Fréttablaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 56

Fréttablaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 56
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Karenar D. Kjartansdóttur Í dag er þriðjudagurinn 4. mars, 64. dagur ársins. 8.24 13.40 18.56 8.12 13.24 18.38 Eitt sinn var ég á ferð með eldri manni um háhitasvæði. Ég horfði hugfangin út um bílrúðuna og dáðist að ósnortinni fegurð landsins þegar sá gamli fullyrti skyndilega að þarna yrði að virkja. Upphófust miklar rökræður en fljótlega sá ég að mér yrði aldrei ágengt í málinu þar sem hann svar- aði öllum mínum mótbárum á þá leið að ég myndi ekki eftir atvinnu- leysinu. FÁTÆKTIN nú ekur um á svörtum jeppa og býr í ríkmannlegu húsi en á ekkert nema skuldir í bankanum sem aldrei verða greiddar til fulls,“ sagði sá gamli og fullyrti að þessi fátækt tilheyrði kynslóðinni sem ekki myndi lengra aftur en árið 1991, þegar Davíð hélt út í Viðey ásamt Jóni Baldvini Hannibalssyni og myndaði ríkisstjórn, EES-samn- ingurinn var undirritaður og einka- væðing hófst og framsal afla- heimilda var gefið frjálst. Árið sem Íslendingar gerðu sig breiða á alþjóðavettvangi og viðurkenndu fyrstir þjóða sjálfstæði Litháens. Ég sagði gamla manninum að ég tengdi árið ekki við neitt annað en að það ár fengu Rokklingarnir gull- plötu. „Já, það er táknrænt fyrir þína kynslóð að muna bara eftir rugli. Þetta ár markaði tilbúning í íslensku samfélagi, til dæmis þessa vellu um umhverfismál sem á eftir að gleymast strax og fer að þrengja að bönkunum sem eru raunveru- legir eigendur alls glyssins í dag,“ fussaði gamli maðurinn fokillur. ÓSK gamla mannsins um að unga kynslóðin áttaði sig og missti áhugann á umhverfismálum virðist vera farin að rætast, sem og óskir hans um að það áttaði sig á mikil- vægi bankanna í þeirra lífi. Bank- arnir gáfu okkur vonir og stóðu við fyrirheit sín um að við myndum eignast hús og bíl á mettíma og án allrar fyrirhafnar sem sparnaður og smjaður við bankastjóra útheimtir. Nú er svolítið síðan ég heyrði þá auglýsa að aukakrónurn- ar komi bara. Danir eru fullir Þórð- argleði. „Við sögðum fyrir tveimur árum að þetta myndi gerast,“ segja þeir glaðbeittir og líta algerlega framhjá því að þá átti verðmæti bankanna eftir að aukast um þriðjung. Í vonleysinu sem bankaumræðan veldur mér finnst mér gott að geta flett gömlum tölublöðum af ABC og Æskunni frá árinu 1991, sem mark- aði upphaf uppgangs á Íslandi og fyrirheita um að allt gæti orðið meira. Sérstaklega finnst mér gaman að skoða bréfin frá börnun- um í Nígeríu sem óskuðu eftir íslenskum pennavinum. Þarna voru Nígeríusvindlarar samtímans að stíga sín fyrstu skref í átt að ríki- dæmi. Bankaþankar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.