Fréttablaðið - 04.03.2008, Qupperneq 56
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Karenar D.
Kjartansdóttur
Í dag er þriðjudagurinn
4. mars, 64. dagur ársins.
8.24 13.40 18.56
8.12 13.24 18.38
Eitt sinn var ég á ferð með eldri manni um háhitasvæði. Ég
horfði hugfangin út um bílrúðuna
og dáðist að ósnortinni fegurð
landsins þegar sá gamli fullyrti
skyndilega að þarna yrði að virkja.
Upphófust miklar rökræður en
fljótlega sá ég að mér yrði aldrei
ágengt í málinu þar sem hann svar-
aði öllum mínum mótbárum á þá
leið að ég myndi ekki eftir atvinnu-
leysinu.
FÁTÆKTIN nú ekur um á svörtum
jeppa og býr í ríkmannlegu húsi en
á ekkert nema skuldir í bankanum
sem aldrei verða greiddar til fulls,“
sagði sá gamli og fullyrti að þessi
fátækt tilheyrði kynslóðinni sem
ekki myndi lengra aftur en árið
1991, þegar Davíð hélt út í Viðey
ásamt Jóni Baldvini Hannibalssyni
og myndaði ríkisstjórn, EES-samn-
ingurinn var undirritaður og einka-
væðing hófst og framsal afla-
heimilda var gefið frjálst. Árið sem
Íslendingar gerðu sig breiða á
alþjóðavettvangi og viðurkenndu
fyrstir þjóða sjálfstæði Litháens.
Ég sagði gamla manninum að ég
tengdi árið ekki við neitt annað en
að það ár fengu Rokklingarnir gull-
plötu. „Já, það er táknrænt fyrir
þína kynslóð að muna bara eftir
rugli. Þetta ár markaði tilbúning í
íslensku samfélagi, til dæmis þessa
vellu um umhverfismál sem á eftir
að gleymast strax og fer að þrengja
að bönkunum sem eru raunveru-
legir eigendur alls glyssins í dag,“
fussaði gamli maðurinn fokillur.
ÓSK gamla mannsins um að unga
kynslóðin áttaði sig og missti
áhugann á umhverfismálum virðist
vera farin að rætast, sem og óskir
hans um að það áttaði sig á mikil-
vægi bankanna í þeirra lífi. Bank-
arnir gáfu okkur vonir og stóðu við
fyrirheit sín um að við myndum
eignast hús og bíl á mettíma og án
allrar fyrirhafnar sem sparnaður
og smjaður við bankastjóra
útheimtir. Nú er svolítið síðan ég
heyrði þá auglýsa að aukakrónurn-
ar komi bara. Danir eru fullir Þórð-
argleði. „Við sögðum fyrir tveimur
árum að þetta myndi gerast,“ segja
þeir glaðbeittir og líta algerlega
framhjá því að þá átti verðmæti
bankanna eftir að aukast um
þriðjung.
Í vonleysinu sem bankaumræðan
veldur mér finnst mér gott að geta
flett gömlum tölublöðum af ABC og
Æskunni frá árinu 1991, sem mark-
aði upphaf uppgangs á Íslandi og
fyrirheita um að allt gæti orðið
meira. Sérstaklega finnst mér
gaman að skoða bréfin frá börnun-
um í Nígeríu sem óskuðu eftir
íslenskum pennavinum. Þarna voru
Nígeríusvindlarar samtímans að
stíga sín fyrstu skref í átt að ríki-
dæmi.
Bankaþankar