Fréttablaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 6
6 4. mars 2008 ÞRIÐJUDAGUR
DÓMSMÁL Níu karlmenn voru sak-
felldir fyrir brot á höfundaréttar-
lögum í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. Þeir dreifðu höfundaréttar-
vörðu efni til annarra á internetinu
í gegnum DC++ skráarskiptiforrit.
Höfuðpaurinn hlaut þrjátíu daga
skilorðsbundið fangelsi. Ákvörðun
refsingar hinna var frestað og
fellur niður ef þeir halda skilorð í
tvö ár. Þetta er fyrsti dómur sem
fellur á Íslandi í máli sem varðar
ólöglega dreifingu á efni í gegnum
internetið.
„Ég held alveg örugglega að
þessu verði áfrýjað,“ segir Brynjar
Níelsson, verjandi fimm sak-
borninganna. „Það eru alls konar
sjónarmið í þessu og eins gott að fá
almennilega niðurstöðu í þetta.“
Málið kom upp í september 2004
þegar lögregla leitaði í húsum tólf
manns og gerði tölvur þeirra upp-
tækar. Mennirnir voru allir
notendur á íslensku skráarskipti-
svæði þar sem þeir skiptust á kvik-
myndum, tónlist, forritum, sjón-
varpsþáttum og öðru efni.
Húsleitin var gerð í kjölfar kæru
sem Smáís, Samtök myndrétthafa á
Íslandi, ásamt fleiri höfundaréttar-
samtökum, lagði fram á hendur
mönnunum í febrúar 2004.
Í kjölfar húsleitarinnar upphófst
rannsókn lögreglunnar á tölvubún-
aðinum. Henni lauk með því að
ríkislögreglustjóri gaf út ákæru á
hendur mönnunum í október í
fyrra. Í dómsúrskurði kemur fram
að „öll rannsókn málsins hafi verið
mjög tímafrek.“ Tekið var tillit til
þess við ákvörðun refsingar í
málinu.
Mennirnir voru allir dæmdir
fyrir að dreifa höfundaréttarvörðu
efni án leyfis rétthafa í gegnum
DC++ forrit. Sá sem hlaut þyngstu
refsinguna var þess utan dæmdur
fyrir að hafa stofnað svokallaðan
tengipunkt, sem hinir notuðu til að
skiptast á gögnum, og hýst hann
heima hjá sér.
Án tengipunktsins hefðu hinir
ekki getað dreift efninu á þann hátt
sem þeir gerðu, segir í niðurstöðu
dómsins. Því fékk hann þyngri dóm
en hinir.
Auk refsingarinnar voru sak-
borningarnir látnir greiða verjend-
um sínum málsvarnarlaun, samtals
um tvær og hálfa milljón króna.
Tölvubúnaður þeirra, sem var hald-
lagður í húsleitunum árið 2004, var
einnig gerður upptækur.
Náði það ekki aðeins til hörðu
diskanna sem geymdu gögnin
heldur einnig lyklaborða, tölvu-
músa, mótalda, skjáa, millistykkja,
snúra og annars búnaðar.
salvar@frettabladid.is
Níu sekir í DC++ máli
en dómarnir vægir
Níu manns hafa verið dæmdir fyrir að dreifa höfundaréttarvörðu efni á
internetinu. Höfuðpaurinn hlaut 30 daga skilorðsbundið fangelsi en ákvörðun
refsingar hinna var frestað. Örugglega áfrýjað, segir verjandi fimm mannanna.
Í HÉRAÐSDÓMI Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður ræðir við tvo af
sakborningum í málinu. Þeir voru fundnir sekir en engum gerð refsing utan einum,
sem hlaut þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi. Tölvubúnaður mannanna var einnig
gerður upptækur en lögregla lagði hald á hann árið 2004. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Ég er ekki sáttur við þennan dóm, mér finnst hann of þungur þar sem ég
tel mig ekki vera sekan í þessu máli,“ segir Jóhannes Páll Sigurðsson, einn
þeirra sem var sakfelldur í héraðsdómi í gær. „Mér finnst bara of mikið af
göllum í málinu til að það sé hægt að dæma í því.“
Aðspurður hvaða galla hann eigi við nefnir hann ónákvæma ákæru,
langan rannsóknartíma lögreglu og vafasama notkun tálbeitu til upplýsinga-
öflunar um sakborningana. „Ég á eftir að ráðfæra mig betur við lögfræðinga
en ég hugsa að þessu verði áfrýjað til Hæstaréttar.“
Jóhannes Páll Sigurðsson, einn hinna sakfelldu:
OF MARGIR GALLAR Á MÁLINU
■ Í dómsúrskurðinum kemur fram að rannsókn málsins
hafi verið mjög tímafrek.
■ Til dæmis hafi þurft að flokka allt efni sem gert var
upptækt, alls rúmlega fjórtán þúsund gígabæti. Það sam-
svarar um þrjú þúsund DVD-diskum fullum af efni.
■ Flokkunin fólst í því að opna allar skrár og skoða þær.
Kvikmyndir og sjónvarpsþættir, um fimmtán þúsund
talsins, allt þetta var skoðað. Stikkprufur voru teknar af
tónlist.
■ Að þessari flokkun unnu fjórir starfsmenn lögreglunnar. Sátu þeir við í
marga mánuði, segir í dómnum.
■ Áður en hægt var að flokka efnið þurfti að flytja það á harða diska í eigu
lögreglunnar. Sú afritun tók átta mánuði. Undir eðlilegum kringumstæðum
ætti slík afritun ekki að taka mikið lengri tíma en viku.
■ Björn Þorvaldsson hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra segir tækni-
lega örðugleika hafa valdið þessari miklu seinkun á rannsókninni.
HORFÐU Á MYNDBÖND MÁNUÐUM SAMAN
GETA NÚ FARIÐ Í
SKAÐABÓTAMÁL
„Ég er bara ljómandi ánægð-
ur með að heyra þetta,“ segir
Snæbjörn
Steingrímsson,
framkvæmda-
stjóri Samtaka
myndrétthafa á
Íslandi, Smáís.
Samtökin voru
meðal þeirra
sem lögðu
fram upphaf-
legu kæruna
á hendur
mönnunum
vegna dreifingar
á efni í gegnum
DC++ kerfið.
„Við vorum búnir að gera okkur
grein fyrir að það yrðu ekki veru-
legar refsingar í þessu máli, meðal
annars vegna þess hversu langan
tíma rannsóknin tók. Aðalatriðið
fyrir okkur er að fá niðurstöðuna.“
Hann segir nú hafa opnast fyrir
möguleika á skaðabótamáli á
hendur mönnunum sem sakfelldir
voru. „Sektin liggur fyrir og núna er
það okkar að sækja þessa menn
ef við svo kjósum. Við eigum
bara eftir að ræða það,“ segir
Snæbjörn.
SNÆBJÖRN
STEINGRÍMSSON
522 44 00 • www.hertz.is
10% af leigu kvenna í styrktarsjóð
UNIFEM til afnáms ofbeldis gegn konum.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
13
61
0
2/
08
VORTILBOÐ 3.–6. MARS
+ Nánari upplýsingar og bókanir á
www.icelandair.is eða í síma 50 50 100
* Innifalið í verði: Flug, flugvallarskattar og gjöld. Ferðatímabil: 1.–30. apríl.
MINNEAPOL
IS
ST.-PAUL
Verð frá 18
.800 kr.*
SVEITARSTJÓRNIR Oddvitar meiri- og
minnihluta í hreppsnefnd Rangár-
þings ytra sækja um sömu atvinnu-
lóðina á Hellu. Sýslumaður verður
að draga um hvor hreppir lóðina.
Þorgils Torfi Jónsson, sjálfstæð-
ismaður og oddviti hreppsnefndar,
sótti í febrúar um lóðina sem er
við hlið Sláturhússins á Hellu sem
hann er einn eigenda að. Þorgils
Torfi segist vilja tryggja slátur-
húsinu viðbótarrými til framtíðar.
Lóðin hafi verið árum saman á
skipulagi.
Eftir að Þorgils Torfi lagði inn
umsókn sína sótti oddviti minni-
hlutans í hreppsnefnd, framsókn-
armaðurinn Ólafur E. Júlíusson,
einnig um lóðina. Ólafur rekur
fyrirtæki í byggingariðnaði.
„Mínu félagi vantar litla þjón-
ustu- og verslunarlóð á Hellu og
þessi lóð hentar okkur mjög vel,“
segir Ólafur sem hafnar því að
hann sé eingöngu að bregða fæti
fyrir andstæðing í hrepps-
nefndinni. „Ekkert frekar en hann
fyrir mig. Okkur vantar einfald-
lega aðsetur. Það verður fleira í
þessu húsi sem ég gef ekki upp á
þessu stigi,“ segir Ólafur.
Þorgils Torfi segir að Ólafur
hefði getað sótt um mun betri lóð
við ána handan þjóðvegarins. „Ein-
hverra hluta vegna er sláturhúsið
svo áhugavert að hann velur sér
að vera alveg utan í því. Þetta
snýst bara um það að ég er oddviti
meirihlutans og hann er oddviti
minnihlutans,“ segir hann. - gar
Sérkennileg staða í hreppsnefnd Rangárþings ytra vegna lóðaúthlutunar á Hellu:
Sýslumaður dregur á milli oddvita
SÖFNUN Fiðrildavika UNIFEM er
hafin og stendur til laugardags.
Meginmarkmiðið er að safna fé og
vekja fólk til vitundar um þau
skaðlegu áhrif sem kynbyndið
ofbeldi á stríðstímum hefur á líf
milljóna kvenna víða um heim,
einkum í Afríku.
Fiðrildasöfnunin er stærsta
fjáröflun UNIFEM hérlendis til
þessa. Peningarnir sem safnast
renna til verkefna í Súdan,
Lýðveldisins Kongó og Líberíu.
Styrktarsjóður UNIFEM hefur
veitt yfir 19 milljónum dala tli 263
verkefna í 115 löndum frá stofnun
1997. Landsbankinn og Eimskip
eru bakhjarlar söfnunarinnar. - ghs
Fiðrildavika UNIFEM er hafin:
Afnema ofbeldi
gegn konum
ÓLAFUR E.
JÚLÍUSSON
ÞORGILS TORFI
JÓNSSON
KJÖRKASSINN
Ert þú hlynnt(ur) því að að
reykingar verði leyfðar á
afmörkuðum svæðum á veit-
inga- og skemmtistöðum?
JÁ 35,0%
NEI 65,0%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Eiga Íslendingar sjálfir að
framleiða matvælin sem þeir
þurfa?
Segðu skoðun þína á vísir.is