Fréttablaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 45
ÞRIÐJUDAGUR 4. mars 2008 25 Þjóðminjasafnið býður upp á áhugaverða framsögu kl. 12.05 í dag. Þór Magnússon, fyrrverandi þjóðminjavörður, rekur þá varð- veislusögu sérstæðra útskorinna myndfjala sem eru til sýnis í Bogasal Þjóðminjasafnsins. Talið er að fjalirnar séu úr dómsdags- mynd sem prýddi vesturvegg Hóla- dómkirkju á 12. öld. Fjalirnar eru oftast kenndar við bæinn Bjarnastaðahlíð í Skagafirði en þaðan komu þær til Þjóð- minjasafnsins árið 1924. Að Bjarnastaðahlíð höfðu þær komið frá bænum Flatatungu og þangað höfðu ýmsir fræðimenn gert sér ferð á 19. öld til að skoða þær. Þegar fjalirnar komu til Þjóðminjasafnsins voru þær orðnar mjög fúnar. Engin þeirra er í upphaflegri lengd, sumar eru aðeins smástúfar nú, en nokkrar halda upphaflegri breidd. Allar voru þær notaðar sem húsaviður og hefur það eflaust bjargað þeim frá glötum. - vþ Merk saga myndfjala ÞÓR MAGNÚSSON Fyrrverandi þjóðminjavörður eys úr viskubrunnum sínum í dag. Útvarpsþátturinn uppátækjasami, Hlaupanótan, sem er á dagskrá Rásar 1 alla virka daga, efnir til hringitónakeppni í samstarfi við sím- fyrirtækið Vodafone. Óskað er eftir frumsömdum hringitónum af öllum stærðum og gerðum, hljóðum og óhljóðum. Þó er skilyrði fyrir þátttöku í keppninni að hringitónninn sé eigið höfundarverk þáttakandans, en ekki „fenginn að láni“. Hægt verður að senda inn tóna til 19. mars næstkomandi á netfangið hlaupanotan@ ruv.is eða á geisladisk merktum Hlaupanótunni, Rás 1, Efstaleiti 1, 150 Reykjavík. Verðlaunin fyrir hringitóna sem þykja skara fram úr eru tónlistarsímar og inneign í tónlistarverslun Voda- fone. Að auki verður úrval innsendra hringitóna leikið í Hlaupanótunni í apríl og fáanlegt á síðu Vodafone. Því er núna lag fyrir tónelska tækninirði að galdra nokkra hringitóna fram úr erminni og taka þátt í þessarri skemmtilegu keppni. - vþ Lumar þú á hringitóni? Kvikhljóð er yfirskrift fremur óvenjulegra tónleika sem fara fram í Tíbrá, tónleikaröð Salarins, í kvöld. Þar koma fram tónskáldið og flautuleikarinn Þuríður Jónsdóttir, fiðluleikarinn Una Sveinbjarnardóttir og kontrabassaleikarinn Borgar Magnason, ásamt verkum mynd- listarkvennanna Bjarkar Viggósdóttur, Ólafar Nordal, Mireyu Samper og Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur. Þær Ólöf, Björk og Ásdís leggja til hver sitt myndbandsverk við tónlist eftir Þuríði. Þá verður frumflutt verk Þuríðar sem nefnist „Leiksýning um veruleikann þegar fellur út í birtingu“ sem Mireya Samper hefur gert leikmynd fyrir. „Við Ólöf þekkjumst vel og höfðum átt gott samstarf að verkinu Selmær,“ segir Þuríður, spurð um tilurð þessara sérstöku tónleika. „Þannig varð til sú hugmynd að vinna með fleiri myndlistarmönnum að sköpun tón- og myndverka. Ég hafði því samband við hinar myndlistarkonurnar, sem eru allar að gera spennandi hluti á sínu sviði, og úr varð þessi viðburður.“ Þuríður telur tónleikana vel til þess fallna að vekja athygli á nútímatónlist. „Fólk virðist hafa meiri áhuga á að sækja klassíska tónleika og nútímatónlistin verður svolítið útundan. Með því að tvinna saman listgreinar á þennan hátt náum við vonandi að fanga athygli stærri hóps en ella.“ Á tónleikunum verður ekki einungis leikin tónlist eftir Þuríði heldur eru líka á efnisskránni þrjú verk eftir Salvatore Sciarrino, sem er líklega þekktasta núlifandi tónskáld Ítala. „Ef tekið er tillit til þess hve stórt nafn hann er innan nútímatónlistarheimsins er merkilegt hversu sjaldan verk hans eru leikin hér á landi,“ segir Þuríður. „Hann er að mestu leyti sjálfmenntað tónskáld og hálf- gerður endurreisnarmaður, afar fróður um ótrúlegustu hluti. Hann hefur mikið unnið með hljóð- færaleikurum að því að skapa nýja tækni og nýjan tónheim fyrir hljóðfærin þeirra. Form verka hans er oft æði sérstakt og hefur fólk gjarnan kallað þau tónskúlptúra enda stundum erfitt að fella þau í hefðbundna tónverkabása.“ Þrátt fyrir að tónskáldin tvö komi úr ólíkum áttum segir Þuríður verk Sciarrinos falla vel að dagskrá kvöldsins. „Ég bjó á Ítalíu í sextán ár við nám og störf og er því undir nokkrum áhrifum frá þarlendu tónlistarlífi og þá að sjálfsögðu Sciarrino líka. Tónlist hans passar því vel saman við annað sem í boði verður í kvöld.“ Tónleikarnir hefjast kl. 20 og er miðaverð 2.000 kr. vigdis@frettabladid.is Samtal milli listgreina ÞURÍÐUR JÓNSDÓTTIR OG MIREYA SAMPER Tvær þeirra listakvenna sem taka þátt í dagskrá í Salnum í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.