Fréttablaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 22
NÝTT
4 FERÐALÖG
Marokkóskur matur er með þvi vinsælasta
í matargerð í dag og hvernig væri að slá í
gegn í næsta matarklúbbi með því að læra
að búa til alvöru „tagine“ í Marrakesh? Nú er
hægt að sækja frábæran alþjóðlegan matar-
gerðarskóla rétt fyrir utan Marrakesh í Villa Dar Liqama,
fögru húsi sem er umkringt pálmatrjám. Skólinn er einn
af mörgum sem tilheyra The Rhode School of Cuisine
sem einnig er með útibú í Frakklandi og Bretlandi. Hægt
er að fara í viku kúrs eða lengri þar sem farið er yfir
helstu grundvallaratriði marokkóskrar matargerðar og
svo eru herlegheitin auðvitað snædd með eðalvínum.
Skólinn er eins og fínasta hótel með fallegum svítum,
sundlaug og hammam-gufubaði og á þakinu eru stórar
svalir þar sem hægt er að setjast með drykk á síðkvöld-
um undir stjörnubjörtum Afríkuhimni. - amb
www.rhodeschoolofcuisine.com
TÆLANDI TAGINE
Lærðu að elda í Marrakesh
F
rægustu veitingahúsarýnar heims mega
ekki vatni halda þessa stundina yfir mat
sem þeir segja þann besta í heimi og
fæst á veitingahúsinu El Bulli á Costa
Brava. Kokkurinn Ferrán Adriá hefur þar skapað
fæði sem þeir kalla „ Nirvana matargerðarlistarinn-
ar“. En það sem færri vita er að þessir mataráhuga-
menn flykkjast allir til Grand Hotel Central í
Barcelona þar sem Adriá sjálfur snæðir reglulega og
halda svo þaðan í pílagrímaför til El Bulli, sem tekur
um tvo tíma. Hótelið er glæsilegt og er staðsett í
gotneska hverfi Barcelona. Það er fallega
hannað í dempuðum litum og uppi á þaki er
frábær sundlaug. Hverfið er frægt fyrir tapas-
bari eins og til dæmis Inopia í Barrio Sant
Antoni og svo hefur Ferrán Adria opnað Fast Good í
grenndinni sem er nýr og trendí hamborgarastaður.
Þeir sem vilja svo prufa dásemdir El Bulli þurfa að
bóka borð allt að ár fram í tímann til þess að geta
gætt sér á hinum þrjátíu rétta smakkseðli sem
skartar réttum eins og stökkum kanínueyrum og
blöðrum fylltum af lofti með sítrónubragði. - amb
BESTI MATUR Í HEIMI?
Gran Hotel Central í Barcelona
WWW.GRANHOTELCENTRAL.COM SÍMI 00 34 93 295 7900
NEW YORK
AUKAFERÐ
VERÐ 106.900 KR.
Á MANN Í TVÍBÝLI.
22.–26. MAÍ
Fararstjóri:
Hallfríður Þórarinsdóttir.
Örfá sæti laus.
Færri komust að en vildu
í síðustu ferð.
Gist á góðu 4ra stjörnu hóteli
við Times Square.
+ Nánari upplýsingar
eru á www.icelandair.is
* Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting í 4 nætur á Millennium Broadway ****,
rútuferðir til og frá flugvelli erlendis, íslensk fararstjórn.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
4
12
74
2
/0
8
Auglýsingasími
– Mest lesið
EKKI
MISSA AF
ÞESSU