Fréttablaðið - 24.02.2008, Síða 63

Fréttablaðið - 24.02.2008, Síða 63
FERÐALÖG 33 DRUKKIÐ… Hudson Bar HUDSON HOTEL, 356 WEST 58TH STREET NEW YORK Þetta ofurhannaða hótel hefur verið einn vinsælasti næturstaður borgarinnar síðan það var opnað og er sannkölluð veisla fyrir augun. Gólfið er úr gleri og loftið er málað af listamanninum Francesco Clem- ente, en húsgögnin eru eins konar sambland af Loðvíki fimmtánda og 2001: A Space Odyssey. Frábær staður til að setjast með drykk og spjalla við vini, eða bara að horfa á fólkið í kring og njóta þess að vera í New York. OG DANSAÐ… (eða strippað) The Box 189 CHRYSTIE STREET NEW YORK, NY 10002. +1 212.982.9301 Geggjaður neðanjarðar nætur- klúbbur, svo „neðanjarðar“ að hann er aldrei auglýstur og allir reykja þar inni þrátt fyrir reykingabannið. Hann er innréttaður eins og gamalt leikhús og býður upp á alls kyns djarfar karnival-sýningar þar sem þú getur setið í stúku, drukkið kampavín og horft á klæðskipt- inga, karla í kjólum með brjóst sem afklæðast og spranga um sviðið og dverga leika kúnstir. Eins og að vera staddur inni í miðri David Lynch-mynd. Og það er yndislegt. PARÍS BORÐAÐ... Le Jules Verne TOUR EIFFEL, 75017 PARÍS +33 01 45 55 61 44 Frakkinn Alain Ducasse er eflaust frægasti kokkur í heimi og hefur heilar fimmtán Michelin-stjörnur á kokkahúfunni. Hann rekur fjölda veitingastaða og hótela um heim allan en í París eru það tveir sem eru frægastir, veitingastaður í Plaza Athénée-hótelinu og nú hefur hann opnað stórfenglegan stað í Eiffel- turninum sjálfum. Eftir tveggja ára framkvæmdir verður Jules Verne- veitingahúsið opnað aftur á annarri hæð hins fræga turns og nú undir handleiðslu Ducasse sem segir: „Ef þú færð þér eina máltíð í París þá verður hún að vera hér.“ Ein máltíð er ekki ódýr á þessum stað en mun væntanlega verða ógleymanleg, bæði vegna hins dásamlega matar og útsýnisins yfir borg ljósanna. Meðal rétta á matseðlinum eru graskersfrauð með svörtum trufflum, „fricassé“ með kjúklingi frá Bresse og humar og hinn frægi „L‘écrou“, eftirréttur sem er kúla fyllt af bráðnu súkkulaði. Hôtel Plaza Athénée 25 AVENUE MONTAIGNE, 75008 PARÍS Og hér er hinn klassíski Ducasse- veitingastaður sem er sveipaður sannkölluðum töfraljóma. Salurinn er dekkaður upp í appelsínugulu og hvítu litaþema og tíu þúsund krist- alskrónur hanga í loftinu. Ducasse býður gestum sínum upp á franskan mat með nútímalegu ívafi og leggur mikið upp úr bragði sérhvers hrá- efnis. Á meðal þeirra dásemda sem hægt er að leggja sér til munns er humar í forrétt með sítrónurjóma og kavíarslettu, fiskur í epla- og krydd- vínslegi og „rum baba“ í eftirrétt. Gestir geta einnig sett saman eigin matseðil úr úrvali rétta frá ýmsum héruðum Frakklands. DRUKKIÐ… Hôtel Costes 239 RUE ST-HONORÉ, 75001 PARÍS Ef þú vilt vera svalur og sjá aðra þá er barinn á Hotel Costes klassískur kostur. Þetta musteri kúlsins í Par- ísarborg er munúðarfullur staður í rauðum blæbrigðum með gamal- dags sófum og arineldi. Hér muntu örugglega rekast á franska leikara, hipp og kúl stúlkur eins og Clém- ence Poésy og Charlotte Birkin og jafnvel syni Sarkozys forseta. Einn- ig hægt að borða á veitingahúsinu á sama hóteli og þeir alsvölustu panta sér herbergi. OG DANSAÐ… Le Paris Paris 5 AVENUE OPÉRA, 75001 PARIS Geysilega vinsæll næturklúbbur meðal smartsettsins í París. Ansi erfitt að komast inn, raðir geta verið langar og fastagestir eru það sem Frakkar kalla „bobo“ – fallegt og frægt fólk. Besta tónlistin er á þriðjudagskvöldum. Samkvæmt facebook-prófílnum er ekkert víst að þú komist inn „af því þú ert rokkstjarna, faðir einhvers, sonur einhvers, ríkur eða þjóðhetja“. Þú kemst bara inn ef dyraverðinum líst á þig. -amb/jma Le Rouge er nýr og ævintýralegur veitingastaður í Stokkhólmi en matreiðslan þar og umhverfið er franskættað. 9 EINSTAKT GOLFÆVINTÝRI Á NÝJUM OG SPENNANDI SLÓÐUM Gist í tvær nætur á hinu glæsilega hóteli Lord Nelson**** í Halifax þar sem spilað verður á Glen Arbour golfvellinum (www.glenarbour.com) í tvo daga. Síðan er gist í tvær nætur á hinu frábæra golfhóteli Digby Pines Golf Resort and Spa**** og spilað golf í tvo daga (www.digbypines.ca). Auk þess að spila golf á Digby Pines Golf Resort má einnig gera ýmislegt fleira sér til skemmtunar og heilsubótar. Golfkennari frá Pro Golf verður fararstjóri og einnig til taks fyrir þá sem þurfa á leiðbeiningum að halda. + Nánari upplýsingar um þessa spennandi ferð á www.icelandairgolfers.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /I C E 4 12 73 2 /0 8 GOLFFERÐ TIL HALIFAX VERÐ 99.900 KR. Á MANN Í TVÍBÝLI 15.–19. MAÍ
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.