Tíminn - 12.07.1981, Page 28
Póstsendum um allt land
Sunnudagur 12. júli 1981
framhaldssagan
II I’ 77900 S Gardínubtautir hf f7mí- " * R'
'I I : Skemmuvegi 10 Kópavogi
Útskornir trékappar í mörgum viðartegundum
1 barrock í barrockl
stíl
Úrval
ömmu-
stanga
frá
Florense
Munið
orginal
zbrautir
frá okkur
Simi77900
S Gardínubmutir hf
• Skemmuvegi 10 Kópavogi
stíl
•
Þið hringið
við mælum
og setjum
upp
•
Reynið
okkar
þjónustu
hún er
trygg
Simi 77900
Endurskinsmerki örvaaHa
Dökkklæddur vegfarandi sést
ekki fyrren í 20 — 30 m. fjarlægð
frá lágljósum bifreiðar,
oryggi
umferðinni.
en með endurskinsmerki sést
hann í 120 — 130 m. fjarlægð.
ODYR OG AFKASTAMIKILL
HEYHLEÐSLUVAGN
NÚ MEÐ VÖKVALYFTRI SÓPVINDU
.«•». V. *«.'•
CARBONI CR 44 er 26 rúmm. að stærð með 7 hnífum
Nokkrum óráðstafað. Verð: 43.370
CARBONI CR 55 er 32 rúmm. að stærð á veltiöxli
með 7 hnífum. Uppseldur
Hagkvæmir greiðsluskilmálar.
Hagstæðasta verð á markaðnum.
Gerið samanburð.
G/obusi
LÁGMÚLI 5, SIMI 81555
á rúminu hennar, hin dæmigerða duglega hjúkrunarkona, þegar
dr. McCullers kom inn á stofuna.
Hann leit á hana, hvorki vinsamlegur né óvinsamlegur á svip,
einfaldlega með atvinnumannssvip og sagði stuttaralega:
— Góðan dag, hjúkrunarkona. Hvernig liður sjúklingnum?
— Góðan daginn læknir. Hún hefur verið undirbúin undir að-
gerðina. Hún er tilbúin hvenær sem á þarf að halda.
Dr. McCullers leit niður tilfrú Judson, sem brosti syfjulega til
hans. Andrea hafði gefið henni róandi lyf, og það var þegar farið
að hafa áhrif. Hann talaði ekki við hana, til þess að eiga ekki á
hættu að vekja hana. Hann leit á kortið, sem Andrea hafði fyllt
út og hengt á fótagaflinn eins og vera bar, svo kinkaði hann kolli
og gekk út.
Þegar aðstoðarmennirnir komu með sjúkravagninn sagði
Andrea til um, hvernig færa ætti hinn sofandi sjúkling og koma
honum fyrir á vagninum. Svo gekk hún viö hlið vagnsins fram
eftir ganginum. Þegar þau komu að dyrum skurðstofunnar stóð
þar hjúkrunarkona tilbúin með sótthreinsaða grimu. Hún kink-
aði kolli til Andreu.
— Viö tökum hér við. hjúkrunarkona. Þin verður ekki þörf á
skurðstofunni.
Andrea sætti sig við orð hennar, án mótmæla, og þegar dyrnar
lokuðust á eftir aðstoðarmönnunum og skurðstofuhjúkrunarkon-
unni, fórhún aftur til stofunnar, þar sem frú Judson átti að vera.
Hún tók upp úr töskum frú Judson og sömuleiðis upp úr sinni
tösku, en hún átti sjálf að búa i næsta herbergi. Að þvi búnu fór
hún að huga að þeim mörgu blómum, sem þegar voru farin að
berast, og furðaði sig á þvi, og ekki i fyrsta skipti, hvers vegna i
ósköpunum fólk væri aö senda blóm með svo sterkri angan þegar
á fyrsta degi sjúkralegu sjúklingsins. Fólk hlaut þó að vita, að
sjúklingur, sem var að vakna eftir svæfingu þoldi ekki þessa
sterku lykt. Það skipti ekki máli hve falleg blómin voru.
Hún ætlaði að halda kortunum til haga, og setja merki aftan á
þau, svohún vissi, hvaða kort hafði verið með hvaða blómum, en
svo ætlaði hún að fá hjúkrunarkonurnar til þess að.koma þeim
fyrir frammi i setustofunni, eða einhverju af móttökuherbergj-
unum.
Timinn leið hægt, minúturnar urðu að klukkustundum, og hún
fór að verða alvarlega áhyggjufull.
Að siðustu þoldi hún ekki biðina lengur og fór fram á ganginn.
Þar var allt eins og það átti að vera, og ró yfir öllu. Aðeins
heyrðist á hljóðskraf nokkurra hjúkrunarkvenna sem stóðu við
borð deildarhjukrunarkonunnar. Andrea gekk hröðum skrefum
til þeirra. Fótatak heyrðist ekki, vegna þess að hún var i skóm
með gúmmisólum.
Hjúkrunarkonurnar við borðið snéru sér viö, þegar hún nálg-
aðist, og sú, sem sat við borðið leit kuldalega á hana.
— Já? sagði hún kurteisleg, en um leið með iskaldri röddu.
— Ég er Andrea Drake, einkahjúkrunarkona frú Judson.
— Já, já, við vitum það, drafaði i deildarhjúkrunarkonunni.
Hinum hjúkrunarkonunum virtist skemmt. — Hvað get ég gert
fyrir þig, ungfrú Drake?
Andrea roðnaði, þegar hún heyrði tóninn, sem hjúkrunarkonan
notaði, þegar hún talaði til hennar.
— Ég er orðin áhyggjufull út af frú Judson, byrjaði hún.
— Þú þarft ekki að vera það, ungfrú Drake. Hún er i öruggum
höndum.
— Ég er viss um, að svo er, en ég hafði ekki búist við, að upp-
skurðurinn myndi taka svona langan tima.
— Uppskuröinum lauk fyrir klukkustund, eða meira, svaraði
hún. — Sjúklingurinn er kominn inn á stofuna til þess að jafna
sig.
Af raddblænum mátti ráða, að hún hugsaði, hvar annars stað-
ar ætti hún svo sem að vera.
— Takk fyrir, sagði Andrea. — Ég bjóst við, að mér yrði til-
kynnt, þegar uppskurðinum lyki.
— Hélstu það i raun og veru? Þú hefur ekki spurst fyrir um
þetta fyrr en nú, og ég er búin að segja þér það.
Andrea leit frá stúlkunni við borðið, með kuldalega svipinn til
hjúkrunarkvennanna þriggja, sem við borðið stóðu. Þær voru
jafn sviplausar og f jarlægar á svip. Af margra ára reynslu vissi
Andrea, að allt hjúkrunarliðið var á móti henni, og andsnúiö þvf
að hún skyldi vera komin hingað sem einkahjúkrunarkona frú
Judson. Hjúkrunarliðið leit á það, sem ábendingu um, að þjón-
usta þess væri ekki einsog hún ætti að vera.
— Ég býst við, sagði hún, og talaði i sömu tóntegund og þær
höfðu gert, — að ég þurfi ekki að spyrja að þvi, uppskurðurinn
hlýtur að hafa tekist vel?
— Að sjálfsögðu, sagði hjúkrunarkonan við borðið, og lyfti
svolitið augabrúnunum. — Dr. McCullers er góður skurðlækn-
ir. Vinkona þin er i fullkomlega öruggum höndum.
— Að sjálfsögðu, kuldaleg rödd Andreu kom greinilega illa við
hjúkrunarkonurnar. — Það er komiö mikið af blómum með
sterkri angan. Hvaðhaldið þið, að best væriað gera við þau?
— Nú, nema hvað, sagði hjúkrunarkonan bliðlega. — Ég
sting upp á að þú hugsir um þau, þangað til frú Judson kemur
afturinná stofuna sina, sem veröur áreiðanlega á morgun. Þá
er ég viss um, að hún vill hafa hönd i bagga meö þvi, hvaö um
blómin verður.
Enn einu sinni leit Andrea til hjúkrunarkvennanna þriggja en
sá ekki votta fyrir allri minnstu hlýju i andlitum þeirra.
— Þakka ykkur kærlega fyrir þessa einstöku kurteisi, sagði
hún með eiturbroddi i röddinni. Svo gekk hún aftur að herbergi
frú Judson.
Hún heyrði ofurlitið högg á baðherbergisdyrnar, og opnaöi.
Fyrir utan stóð yngsta hjúkrunarkonan af þeim þremur, sem
höfðu staðið við borðið frammi á ganginum. Hún lagði fingur á
varir sér svo Andrea segði ekkert.
— Ég er Annette Lacey, Andrea, hvislaði hún, i samsæristóni.
— Mér fannst þær koma ferlega fram við þig, þegar þær voru aö
reyna að sýna þér þessa ókurteisi hérna frammi. Þær hefðu
steikt mig i oliu, ef ég hefði reynt að segja eitthvað. Mig langaði
bara til þess aðláta þig vita.hversu mikiðég dáist að þér.
— Þúsund þakkir, sagði Andrea i lágum hljóðum, og létti við að
finna þennan vinarhug stúlkunnar. — Mér þykir leiöinlegt, að
þær skuli vera þvi mótsnúnar, að ég skuli eiga að verða einka-
hjúkrunarkona frú Judson.
— Það er ekki það, sem er að, Andrea. Þær vita, að þú hefur
gert uppreisn gegn Mikilmenninu, og vita sömuleiðis, aö honum