Fréttablaðið - 04.03.2008, Qupperneq 2
2 4. mars 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Laxasneiðar 47% afsláttur
598 kr.kg.
noatun.is
LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ
Gott á þriðjudegi
UTANRÍKISMÁL „Ég hef þungar áhyggjur af
framvindu mála og harma það mikla mannfall
óbreyttra borgara sem orðið hefur á Gaza-
svæðinu undanfarna daga,“ segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra.
Ingibjörg sendi Tzipi Livni, utanríkisráð-
herra Ísraels, bréf á föstudag og lýsti þar yfir
áhyggjum vegna ummæla aðstoðarvarnar-
málaráðherra landsins, sem hótaði Palestínu-
mönnum „meiri helför“ í útvarpsviðtali í
síðustu viku.
Aðstoðarráðherrann hefur síðan leitast við
að draga úr ummælunum og bent á að orðið
sem hann notaði þýði einnig „hörmungar“.
„Ég tek undir það sem aðalframkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon,
sagði um að aðgerðir Ísraela hefðu meðalhófs-
regluna að engu. Málið verður ekki leyst með
hernaðaraðgerðum,“ segir Ingibjörg.
Ráðherra er ekki á landinu og hefur því
ekki tekið afstöðu til áskorunar samtakanna
Íslands-Palestínu, sem barst ráðuneytinu í
gær, um að slíta stjórnmálasambandi við
Ísraelsmenn.
Ögmundur Jónasson VG spurði forsætisráð-
herra út í málið á Alþingi í gær og gat þess
jafnframt að sér þætti koma til álita að
stjórnmálasambandi við Ísrael verði slitið.
Ögmundur sagði óumdeilt að Genfarsátt-
málinn, sem kveður á um vörn almennings í
stríði, hafi verið margbrotinn og það eitt ætti
að vera íslenskum stjórnvöldum ástæða til að
bregðast við. Ísland bæri enda siðferðilegar
skyldur.
Geir H. Haarde forsætisráðherra sagði
ástandið hörmulegt og framferði Ísraels-
manna óafsakanlegt en slit á stjórnmálasam-
bandi hafi ekki verið rædd. Geir sagði Ísrael
gamalt vinaríki „sem því miður hefur leiðst út
í þær ógöngur sem við fordæmum“.
Geir gerði Ögmundi og þingheimi þó ljóst
að fráleitt væri að spyrja hvernig Íslendingar
ætluðu að koma í veg fyrir ástandið. - kóþ / bþs
Utanríkisráðherra hefur sent utanríkisráðherra Ísraels bréf vegna helfararhótunar:
Hefur þungar áhyggjur af Palestínu
TZIPI
LIVNI
INGIBJÖRG SÓLRÚN
GÍSLADÓTTIR
DÓMSMÁL Tuttugu hafa verið
ákærðir fyrir þátt sinn í fjársvika-
máli hjá Tryggingastofnun sem
uppgötvaðist í júní 2006 og var í
kjölfarið kært til Ríkislögreglu-
stjóra.
Kona á fimmtugsaldri er ákærð
fyrir alvarlegustu brotin en hún
starfaði sem þjónustufulltrúi hjá
Tryggingastofnunun um árabil.
Hún er ákærð fyrir brot í opinberu
starfi og fjársvik. Hin nítján, níu
konur og tíu karlmenn, eru ákærð
fyrir að hylma yfir fjársvikin og til
vara fyrir peningaþvætti.
Eins og greint var frá í Frétta-
blaðinu 1. nóvember í fyrra dró
konan sér fé með því að taka það úr
bótasjóðum stofnunarinnar og bók-
færa það inn á nöfn ýmissa ein-
staklinga í formi endurgreidds
útlagðs kostnaðar. Fjármunirnir
fóru aldrei inn á reikninga þeirra
sem nafngreindir voru í bókhaldinu
heldur inn á reikninga vitorðs-
manna hennar, þeirra sem ákærðir
eru í málinu.
Með þessu blekkti konan gjald-
kera stofnunarinnar til að greiða
fólki að tilefnislausu tæplega 76
milljónir króna með samtals tæp-
lega 800 tilhæfulausum reikning-
um. Brotin sem ákært er vegna
voru framin frá 2. janúar 2002
fram að því að þau komust upp, 9.
júní 2006.
Fjórir, meðal annars sonur kon-
unnar, eru ákærðir fyrir að taka
þátt í fjársvikunum og fá hina
fimmtán til þess að samþykkja að
peningar yrðu lagðir inn á reikn-
inga þeirra. Sumir þeirra fengu
greidda þóknun fyrir að leyfa kon-
unni að nota bankareikningana.
Málið komst upp við hefðbundið
innanhússeftirlit hjá Trygginga-
stofnun. Fljótlega kom í ljós að
málið var mjög umfangsmikið og
var það kært til Ríkislögreglu-
stjóra í kjölfarið.
Björn Þorvaldsson, fulltrúi hjá
saksóknara efnahagsbrota hjá
Ríkislögreglustjóra, vildi ekki tjá
sig um í hvað peningarnir fóru sem
sviknir höfðu verið út þar sem ekki
hefur náðst að birta öllum ákæru
vegna málsins.
Ákæran verður þingfest 14.
mars í Héraðsdómi Reykjavíkur.
magnush@frettabladid.is
Tuttugu manns sæta
ákæru í fjársvikamáli
Kona á fimmtugsaldri er ákærð fyrir að svíkja út tæplega 76 milljónir króna hjá
Tryggingastofnun ríkisins. Nítján eru ákærðir fyrir að hylma yfir svikin, taka
þátt í þeim og þvætta peninga. Málið var nítján mánuði í rannsókn.
VENESÚELA, AP Ráðamenn bæði í Venesúela og
Ekvador sendu í gær fjölmennt herlið að landamær-
unum að Kólumbíu og mögnuðu þar með spennuna í
kjölfar þess að kólumbískir stjórnarhermenn vógu
einn af forsprökkum kólumbískrar uppreisnar-
hreyfingar innan landamæra Ekvador.
Hugo Chavez Venesúelaforseti hét því á sunnudag
að her Venesúela myndi bregðast hart við ef
Kólumbíumenn reyndu hliðstæða aðgerð við
landamærin að Venesúela. Hann sendi þúsundir
hermanna og skriðdreka að landamærunum, sagði
flughernum að vera í viðbragðsstöðu og boðaði
lokun sendiráðsins í Bogota.
Rafael Correa, forseti Ekvador, fyrirskipaði
sömuleiðis herliði að landamærunum og kallaði
sendiherra Ekvador heim frá Kólumbíu auk þess að
vísa kólumbíska sendiherranum úr landi.
„Við viljum ekki stríð, en við munum ekki líða
bandaríska heimsveldinu, sem er herra Kólumbíu,
... að sundra okkur,“ sagði Chavez í vikulegu
sjónvarpsávarpi til þjóðar sinnar á sunnudag.
Fídel Kastró, vinur Chavez á Kúbu, bætti um
betur í gær og lýsti yfir þessu: „Við heyrum skýrt
stríðslúðra hljóma í suðri álfu vorrar, sem afleið-
ingu þjóðarmorðsáforma Kanaheimsveldisins.“ - aa
VOPNAGLAMUR Ekvadorskir hermenn skunda um borð í
herþyrlu í Lago Agrio í NA-Ekvador í gær til að fljúga að landa-
mærum Kólumbíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Spenna eykst á milli grannríkja í norðanverðri Suður-Ameríku:
Herliði fylkt að landamærum
TRYGGGINGASTOFNUN Viðlíka mál hefur aldrei komið upp áður hjá Trygginga-
stofnun. Tryggingasvik hafa verið þekkt og komið öðru hvoru en ekki þannig
að starfsfólk stofnunarinnar eigi hlut að máli, að sögn Gunnars Þ. Andersen,
forstöðumanns eftirlits hjá Tryggingastofnun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VERKLAGI BREYTT EFTIR ATVIKIÐ
„Eftir að málið kom upp voru allar
verklagsreglur innan stofnunarinnar
endurskoðaðar,“ segir Gunnar Þ.
Andersen, forstöðumaður eftirlits
hjá Tryggingastofnun.
Starfshópur fór yfir hvað mætti
betur fara og skilaði skýrslu um
málið til stjórnenda. Annar starfs-
hópur var síðan skipaður til þess að
koma þeim tillögum í framkvæmd
sem lagðar voru til. „Þessi vinna
hefur gengið vel en vitaskuld má
alltaf gera betur í þessu eins og
öðru. Það verður aldrei hægt að
koma í veg fyrir að svona svik séu
möguleg. En skjót viðbrögð stofn-
unarinnar í kjölfar þessa máls hafa
fært hlutina til betra horfs.“
Nýtt kerfi hefur verið tekið í
notkun hjá Tryggingastofnun sem
eflt hefur öryggi verklags starfs-
manna og bætt vinnuskilyrði, að
sögn Gunnars.
NOREGUR Verði sumarið í ár álíka
hlýtt á norðurheimskautssvæðinu
og það var í fyrra er útlit fyrir að
hægt verði að sigla skemmtiferða-
skipi í fyrsta sinn alla leið á
Norðurpólinn. Þetta hefur norska
blaðið Aftenposten eftir Olav
Orheim, fyrrverandi yfirmanni
norsku heimskautarannsókna-
stofnunarinnar í Tromsö.
„Það er ekki svo að Norður-
Íshaf verði alveg íslaust. En verði
sumarið í ár álíka hlýtt og í fyrra
verður það trúlega íslaust alveg
frá Síberíu norður að pólnum,“
segir Orheim. Að hans mati eru
það samanlögð áhrif loftslags-
hlýnunar af mannavöldum og
hlýrra sumra sem valda hinni
hröðu ísbráðnun. - aa
Bráðnun norðurskautsíssins:
Hægt að sigla á
pólinn í sumar
ÍSINN HOPAR Norskur heimskautafræð-
ingur spáir siglingum á norðurpólinn.
NORDICPHOTOS/AFP
SAMGÖNGUR „Nú erum við færir í
flestan snjó,“ sagði Elliði Vignis-
son, bæjarstjóri Vestmannaeyja-
bæjar, kíminn þegar snjóblásari
og hjólaskófla komu til Eyja í gær.
Þótt hlutverk þeirra verði að halda
flugvellinum í góðu ástandi þó
snjó kyngi niður segir bæjar-
stjórinn að einnig muni hann
verða notaður til að ryðja vegi og
önnur svæði en eins og menn vita
lágu samgöngur niðri í Heimaey í
gær sökum snjóþyngsla. - jse
Snjóruðningstæki til Eyja:
Eyjamenn færir
í flestan snjó
VIÐSKIPTI Fyrirtækið Icelandic
Global Water áformar að reisa
vatnstanka í Helguvík á Reykja-
nesi og flytja vatn út með
tankskipum.
Sótt hefur verið um lóð í
Helguvík, en atvinnu- og hafnar-
ráð Reykjanesbæjar hefur óskað
eftir frekari upplýsingum um
málið áður en erindi Icelandic
Global Water verði svarað. Guðjón
G. Engilbertsson, einn forsvars-
manna fyrirtækisins, segir þetta
engin áhrif hafa á fyrirhugaðan
vatnsútflutning frá Vestmanna-
eyjum. Hann vildi að öðru leyti
lítið segja um fyrirætlanir með
lóðina í Helguvík. - bj
Vilja vatnstanka í Helguvík:
Áforma útflutn-
ing í skipum
Jón Viðar, er leikhúsið að fara
í hundana?
„Nei, en ef hún tekur köttinn sinn
með líka þá gæti leikhúsið farið í
hund og kött.“
Ragnheiður Elín Clausen, fyrrverandi
sjónvarpsþula, fer með hlutverk í leik-
ritinu L`effet de serge sem sýnt verður
á leiklistarhátíðinni Lókal í mars. Hund-
urinn hennar fer með henni á sviðið, en
hann leikur stórt hlutverk í sýningunni.
Jón Viðar Jónsson er leikhúsgagnrýnandi.
VIÐSKIPTI Gengi hlutabréfa í
Decode, móðurfélags Íslenskrar
erfðagreiningar, lækkaði um 14,6
prósent á bandaríska hlutabréfa-
markaðnum
Nasdaq í gær og
endaði í 2,51.
Gengið hefur
ekki verið lægra
í tæp fimm ár,
eða frá því 20.
maí 2003 þegar
það var 2,30
dalir á hlut.
Lækkunin í gær
er rakin til
uppsagna sextíu
starfsmanna
fyrir helgi og yfirlýsinga Kára
Stefánssonar forstjóra um
erfiðleika í fjármögnun vegna
aðstæðna á mörkuðum. Kári
segir þó Decode hafa tryggt
rekstrarfé til tveggja ára og að
áfram verði unnið að markmið-
um félagsins. - gar
Uppsagnir og lánsfjárkreppa:
Gengi Decode
ekki lægra frá
því árið 2003
KÁRI STEFÁNSSON
SPURNING DAGSINS