Fréttablaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 54
34 4. mars 2008 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. slitna 6. klukka 8. krá 9. veiðar-
færi 11. ekki heldur 12. bragsmiður
14. högg 16. bardagi 17. gljúfur 18.
almætti 20. hljóta 21. nabbi.
LÓÐRÉTT
1. áfengisblanda 3. í röð 4. sand-
grynning 5. viður 7. starfræksla 10.
fjör 13. háttur 15. hestur 16. temja
19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. mást, 6. úr, 8. bar, 9. net,
11. né, 12. skáld, 14. spark, 16. at, 17.
gil, 18. guð, 20. fá, 21. arða.
LÓÐRÉTT: 1. púns, 3. áb, 4. sandrif, 5.
tré, 7. rekstur, 10. táp, 13. lag, 15. klár,
16. aga, 19. ðð.
Auglýsingasími
– Mest lesið
„Humarhúsið er æðislega
gott. Ég hef oft fengið mér
hádegisverð þar. Þeir eru til
dæmis með frábæra fiskrétti og
með folaldakjöt sem er alveg
svakalega fínt.“
Óttar Felix Hauksson, plötuút-
gefandi.
„Já, ég er auðvitað mjög ánægður
með að fólk skuli taka svona vel
undir það sem ég hef verið að
gera,“ segir Arnaldur Indriðason
rithöfundur.
Þó umdeilanlegt sé hvort yfir-
leitt sé hægt að keppa í listum er
óhætt að segja að Arnaldur beri
höfuð og herðar yfir aðra rithöf-
unda á Íslandi og er þá ekki bara
verið að vísa í sölutölur. Í könnun
Fréttablaðsins sem gerð var 23.
febrúar var einfaldlega spurt:
„Hvern telur þú vera besta núlif-
andi rithöfund landsins?“ Hringt
var í 800 manns á kosningaaldri
sem skiptist jafnt eftir kyni og
hlutfallslega eftir búsetu. Svar-
hlutfall var 62 prósent og niður-
staðan er afgerandi. Arnaldur
nýtur fáheyrðra yfirburða en alls
nefndu 38,7 prósent þeirra sem
afstöðu tóku Arnald sem besta rit-
höfund þjóðarinnar. Vinsældir
hans deilast nokkuð jafnt sé litið
til þess hvaða stjórnmálaflokka
svarendur styðja. En heldur á
hann meira inni hjá konum en
körlum því tæp 42 prósent kvenna
nefna Arnald en um 35 prósent
karla. Næstur í röðinni er Einar
Már Guðmundsson en hann nefna
7,7 prósent. Í þriðja sæti kemur
svo Einar Kárason með 6,3 pró-
sent. Mun fleiri karlar telja Einar
Kárason bestan eða tíu prósent
aðspurða en aðeins tvö prósent
kvenna.
„Ég hef fundið þennan stuðning
í gegnum árin og er afskaplega
glaður með hann. Ég hef alltaf
sagst vera að skrifa fyrir íslenska
lesendur fyrst og fremst. Og þeir
hafa alltaf sýnt mér mikla virð-
ingu,“ segir Arnaldur sem nú
vinnur að næstu bók í seríunni um
Erlend lögregluforingja. Arnaldur
sendi frá sér bók um Erlend fyrir
síðustu jól, Harðskafa, sem hlaut
gríðarlega góðar viðtökur. Seldist
bókin hátt í á 30 þúsund eintök.
Sé könnunin skoðuð nánar virð-
ist sem almenningur gefi lítið
fyrir álit bókmenntaelítunnar, ef
svo má að orði komast, og standi
með sér og smekk sínum. Þannig
vermir Sigurður Pálsson, sem
sæmdur var Íslensku bókmennta-
verðlaununum í síðasta mánuði,
neðsta sætið ásamt reyndar fleiri
höfundum með 0,2 prósent. Harð-
skafi var ekki svo mikið sem til-
nefndur. Eini höfundurinn sem til-
nefndur var til verðlaunanna og
nýtur jafnframt þeirrar virðingar
meðal almennings að komast á
topp tíu lista er Vigdís Grímsdótt-
ir.
Nánar verður greint frá könn-
uninni í helgarblaði Fréttablaðs-
ins. jakob@frettabladid.is
NÝ KÖNNUN: FÁHEYRÐIR YFIRBURÐIR METSÖLUHÖFUNDAR
Arnaldur besti rithöfundurinn
ARNALDUR INDRIÐASON Tæp 40 prósent telja hann besta núlifandi rithöfund lands-
ins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Andra Freys Viðarssonar er sárt saknað úr
útvarpinu, enda var þáttur hans og Búa
Bendtsen, Capone, skemmtilegasti morgun-
þátturinn allt þar til útvarpsstöðin XFM fór á
hausinn. Nú geta aðdáendur Andra Freys
andað léttar því hann er snúinn aftur í fjöl-
miðla, reyndar á allt öðrum fjölmiðlavettvangi
en áður.
„Ég er orðinn blaðamaður, skrifa í Dag-
skrána, sem er eitt víðlesnasta tímarit lands-
ins,“ segir Andri Freyr, borubrattur að vanda.
„Þetta er frábært starf, ég er að skrifa um
sjónvarpsdagskrána og svo kem ég stundum
með eitthvað sjálfur. Þetta starf býður upp á
gríðarlega mikla möguleika. Það er alveg pláss
fyrir smá attitjúd en samt ekkert of mikið. Það
má ekki hneyksla fólk upp úr skónum þegar
það er að lesa Dagskrána á klósettinu.“
Engin útvarpsstöð hafði vit á því að fá Andra
Frey yfir til sín og hann tekur því þungt. „Það
voru allir alltaf að segja að ég væri vinsælasti
útvarpsmaður landsins og svo voru bara allar
dyr lokaðar. Ekki það að ég hafi sótt einhvers
staðar um, en ég hélt í fávisku minni að síminn
myndi ekki stoppa. Það halda margir að ég sé
byrjaður á Flass, en svo er ekki. Þeir eru bara
með einhvern sem er með alveg eins rödd og
ég. Búi er aftur á móti orðinn aðalkarlinn hjá
Securitas og er í fínum málum þar.“
Andri var í Kolaportinu á sunnudaginn að
selja yfirfallið af dótinu sínu – „Það gekk
ágætlega, ég fékk 28 þúsund kall í vasann.
Stefnan er tekin á Danmörku um miðjan
þennan mánuð. Framtíðin er Danmörk og
Dagskráin. Ég held bara áfram að skrifa í það
þótt ég fari út. Svo er það kvikmyndanám í
haust en ég ætla bara að dingla mér eitthvað
fram að því. Þegar Balti drepst get ég svo
komið aftur heim og tekið við. Mitt fyrsta verk
þegar ég kem út verður að fá mér svona
græna úlpu og Timberland-skó eins og hann er
alltaf í.“ - glh
Framtíðin er Danmörk og Dagskráin
KEMUR HEIM OG TEKUR VIÐ AF BALTA Andri Freyr er á
leiðinni til Danmerkur.
Ágústa Eva Erlendsdóttir verð-
ur með Þorsteini Guðmunds-
syni á skjánum þegar þætt-
irnir Svalbarði hefja göngu
sína á Skjá einum um næstu
mánaðamót. „Hún hefur
unnið að þessu með mér í
nokkra daga núna, í hug-
myndavinnu og öðru.
Hún stendur að þættin-
um með mér, ásamt
Sindra Páli Kjartans-
syni,“ útskýrir Þor-
steinn, en hugmyndin
að þættinum er frá
honum og Sindra
komin og hefur
verið í fæðingu í um
eitt ár.
Þorsteinn segir ekki
búið að negla form
þáttarins niður. „Það
verður einhver
verkas kipting hjá
mér og Ágústu, en
við eigum eftir að
finna hana út
betur. Hún á
eftir að gera
eitthvað
óvænt og ég
held að
fólk megi
búast við
því að hún
sýni á sér
nýjar hlið-
ar,“ segir
Þorsteinn
dularfullur.
Svalbarði verður í formi spjall-
þáttar með ýmiss konar innslög-
um. Þorsteinn hefur áður nefnt
þætti Jay Leno til samanburðar,
en sá háðfugl er þekktur fyrir að
hefja þáttinn á uppistandi. Þor-
steinn segist ekki útiloka að eitt-
hvað verði um uppistand hjá
honum. „Ég geri það kannski á
einhvern hátt. Ég hugsa að minnsta
kosti að það verði erfitt að stoppa
mig af í að rífa kjaft við fólk,“
segir hann og hlær við.
Tökur á Svalbarða eru ekki
hafnar, en Þorsteinn segir aðstand-
endur hans nú huga að kynningar-
málum. „Við erum með sæg af
hugmyndum, en það er heilmikið
púsluspil að koma svona þætti á
laggirnar,“ segir Þorsteinn.
Ágústa Eva með Þorsteini í Svalbarða
ÚTILOKAR EKKI UPPISTAND Þorsteinn
Guðmundsson segir það líklegra en ekki
að uppistand muni læðast inn í þáttinn.
MEÐ Í SVAL-
BARÐA Ágústa
Eva Erlends-
dóttir snýr
aftur á skjáinn
í spjallþætti
Þorsteins Guð-
mundssonar.
Bloggarinn Gauk-
ur Úlfarsson hefur
ákveðið að áfrýja dómi
héraðsdóms um
skaðabótagreiðslu
hans til Ómars R.
Valdimarssonar
upplýsingafull-
trúa. Það þýðir að
nokkrir mán-
uðir munu líða þar til endanleg
niðurstaða liggur fyrir í málinu.
Vinir og kunningjar Gauks hafa
aftur á móti þegar lagt á ráðin um
hvernig afla eigi fjár fyrir skaðabót-
unum ef allt fari á versta veg. Þeir
hyggjast halda styrktartónleika sem
fengið hafa vinnuheitið „Aur fyrir
Ómar“.
Söngvarinn Morten Harket
úr norsku sveitinni Aha
hefur verið hér á landi
undanfarna daga. Fyrir
helgi dúkkaði hann
upp í viðtali hjá Ívari
Guðmundssyni á Bylgj-
unni en helginni eyddi
kappinn í upptökur á
næstu sólóplötu sinni.
Upptökur fóru fram undir
styrkri stjórn upptöku-
mannsins Adda 800 í
hljóðveri hljómsveitarinnar
Leaves. En þegar tækifæri
gafst til lét Harket sjá sig á götum
bæjarins. Hann spókaði sig meðal
annars í Vesturbæjarlauginni við
hlið laganemans Helgu Völu
Helgadóttur. „Hann lítur alveg
nákvæmlega eins út og hann gerði
fyrir hundrað árum,“ skrifar Helga
uppnumin á blogg sitt.
Þó fylgið við Framsóknarflokk-
inn glæðist lítt hér á landi heldur
flokkurinn sínu á Kanaríeyjum meðal
Íslendinga sem þar búa. Guðni
Ágústsson formaður flokksins er
nú á leið á Klörubar og ætlar að
efna til fjöldafundar þar með sínum
mönnum 12. mars. Fréttablaðið
hefur áður greint frá ferðum Guðna
þar sem hann blæs sólbökuðum
stuðningmönnum sínum á Kanarí
baráttuanda í brjóst
og þá mættu um og
yfir 100 manns til að
hlusta á Guðna en
ákveðið hefur verið
að taka fundinn
upp á vídeó.
-hdm/jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI