Fréttablaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 14
14 4. mars 2008 ÞRIÐJUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
■ Maurildi
er ljósfyr-
irbæri í
hafinu sem
stafar af líf-
ljómun frá
einfrum-
ungum
sem nefnast á fræðimáli Noctilu-
ca sem þýðir bókstaflega „nætur-
ljós“. Þetta eru skoru þörungar,
einfrumungar af einum ættbálki
svipunga. Ljósblossinn sem
þessir einfrumungar gefa frá sér
verður vegna efnahvarfa fosfór-
sameinda. Efnahvörfin örvast
vegna hafróts, til dæmis í brimi,
og oft má sjá fallega ljósadýrð
þessara þörunga þegar skyggja
tekur.
Í NÁTTÚRUNNI:
LOGANDI MAURILDI
Þetta er náttúrulega
skandall
„Það má líkja íbúðalánum
með endurskoðunarákvæði
við lán með breytilegum
vöxtum.“
INGÓLFUR H. INGÓLFSSON FJÁR-
MÁLARÁÐGJAFI MORGUNBLAÐINU
Morgunblaðið 3. mars
Rekið stelpuna á
símanum
„Neytendasamtökin hafa
hvatt birgja og smásala til
að reyna að mæta kostnaðar-
hækkunum með aukinni
hagræðingu.“
JÓHANNES GUNNARSSON, FOR-
MAÐUR NEYTENDASAMTAKANNA
DV 3. mars
Í nóvember síðastliðnum hélt
Framtíðarlandið vetrarþing á Ísa-
firði undir yfirskriftinni „Vest-
firðir á teikniborðinu“. Tilgangur-
inn var að ræða framtíðarhorfur
fjórðungsins í atvinnumálum.
Í kjölfarið var unnin samantekt
sem kynnt var á fjölmennum fundi
í Norræna húsinu á miðvikudag-
inn var. Ólafur Sveinn Jóhannes-
son, aðalskipuleggjandi vetrar-
þingsins, segir að fjölmargar
hugmyndir um atvinnuuppbygg-
ingu hafi komið fram á vetrar-
þinginu. „Hugmyndirnar hafa
reyndar alltaf verið til staðar en
það sem hins vegar vantar eru
innviðir svo samfélagið sé sam-
keppnishæft við aðra fjórðunga
og að Vestfirðir geti boðið þessum
frumkvöðlum að gera eitthvað við
þessar hugmyndir,“ segir hann.
„Þá skortir samgöngur, netsam-
band og aðgang að menntun og
rannsóknastofnunum,“ nefnir
hann sem dæmi. „Og annar lær-
dómur sem draga má af þessari
skýrslu sem liggur eftir vetrar-
þingið er sá að það verður að
þrýsta á yfirvöld að klára verk-
efnið Vestfirðir,“ segir
Vestfirðingurinn ákveðinn.
Meðal hugmynda sem komu
fram nefnir Irma Erlingsdóttir,
formaður stjórnar Framtíðar-
landsins, umhverfisháskóla, bjór-
verksmiðju, heilsuhótel og
hafrannsóknaskóla.
En framtíðarlandið lætur sig
ekki eingöngu varða málefni Vest-
fjarða því Irma segir að 8. mars
næstkomandi verði efnt til sams-
konar þings á Höfn í Hornafirði.
Framtíðarlandið setti Vestfirði á teikniborðið:
Þarf að klára verkefnið Vestfirðir
Unglingar og foreldrar
þeirra í Hafnarfirði sitja
saman á námskeiðum þar
sem foreldrar styrkja sig í
hlutverki sínu en ungling-
unum er hjálpað að taka
upplýstar ákvarðanir um
mörg málefni sem geta
verið afdrifarík á þessum
árum.
Fyrir tíu árum sóttu hjónin Fríða
Jónsdóttir og Auðunn Gísli Árna-
son námskeið hjá ÓB ráðgjöfum
um það hvernig foreldrar leik-
skólabarna geta styrkt sig í hlut-
verki sínu. „Þetta hjálpaði okkur
að njóta foreldrahlutverksins enn
betur og í framhaldinu stóðum við
fyrir námskeiðum fyrir foreldra
hér í Hafnarfirði,“ segir Auðunn.
En hlutverk foreldra breytist
eftir því sem á líður svo þeir sem
vilja halda áfram að njóta hlut-
verksins verða að hressa upp á
fræðin. „Núna erum við að taka
þátt í forvarnanámskeiðinu
„Hugsað um barn“ fyrir foreldra
og unglinga í samvinnu við ÓB
ráðgjöf líkt og fyrir tíu árum,“
bætir hann við.
Hann segir ennfremur að ekki
aðeins foreldrarnir hafi tileinkað
sér fræðin sem kennd voru á nám-
skeiðinu fyrir tíu árum og ganga
að miklu leyti út á jákvæða styrk-
ingu. „Þetta eru engin galdrafræði
heldur byggist þetta mikið á
almennri skynsemi,“ útskýrir
hann. „Þetta byggist mikið á því
að gefa val, veita jákvæða athygli
og eyða tíma með börnunum. Við
fórum að tileinka okkur þetta við
uppeldið en það er ekki nóg með
það heldur er stúlkan, sem var á
leikskólaaldri þegar við byrjuðum
á þessu, farin að tileinka sér eitt
og annað af þessu gagnvart yngri
bróður sínum.“
Ólafur Grétar Gunnarsson, frá
ÓB ráðgjöf, segir að Forvarna-
námskeiðið „Hugsað um barn“ sé
fyrir 14 og 15 ára unglinga og for-
eldra þeirra. Það hefur verið hald-
ið í fjögur ár á Íslandi og er í boði
víða um heim. Námskeiðið er
samtals fjórar klukkustundir og
fer fram næsta fimmtudag og svo
þriðjudagskvöldið 11. mars í Hval-
eyrarskóla í Hafnarfirði. Tilgang-
urinn er meðal annars sá að hjálpa
unglingunum að taka upplýsta
ákvörðun varðandi kynlíf, áfengi
og mikilvægi góðrar samvinnu við
foreldra og kennara.
Unglingarnir fá í hendur
svokallað raunveruleikabarn, sem
er eftirlíking af smábarni, en þeir
eiga svo að annast það eina helgi
og kynnast þeirri ábyrgð sem því
fylgir að annast ungabarn.
jse@frettabladid.is
Í lagi að vera foreldri
TIL Í TUSKIÐ Fríða Jónsdóttir, Ólafur Grétar Gunnarsson, Jónína Kristín Snorradóttir,
Auðunn Gísli Árnason og Bjarni Þórarinsson, kollegi Ólafs Grétars hjá ÓB ráðgjöf.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FRÁ NÁMSKEIÐINU Hér er Elín Hanna
Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur að sýna
unglingi leyndardóma raunveruleika-
barnsins. Það er ekki laust við að það
fari nokkuð um pilt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÓLAFUR SVEINN JÓHANNESSON OG IRMA ERLINGSDÓTTIR Vestfirðinga vantar ekki
hugmyndir um atvinnuuppbyggingu heldur skortir innviði svo hægt sé að fram-
kvæma þær segir Ólafur eftir að hafa haft Vestfirði á teikniborðinu. Næst verður
Austurland sett á teikniborðið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Það er allt gott að frétta úr Kattholti svoleiðis,“
segir Sigríður Heiðberg, formaður Kattavina-
félags Íslands. „Það er náttúrulega mikið að
gera. Framundan er sýning hjá Kynjaköttum
í Reiðhöll Gusts í Kópavogi og það fara
kettir frá Kattholti sem eru að leita að
nýjum heimilum. Fólk getur komið á
sýninguna og litið á þessa ketti og
vonandi finna þeir gott heimili. Við
förum með sex ketti, að vísu fara
þeir ekki í dóm. Þeir fara í leit að
heimili en okkur var boðið þetta. Og
svo verður náttúrulega Bjartur frá Katt-
holti, húskötturinn okkar. Hann verður
tákn félgasins.“
Hvernig hefur veturinn reynst Katt-
holti?
„Veturinn hefur stundum verið
erfiður og svo náttúrulega
koma sólargeislar inn á milli. Dýrin komast inn
á ný heimili, dýrin komast heim til sín og þau
finnast eftir langan tíma. Það er alltaf það sem
gefur kraftinn í að halda áfram. Það er alltaf
mikið af köttum í Kattholti. Ætli það séu
ekki fimmtíu til sextíu kettir alltaf allt
árið, eiginlega frá opnun en þetta er
sautjánda árið sem félagið starfar.
Svo er náttúrulega alltaf mikið að
gera á hótelinu. Nú er búið að panta
pláss fyrir þrjátíu ketti um páskana.
Það er mjög gott og gefur svolítið í
aðra hönd og ekki veitir af því að róður-
inn er náttúrulega erfiður. Við
geymum kettina töluvert ef
þetta eru góð dýr í von
um að þau komist inn
á ný heimili, þau sem
yfirgefin hafa verið.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SIGRÍÐUR HEIÐBERG, FORMAÐUR KATTAVINAFÉLAGS ÍSLANDS:
Þrjátíu kettir í Kattholti um páskana
„Maður þekkir þennan nýja forseta, Dmítrí Med-
vedev, ekki neitt. Hann virðist vera mjög viðkunna-
legur, en ætli hann verði ekki bara handbendi Pút-
íns. Ég held að Pútín muni stjórna öllu áfram bak við
tjöldin,“ segir Rúna Gerður Stefánsdóttir söngkona.
„Þetta var nú ekki mikil kosningabarátta eða slagur,
enda einkennir það kannski ekki landið. Það virðast
vera mikil höft á öllu þarna,“ segir hún.
„Mér finnst líklegt miðað við hvernig ástandið hefur
verið undanfarin ár að það hafi verið eitthvað plott
í gangi varðandi úrslitin en þetta er svo stórt land
að svoleiðis gengi trúlega aldrei almennilega upp,“
segir Rúna.
„En manni finnst margt benda til þess að eitthvað
sé að þegar nýr leiðtogi kemur fram sem enginn
þekkir og virðist vera mikill vinur Pútíns. Þegar
þeir ætla svo að halda áfram með sama stjórnarfarið fær maður það á
tilfinninguna að það sé eitthvað að.“
SJÓNARHÓLL
KOSNINGAR Í RÚSSLANDI
Viðkunnanlegt
handbendi Pútíns
RÚNA GERÐUR STEF-
ÁNSDÓTTIR Söngkona