Fréttablaðið - 24.02.2008, Síða 83
SUNNUDAGUR 24. febrúar 2008 31
Golf meðExpress ferðum
Nánar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Tilvalin gjöf á
konudaginn!
Golfkennsla á Alicante fyrir
byrjendur og lengra komna. Í boði
er einkakennsla og hópkennsla,
stakir tímar og þátttaka í golf-
skóla alla vikuna, allt eftir þörfum
hvers og eins!
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum, gisting í 7 nætur á 5* hóteli með
morgunverði, 5 golfhringir m/golfbíl á
Alicante Golf, fríir æfingarboltar, akstur til
og frá flugvelli og íslensk fararstjórn.
2.–9. apríl og 9.–16. apríl
Golfkennsla: Jón Karlsson
105.700 kr.
Verð á mann í tvíbýli
KÖRFUBOLTI Bikarmeistarar Hauka
og Grindavík mætast í Laugardals-
höllinni klukkan tvö í dag í úrslita-
leik Lýsingarbikars kvenna og
getur Grindavík þar unnið sinn
fyrsta bikarúrslitaleik en Haukarn-
ir geta hins vegar unnið hann annað
árið í röð.
Haukastelpur hafa unnið bikar-
inn tvisvar á síðustu þremur árum
auk þess að vinna þrjá síðustu
bikar úrslitaleiki sína í Höllinni. Á
sama tíma hafa Grindavíkurkonur
farið þrisvar sinnum heim með
silfrið. Það er því óhætt að segja að
þessi félög eigi ólíkar minningar
úr Laugardalshöllinni síðustu árin.
Grindavík hefur farið illa með
Haukaliðið í síðustu tveimur leikj-
um, vann með 19 stigum á Ásvöll-
um í desember og svo með 14 stig-
um í Grindavík í janúar í síðasta
leik liðanna. Haukarnir hafa lítið
ráðið við Tiffany Roberson í þess-
sum leikjum en hún hefur skorað
57 stig, tekið 29 fráköst og hitt úr
22 af 31 skoti sínum í þeim. Grinda-
vík hefur einnig þegar slegið
Haukana út úr bikarnum því
Grindavík vann b-lið Hauka, 55-94,
í sextán liða úrslitunum en í síð-
ustu tveimur leikjum hafa Grinda-
víkurstelpurnar slegið út tvö af
efstu liðum deildarinnar, KR og
Keflavík.
Kristrún Sigurjónsdóttir, fyrir-
liði Hauka, er eini leikmaður
Haukanna sem hefur spilað í
báðum úrslitaleikjunum sem liðið
hefur unnið síðustu þremur árum
en Svanhvít Skjaldardóttir var í
hópnum í báðum leikjum. Unnur
Tara Jónsdóttir, Bára Fanney Hálf-
danardóttir, Guðbjörg Sverrisdóttir
og Ragna Margrét Brynjars dóttir
spiluðu allar með í fyrra.
Grindvíkingarnir Ólöf Helga
Pálsdóttir og Jovana Lilja Stefáns-
dóttir eru einu leikmenn Grinda-
víkur sem spiluðu í úrslitaleikjum
liðsins 2005 og 2006. Petrúnella
Skúladóttir og Alma Rut Garðars-
dóttir spiluðu báðar í leiknum fyrir
tveimur árum.
Fréttablaðið heyrði í nokkrum
leikmönnum í deildinni og þær
voru allar á því að Grindavík myndi
vinna leikinn og að Tiffany Rober-
son yrði maður leiksins. - óój
Ólíkt gengi hjá Haukum og Grindavík í bikarúrslitaleikjum kvenna síðustu árin:
Spá allar Grindavík titlinum
FYRIRLIÐARNIR Kristrún Sigurjónsdóttir, fyrirliði Hauka og Jovana Lilja Stefánsdóttir,
fyrirliði Grindavíkur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HVERNIG FER LEIKURINN?
HVER VERÐUR MAÐUR
LEIKSINS?
Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir, fyrir-
liði Keflavíkur: Grindavík vinnur með
1 stigi. Tiffany Roberson.
Hildur Sigurðardóttir, fyrirliði KR:
Grindavík vinnur með 12 stigum. Tiff-
any Roberson.
Signý Hermannsdóttir leikmaður
Vals: Grindavík vinnur með 5 stigum.
Tiffany Roberson.
Gréta María Grétarsdóttir, spilandi
þjálfari Fjölnis: Grindavík vinnur með
15 stigum. Tiffany Roberson.
Fanney Lind Guðmundsdóttir leik-
maður Hamars: Grindavík vinnur með
3-4 stigum. Tiffany Roberson.
KÖRFUBOLTI Fimm af síðustu sex
úrslitaleikjum hafa annað
hvort farið í framlengingu
eða unnist með þremur stig-
um eða minna.
Leikirnir 2002 og 2003
fóru alla leið í fram-
lengingu en
Haukakonur hafa
unnið sína tvo
titla á undanförn-
um þremur árum
með naumum mun.
Haukaliðið vann
Grindavík 72-
69 árið 2005
og Keflavík
með aðeins einu stigi í fyrra,
78-77.
Keflavík vann síðan KR
með þremur stigum 2004,
72-69, en eini leikurinn sem
hefur ekki ráðist á loka-
sekúndunum er þegar ÍS
vann 15 stiga sigur á
Grindavík, 88-73, fyrir
tveimur árum. - óój
Bikarúrslitaleikir kvenna hafa verið fjörugir:
Búist við spennuleik
DRAMATÍK Haukar
unnu Keflavík með
aðeins einu stigi í
fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM