Fréttablaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 46
26 4. mars 2008 ÞRIÐJUDAGUR
folk@frettabladid.is
Lögmaður Ingu Birnu
Dungal hefur sent Birtingi
kröfu um skaðabætur vegna
mynda sem birtust af Ingu
Birnu og Tarantino í Séð og
heyrt þar sem farið er fram
á eina milljón í skaðabætur
vegna birtingarinnar.
„Ég tel að þetta sé klárt brot á
höfundarrétti umbjóðanda míns.
Bolt inn er hjá Birtingi,“ segir
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
lögmaður Ingu Birnu Dungal. Hann
hefur sent útgáfufyrirtækinu
Birtingi bréf þar sem farið er fram
á eina milljón í skaðabætur vegna
birtingar mynda sem Séð og heyrt
tók af myspace-síðu hennar og birti
í blaði sínu. Myndirnar voru af Ingu
Birnu og leikstjóranum Quentin
Tarantino en Fréttablaðið hefur
greint frá málinu að undanförnu.
Auk skaðabóta, sem eru vegna
brots á sæmdarrétti, einkarétti,
ólögmætrar eintaka gerðar, birting-
ar og notkunar á verkum höfundar,
er gerð krafa um afsökunarbeiðni.
Við bætist krafa um lögmanns-
kostnað samtals 373.500 krónur.
Skorað er á Birting að verða við
kröfum eigi síðar en 7. mars.
Bréf Vilhjálms er
mjög ítarlegt og og
ljóst að ekki þarf að
gera á því miklar
breytingar svo það
nýtist sem stefna.
Er það með ráðum
gert:
„Ef þeir ætla ekki að
fallast á þetta verður
málið þingfest í
þessum mánuði.
Það er ekkert
flóknara en svo,“
segir Vilhjálmur
og telur málið
liggja ljóst
fyrir.
Ef orðið
verður við
kröfum Ingu
Birnu er ljóst
að um einhverjar dýrustu
ljósmyndir Íslands sögunnar er að
ræða. Reyndar er ekki að heyra á
þeim Séð og heyrt-mönnum að líkur
séu til þess. Eiríkur Jónsson
ritstjóri segir reyndar málið sem
slíkt ekki á þeirra könnu heldur
lögmanna fyrirtækisins.
„Þetta er bara vitleysa. Við
erum með öll tölvupóst-
samskipti við þessar dömur,
drottningar nætur lífsins, því
til staðfestingar að þetta var
allt með fullu samráði.“
Eiríkur segir að
ekki þurfi lengi
að skoða myndir
af skemmtana-
lífinu til að
rekast á
myndir af
Ingu Birnu
og vin -
konum.
„Þær
forðast
ekki
ljósmyndara þegar þær eru að
skemmta sér. Svo hafa þær kveikt á
perunni þegar spurðist að News of
the World hefði áhuga á myndunum.
En það varð aldrei að þær birtust
þar. Nú vill Vilhjálmur einhver
Hollywoodverð fyrir þessar myndir
sem ekkert eru. Hér er verið að
snúa veruleikanum á haus.“
Atli Már Gylfason blaðamaður
segist ekki hafa brotist inn á
myspace-síðuna umræddu enda
það ekki á hans færi. „Hún bauð
mér að gerast vinur svo ég gæti
nálgast myndirnar í fullri upplausn.
Hún á 700 vini á MySpace og allir
þeir geta nálgast myndirnar. Við
áttum nægar myndir en hún vildi
koma tveimur myndum á framfæri
en þar lítur hún betur út. Við erum
að fá í bakið að hafa unnið þetta í
fullu samráði við Ingu Birnu og
vinkonur,“ segir Atli Már sem ekki
er lengur my-space-vinur Ingu
Birnu. „Nei, hún vill ekki vera
vinur minn lengur.“
jakob@frettabladid.is
Vilja milljón fyrir partímyndir
VINKONURNAR INGA BIRNA OG BIRGITTA INGA Að sögn Eiríks Jónssonar forðast þær
ekki sviðsljósið á næturlífinu.
Þjóðir Evrópu hamast nú við að
velja lögin sín í Eurovision og um
helgina bættust fjögur lög við.
Finnar senda þungarokksbandið
Teräsbetoni sem spilar Iron
Maiden-legan slagara. Hljóm-
sveitarnafnið þýðir „stálstyrkt
steypa“ og hljómsveitin hefur
gefið út tvær plötur til þessa og
selt vel af í Finnlandi. Bretar
senda nauðrakaða blökkumanninn
Andy Abraham sem syngur
sálarpopplag. Andy vann lengi
sem ruslakarl en reis upp úr
öskustónni þegar hann tók þátt í
X-factor og varð annar. Frá
Lettlandi kemur sönghópurinn
Pirates of the Sea sem klæðist
sjóræningjafötum með króka,
leppi og allar græjur og syngur
dúndrandi evrópopplag sem mun
hljóma kunnuglega fyrir Íslend-
inga. Viðlagið er „We‘re the hæ hæ
hó we‘re the hæ hæ hey“. Fjórða
lagið sem bættist við eftir helgina
er frá Georgíu. Þaðan kemur
blinda söngkonan Diana Gurtskaya
sem syngur með kolsvört
sólgleraugu enn einn friðarsönginn
á ensku: „Peace will come“.
Nú hafa 32 lög verið valin en
lögin 11 sem vantar upp á verða
kosin á næstu vikum. Síðastir til
að velja eru Svíar og Svartfellingar,
sem velja sín lög 15. mars.
Þungarokkarar, ruslakarl, blind
söngkona og sjóræningjar
ÓFRÝNILEGIR Í EUROVISION Finnska
þungarokksbandið Teräsbetoni.
81 DAGAR TIL STEFNU
EIRÍKUR Hér er
verið að snúa
veruleikanum á
haus.
„Á síðasta ári hringdi
umboðsmaðurinn minn og sagði
„Þér hefur boðist risasamningur. Það
er sem andlit
Viagra.“ Og
ég sagði
bara, „Fyrir-
gefðu, en það
er djöfuls
móðgun.“
SIMON COWELL
TEKUR EKKI HVERJU
SEM ER.
„Að eignast barn er augljóslega
skuldbinding til lífstíðar. Ég myndi
þurfa að vera algjörlega viss um að
ég væri á þannig stað að ég gæti ein-
beitt mér algjörlega og hellt mér út í
það starf að vera mamma einhvers,
því það er nógu erfitt að eiga hvolp.“
MARIAH CAREY EINBEITIR SÉR ENN
„Ég lendi á skrýtnum, klikkuðum strák-
um. Ég sé fullt af „Avril, gifstu mér!“
skiltum. Ég hef séð aðdáendur sem
hafa látið húðflúra andlitið mitt á
sig, eða fá sér eins húðflúr og ég.
Konur hafa sagt mér að þær hafi
skírt dætur sínar í höfuðið á mér.“
AVRIL LAVIGNE STÆRIR SIG AF ÞVÍ AÐ EIGA
SKRÝTNARI AÐDÁENDUR EN EIGINMAÐURINN,
DERYCK WHIBLEY ÚR SUM 41.
Vinningshafar síðustu viku
Ekki missa af
Skólahreysti
kl. 20.00
á Skjá einum.
Hver sigrar
í kvöld?
www.ms.is
Aðalstyrktaraðili
Skólahreystis
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar