
Hæfniskröfur
Reynsla af sambærilegu starfi kostur
Þjónustulund og lipurð í samskiptum
Stundvísi og reglusemi
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Óðins-
dóttir, forstöðumaður mannauðssviðs, í síma 569 5100
eða gegnum netfangið ingibjorg.odinsdottir@skyrr.is.
Eyðublöð fyrir umsóknir er að finna á vefsvæði Skýrr
(skyrr.is). Fullum trúnaði er heitið og öllum umsóknum
verður svarað.
Umsóknarfrestur er til mánudagsins 4. febrúar
næstkomandi.
Skýrr veitir um 2.300 viðskiptavinum fjölbreytta hugbúnaðar-
og rekstrarþjónustu. Allt á einum stað. 24/7. Fyrirtækið er
samstarfsaðili Business Objects, Microsoft, Oracle og VeriSign.
Starfsemi fyrirtækisins er vottuð samkvæmt alþjóðlega gæða-
og öryggisstaðlinum ISO 9001.
Skýrr auglýsir eftir starfsmanni í 50% stöðu-
gildi til að aðstoða matreiðslumann fyrirtækis-
ins. Matreiðslumaður sér um starfsemi mötu-
neytis Skýrr í Ármúla 2 í Reykjavík. Að meðal-
tali borða þar um 130 manns í hádeginu.
Vinnutíminn er frá kl. 10:00–14:00 alla virka
daga. Góð vinnuaðstaða í boði.
Skýrr sækist eftir orkumiklu og jákvæðu
starfsfólki sem leggur metnað í vinnu sína.
Skýrr er fjölskylduvænt fyrirtæki í lifandi
samkeppnisumhverfi. Starfsfólk fyrirtækisins
myndar samhentan hóp þar sem mannauðurinn
er í fyrirrúmi. Gildi Skýrr eru fagmennska,
frumkvæði, jákvæðni og þjónustulund.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Náms- og starfsráðgjafi
Vinnumálastofnun leitar eftir náms- og starfsráðgjafa fyrir
þjónustuskrifstofu stofnunarinnar á Vesturlandi.
Starfssvið
• náms- og starfsráðgjöf fyrir atvinnuleitendur
• skipulag og þróun úrræða fyrir atvinnulausa
• vinnumiðlun o.fl .
Menntunar- og hæfnikröfur
• háskólanám í náms- og starfsráðgjöf, kennaramenntun
eða sambærilegt nám
• góð þekking á vinnumarkaði og menntakerfi
• kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli
• mikil samskiptahæfni
• framtakssemi, sjálfstæði og skipulagshæfni
Vinnumálastofnun Vesturlands er staðsett á Akranesi. Ráðg-
jafi stofnunarinnar þjónustar atvinnuleitendur í öllu um-
dæminu og hans bíður að sinna krefjandi verkefnum
með jákvæðum og uppbyggilegum samstarfshópi.
Laun eru greidd samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Um er að ræða fullt starf og þarf viðkomandi að geta hafi ð
störf sem fyrst. Áhugasamir geta kynnt sér starfsemi stofnu-
narinnar á heimasíðu hennar www.vinnumalastofnun.is
Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil
sendist til Gunnars Richardssonar, forstöðumanns
Vinnumálastofnunar Vesturlands, Stillholti 18, 300 Akranesi
eða á netfangið gunnar.richardsson@vmst.is fyrir10. febrúar
næstkomandi.
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Richardsson í síma 430 5300 og Hugrún B.
Hafl iðadóttir, starfsmannastjóri í síma 515 4800.
Vélstjóri
óskast á ísfi sktogara.
Uppl. í síma 8963939
MAÐUR ER ALLTAF AÐ
LEIKA SÉR Í VINNUNNI
Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur • Bæjarhálsi 1
Sími 411 5000 • Bréfsími 411 5009 • www.itr.is • itr@itr.is
Frístundaheimilin í Tónabæ óska eftir starfsfólki
á öllum aldri í leik og starf með 6-9 ára börnum
Umsækjendur þurfa að
geta hafið störf sem fyrst
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublað er
á heima-
síðu ÍTR, www.itr.is. Einnig er hægt að hafa sa
mband
við deildarstjóra barnastarfs í Tónabæ, s. 411
5400 Laun eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar
við Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar.
Álftabær, Álftamýrarskóli s. 664 7611
Sólbúar, Breiðagerðisskóli s. 664 7612
Neðstaland, Fossvogsskóli s. 664 7613
Krakkakot, Hvassaleitisskóli s. 664 7616
Glaðheimar, Langholtsskóli s. 664 7617
Laugarsel, Laugarnesskóli s. 664 7618
Vogasel, Vogaskóli s. 664 7619
Í boði eru hlutastörf með sveigjanlegum
vinnutíma eftir hádegi á eftirtöldum stöðum: