Fréttablaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 94
70 1. mars 2008 LAUGARDAGUR
folk@frettabladid.is
>SKELFILEGIR STRÁKAR
Jessica Alba er á meðal þeirra
sem gefa unglingsstúlkum ráð
í bókinni If I‘d Known Then, sem
Ellyn Spragin gefur út. „Strákar eru
skelfilegir. Þeir eru bara hormónar
þangað til þeir eru svona 20 eða 21.
Það er gaman að vera skotin en ekki
halda að það endist að eilífu,“ skrif-
ar leikkonan.
Hershöfðingjar í breska hernum hafa
ákveðið að Harry Bretaprins verði
sendur heim frá Afganistan, fimm
vikum á undan áætlun. Sátt ríkti á
milli hers og breskra fjölmiðla um að
ekki yrði greint frá staðsetningu prins-
ins, sem hefur dvalist í Afganistan frá því
í byrjun desember. Eftir að ástralskir og
þýskir fjölmiðlar leystu frá skjóðunni í
vikunni þótti öryggi Harrys vera ógnað,
og var því ákveðið að hann yrði sendur
heim. „Við verðum að búast við því að
hver einn og einasti öfgamaður í nágrenn-
inu muni reyna hvað sem er til að finna
hann,“ segir heimildarmaður The Sun
innan hersins.
Á meðan á herþjónustu Harrys hefur
staðið hefur hann orðið þrjátíu óvinum að
bana. Hann hefur verið á fremstu víg-
stöðvum Breta í sunnanverðu Afganistan,
og segir í The Sun að hann hafi ekki hlotið
neina sérmeðferð, heldur hafi hann, eins
og aðrir, lent í skotárásum á nánast hverj-
um einasta degi.
Harry hefur samþykkt að vera fluttur
heim innan næstu tveggja sólarhringa.
Þegar er búið að flytja hann frá fremstu
víglínum, en breskir fjölmiðlar greina
ekki nánar frá ferðum hans. Prinsinn, sem
er 23 ára gamall og þriðji í erfðaröð bresku
krúnunnar, kveðst átta sig á því að honum
stafi hætta af stuðningsmönnum talibana,
jafnvel eftir að heim er komið. „Hver ein-
asta manneskja sem styður þá mun reyna
að finna mig,“ segir hann.
Harry verður fluttur heim
ÁFRAM Í HÆTTU Harry Bretaprins segist átta
sig á því að honum gæti enn stafað hætta af
stuðningsmönnum talibana eftir að heim frá
Afganistan er komið.
Óskarsverðlaunaleikkonan Halle
Berry hyggst senda frá sér
ilmvatn á næstunni eins og svo
margar aðrar starfssystur
hennar í Hollywood hafa áður
gert. Þetta mun hún gera í
samvinnu við fyrirtækið Coty en
ilmvatnið er væntanlegt sumarið
2009.
„Hún bætir annarri vídd við
markaðinn. Halle hefur alltaf
verið svolítið dularfull, ekki rætt
jafn opinskátt um einkalíf sitt og
margar aðrar stjörnur. Ilmvötnin
hennar munu leyfa henni að sýna
aðdáendum aðra hlið á sér,“ segir
aðstoðarforstjóri Coty. Talið er
að Berry fái á bilinu þrjár til
fimm milljónir dollara fyrir
samstarfið auk hluta ágóðans af
sölu ilmvatnsins.
Óskarsverð-
launailmvatn
EAU DE HALLE Halle Berry hyggst feta í
fótspor fjölmargra starfssystra sinna og
senda frá sér ilmvatn á næsta ári.
Þýska myndin Riddarar hvíta
tjaldsins, eða Comrades in
Dreams, og Så som i himmelen
frá Svíþjóð verðar frumsýndar
hjá Fjalakettinum á sunnudag.
Riddarar hvíta tjaldsins frá árinu
2006 er skemmtileg heimildar-
mynd um kvikmyndaformið og
hvernig það snertir fólk um heim
allan. Så som i himmelen eftir
Kay Pollak er hugljúf verðlauna-
mynd sem hefur farið sigurför
um heimninn. Var hún tilnefnd til
Óskarsverðlauna árið 2005 sem
besta erlenda myndin.
Fjalakötturinn heldur einnig
áfram sýningum sínum á
myndunum Yella, Mannaland-
myndin mín og Requiem á
sunnudag og mánudag.
Fjalaköttur
frumsýnir
RIDDARAR HVÍTA TJALDSINS Þessi þýska
mynd fjallar um kvikmyndaformið og
hvernig það snertir fólk um heim allan.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/G
ETTY
Hljómsveitin Bermúda hélt
útgáfutónleika á skemmti-
staðnum Rúbín til að kynna
fyrstu plötu sína, Nýr
dagur. Góð stemning mynd-
aðist enda hefur Bermúda
verið dugleg við spila-
mennsku undanfarin ár.
Úrvalslið söngvara og hljóðfæra-
leikara var Bermúda til halds og
trausts á tónleikunum, þar á meðal
strengjaleikarar úr Sinfóníu-
hljómsveit Íslands. Á plötunni Nýr
dagur eru ellefu lög sem koma úr
ýmsum áttum hvað varðar laga-
höfunda og stíl. Meðlimir sveitar-
innar eru: Erna Hrönn Ólafsdóttir,
Gunnar Reynir Þorsteinsson,
Ingvar Alfreðsson, Ómar Örn Arn-
arsson og Pétur Kolbeinsson.
Dagrenning hjá Bermúda
BERMÚDA Erna Hrönn Ólafsdóttir söng af mikilli innlifun á tónleikunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GÓÐIR GESTIR Á meðal gesta voru
nýkrýndir sigurvegarar Eurovision, Friðrik
Ómar og Regína Ósk, ásamt Heimi Ingi-
marssyni, fyrrverandi meðlim Luxor.
FÉLAGAR Félagarnir Hafsteinn Þór-
ólfsson og Hreiðar Ingi Þorsteinsson
hlustuðu á Bermúda.
ÁGÚSTA OG GUÐRÚN Vinkonurnar
Ágústa Ósk Óskarsdóttir og Guðrún
Ósk Gunnarsdóttir skemmtu sér vel á
tónleikunum.
BROSMILDAR Sólrún Inga Traustadótt-
ir og Vilborg Hjörný Ívarsdóttir voru
brosmildar á Rúbín.
GAMAN Íris Gunnarsdóttir og Ásdís
Jónsdóttir voru í miklu stuði.
Hljómsveitin
Reykjavík! er með
þeim duglegri í
bransanum. Strák-
arnir eru alltaf að
ota sínum tota í
útlöndum og hafa
farið óteljandi
ferðir út fyrir land-
steinana til að
vinna ný lönd. Enn
ein ferðin er fyrir-
huguð í næstu viku,
þá byrjar bandið á
því að spila á kan-
adísku músíkvik-
unni í Toronto, svo
til New York fyrir eitt gigg, og loks alla leið til Austin í Texas til að
spila á hinni árlegu stórhátíð SXSW í annað sinn. Þar verða aðrir full-
trúar Íslands hljómsveitin FM Belfast og Hafdís Huld.
„Þetta er mjög góð hátíð og Austin er alveg klikkað pleis sem ég
mæli með,“ segir Haukur S. Magnússon, gítarleikari Reykjavík! „Það
eru allir yfirgengilega næs þarna, allir kalla mann „honey“, en fólk er
samt ekki alveg klikkað enda er Austin gamalgróinn hippabær.“
Haukur segir hátíðina hálfgert peningaplokk og hljómsveitirnar
þurfa sjálfar að sjá um að leigja græjur til að spila með. Hann elur
enga sérstaka von í brjósti um að bandið slái í gegn með því að spila
þarna. „Það eru auglýsingar á kvittununum sem maður fær í leigubíl-
unum og allt er vaðandi í sölumennsku. En eins og ég segi, þá er
gaman að spila þarna og svo að rölta á milli og sjá hin böndin. Nú eru
til dæmis R.E.M. og Lemonheads á hátíðini. Ekki má svo gleyma því
að grillstaðurinn Ironworks er í Austin. Þetta er uppáhaldsveitinga-
staður bæði George W. Bush og Jays Leno og maður getur keypt sér
tveggja kílóa steikur.“
Margar íslenskar hljómsveitir hafa spilað á SXSW-hátíðinni í gegn-
um tíðina, til dæmis Jet Black Joe, Vínyl, Singapore Sling, Mammút,
Jakobínarína og Lada Sport.
Reykjavík! fer til
Texas í annað sinn
GLEÐI GLEÐI! Haukur með félögum sínum og tattú sem
þeir fengu sér til að minna sig á rokkið í ellinni.
Fermingarskyrtur
Vorum að taka upp nýja sendingu
Litur: svart • rautt • bleikt • hvítt
Mundu eftir fermingarleiknum