Fréttablaðið - 01.03.2008, Síða 99
LAUGARDAGUR 1. mars 2008
EINNIG FÁANLEGIR:
EIGÐU ÞÁ ALLA!
KÖRFUBOLTI Grindavík hefur
ákveðið að skipta út Bandaríkja-
manninum sínum Jonathan
Griffin og fá sér í staðinn stóran
leikmann fyrir komandi átök í
úrslitakeppninni.
Griffin lék sinn síðasta leik í
105-107 tapi fyrir ÍR á heimavelli
á fimmtudagskvöldið en hann var
með 26 stig og 12 fráköst í síðasta
leiknum sínum. Í stað hans fá
Grindvíkingar 196 cm kraftfram-
herja, Jamaal Williams, sem lék
síðustu tvö árin sín í háskóla-
boltanum með Washington
Huskies sem fór seinna árið alla
leið í 16 liða úrslit úrslitakeppn-
innar. - óój
Iceland Express-deild karla:
Grindavík send-
ir Griffin heim
NÝR MAÐUR Jamaal Williams er mættur
á klakann en Grindvíkingar töldu sig
þurfa að styrkja sig inni í teig.
NORDICPHOTOS/GETTY
KÖRFUBOLTI Brynjar Þór Björnsson
kórónaði frábæran leik sinn með
því að skora sigurkörfuna 4,4 sek-
úndum fyrir leikslok í 106-105
sigri KR-inga á Stjörnunni í gær
en Garðbæingar eru að keppast
við að komast inn í úrslitakeppn-
ina. KR-ingar náðu þar með Kefla-
vík að stigum þökk sé aðstoð frá
lærisveinum Ágústs Björgvins-
sonar sem unnu Keflvíkinga.
Stjörnumenn náðu fyrst alvöru
frumkvæði í leiknum þegar þeir
fengu átta stiga sókn um miðjan
annan leikhluta þegar brotið var á
Jovan Zdravevski í þriggja stiga
skoti sem hann setti niður.
Eftir fylgdu óíþróttamannsleg
villa og tæknivilla og áður en KR-
ingar vissu voru þeir komnir undir
48-60. KR kom af krafti inn í seinni
hálfleik og var komið yfir þegar
fimm þriggja stiga körfur í röð á
síðustu þremur mínútunum komu
Stjörnunni aftur yfir.
Jeremiah Sola fékk tvö víti og
boltann þegar 7,5 sekúndur voru
eftir í kjölfar óíþróttamannslegrar
villu Jovans. Sola klikkaði á báðum
vítunum en KR var enn með bolt-
ann, 105-104 undir. Sola fékk bolt-
ann og fann Brynjar Þór sem keyrði
upp að körfu og tryggði KR sigur.
Jarrett Stephens (36 stig) og
Jovan Zdravevski (26 stig) áttu
báðir góðan leik hjá Stjörnunni en
KR hélt Dimitar Karadzovski í 11
stigum. Hjá KR var Brynjar best-
ur með 23 stig og 8 stoðsendingar
en Joshua Helm kom sterkur inn í
seinni hálfleik og endaði með 27
stig og 9 fráköst. - óój
KR vann eins stigs sigur á Stjörnunni í miklum spennuleik í Garðabæ í gær:
Sigurkarfa Brynjars í blálokin
MIKIL BARÁTTA KR-ingurinn Helgi Már
Magnússon sækir en Jovan Zdravevski er
til varnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI Botnlið Hamars vann
94-88 sigur á toppliði Keflavíkur í
Iceland Express-deild karla í gær
og heldur því í vonina um að
halda sér í deildinni.
Hvergerðingar voru ekki búnir
að vinna síðan 6. janúar og léku
án sinna tveggja stigahæstu
manna, Bandaríkjamannsins
Nicholas King (farinn) og Finnans
Roni Leimu (veikur). Roman
Moniak og Lárus Jónsson áttu
báðir góðan leik og Svavar Páll
Pálsson var frábær í lokin en
annars var það liðsheildin sem
landaði sigrinum.
„Þetta eru örugglega óvænt-
ustu úrslitin i deildinni; að neðsta
liðið vinni það efsta þegar var
búið að afskrifa okkur. Við
vissum að við yrðum að þjappa
okkur saman og að við yrðum að
hægja á leiknum og stjórna
hraðanum, sem tókst. Við tökum
samt bara einn leik í einu og
reynum að hafa gaman að þessu.
Þetta er ekki undir okkur komið
og við ætlum bara að klára
tímabilið með höfuðið hátt,” sagði
Ágúst Björgvinsson, þjálfari
Hamrs, sem var sérstaklega
ánægður með innkomu ungu
strákanna í leiknum og nefndi
sérstaklega hinn 215 sm háa
Ragnar Nathanaelsson sem
kveikti í húsinu með körfu á
mikilvægu augnabliki. - óój
Hamar vann Keflavík í gær:
Óvæntustu úr-
slit vetrarins