Fréttablaðið - 04.03.2008, Page 10

Fréttablaðið - 04.03.2008, Page 10
10 4. mars 2008 ÞRIÐJUDAGUR KONUR Í KABÚL Tvær búrkuklæddar konur speglast ásamt ungum pilti í menguðu vatni í Kabúl, höfuðborg Afganistans. Óvenjumikið er í vatninu vegna þess hve rignt hefur mikið undanfarið. NORDICPHOTOS/AFP Griffin Road Trip 6.990 kr. Þráðlaus mús 6.990 kr. Þráðlaust lyklaborð 7.990 kr. USB sjónvarpsmóttakari 12.990 kr. Griffin iTrip 4.990 kr. Apple iPod USB 3.490 kr. Fí to n / S ÍA Apple IMC Apple IMC | Humac ehf. Sími 534 3400 www.apple.is Laugavegi 182 105 Reykjavík Kringlunni 103 Reykjavík Fermingartilboðið gildir til 31. mars 2008 Tomma fyrir hvert ár! MacBook hvít 2,0 GHz Intel Core 2 Duo 80 GB HD / 1 GB vinnsluminni 13,3” hágljáa skjár 1280 x 800 díla upplausn Combo Drive geisladrif iSight myndavél Fjarstýring Íslenskt hnappaborð 2 ára neytendaábyrgð 13” MacBook á fermingartilboði Þunn, þægileg og örugg. MacBook er ein af þeim öflugustu. Með 2,0 GHz Intel Core 2 Duo örgjörva og 1 GB vinnsluminni vinnur hún jafn ljúflega með Mac OS X og Windows. Með skínandi björtum 13,3” hágljáa breið- tjaldsskjá er hún fullkomin fyrir þá sem vilja almennilegan kraft í fallegri, einnar tommu þykkri fullorðinni tölvu. Áður 119.990 kr.99.990 kr. TILBOÐ 99.990 kr. VINNUMARKAÐUR Öldubrjótur, íslensku-, samfélags- og verk- menntaskóli Hrafnistu, hefur hafið göngu sína. Í skólanum eru sautján konur á aldrinum 22 til 52 ára frá átta þjóðlöndum. Hundrað umsóknir bárust og voru 25 konur teknar í viðtöl. Konurnar sautján voru valdar úr þeim hópi. Hrönn Ljótsdóttir verkefna- stjóri segir að upphaflega hafi meiningin verið að taka fimmtán umsækjendur í skólann en ákveð- ið hafi verið að fjölga þeim í sautján vegna þess hve hæfir umsækjendurnir hafi verið. Margar kvennanna eru með háskólamenntun frá sínu heima- landi. Hrönn segir að ein sé til dæmis með meistarapróf í ensku, tveir hjúkrunarfræðingar séu í hópnum, tölvunarfræðingur og ferðamálafræðingur. Konurnar séu mislangt á veg komnar með íslenskuna, sumar rétt að byrja og aðrar hafi lokið námskeiðum hjá Mími, en þær hafi ekki getað starfað við sitt fag hér vegna þess. „Við erum búnar með tvær vikur núna og þetta gengur ótrúlega vel. Konurnar eru allar mjög áhuga- samar,“ segir Hrönn. „Það er ótrú- legur munur á þeim nú eða fyrir tveimur vikum. Það er greinilegt að þær eru komnar til að læra.“ Öldubrjótur stendur í átta vikur og læra konurnar íslensku og íslenska menningu á þeim tíma auk þess sem þær hljóta starfs- þjálfun til starfa á Hrafnistu. Þær hafa skuldbundið sig til að taka þar til starfa þegar náminu lýkur. - ghs Sautján konur af erlendum uppruna taka þátt í starfsmenntanámi Hrafnistu: Stór munur á tveimur vikum HUNDRAÐ UMSÓKNIR Hrönn Ljótsdóttir, verkefnastjóri Öldubrjóts, segir að hundrað umsóknir hafi borist um starfsþjálfun hjá Hrafnistu. Með henni er Lovísa A. Jónsdóttir sem einnig stendur að verkefninu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR RÍKISFJÁRMÁL „Það liggur fyrir að við erum ekkert sátt við þá aðferð sem viðhöfð var við söluna á Baldri,“ segir Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi. Stofnunin telji hins vegar nóg að gert, eftir að hafa vakið athygli á málinu í endurskoðun ríkisreiknings. Einnig hafi Fréttablaðið fjallað vel um málið, sem teljist nú upplýst. „Við höfum kannski ekki farið eins nákvæmlega í þessa sölu og hægt er. En við erum engir dómstólar,“ segir hann. Ferjan Baldur var seld fyrirtækinu Sæferðum árið 2006 fyrir 37,8 milljónir, en norskir skipamiðlarar mátu það á þrjátíu til áttatíu milljónir, einn fyrir fjármálaráðuneytið og annar fyrir Sæferðir. Fyrir milligöngu norrænna skipamiðlara seldi fyrirtækið svo ferjuna til Finnlands, tveimur vikum síðar, fyrir rúmar 100 milljónir. Sex milljónir fóru í sölulaun skipamiðlarans. Ferjan var ekki seld hæstbjóðanda heldur seld framhjá Ríkiskaupum og var notast við undanþágu- heimild í lögum er vísar til „sérstakra aðstæðna“. Sæferðir þurftu ekkert að greiða út í skipinu, heldur er það niðurgreitt með ríkisstyrkjum fyrir- tækisins. - kóþ Ríkisendurskoðandi aðhefst ekki frekar vegna óvenjulegrar sölu ríkiseignar: Er ósáttur við söluna á Baldri JAFNRÉTTISMÁL Stjórn Kvenna- hreyfingar Samfylkingarinnar hefur sent frá sér ályktun um nýju jafnréttislögin. Í henni fagnar stjórnin því að nýtt jafnréttisfrumvarp sé orðið að lögum og gleðst yfir því „veiga- mikla skrefi sem nú hefur verið stigið í þágu jafnréttis,“ eins og segir í ályktuninni. „Sérstaklega ber að fagna nýjum ákvæðum í lögunum um rétt einstaklinga til að segja þriðja aðila frá launum sínum, auknu umboði og eftirlits- heimildum Jafnréttisstofu og því að úrskurður kærunefndar jafnréttismála er nú bindandi fyrir málsaðila,“ segir þar. „Þá er ánægjulegt að þing- heimur allur skuli hafa stutt frumvarpið, sem er sögulegur áfangi í jafnréttisbaráttu kynjanna.“ - ghs Kvennahreyfing Samfylkingar: Fagnar nýjum jafnréttislögum PÁSKAR Í ár verður ekki boðið upp á púkapáskaegg frá Nóa-Síríusi, heldur snúa strumparnir aftur. Arnar Ottesen, fjármálastjóri fyrirtækisins, segir að þetta tengist ekki þrýstingi frá kristnum mönnum, sem hafa haft horn í síðu púkanna. Ástæðan sé einfaldlega sú að Nói hafi aftur náð samningum um að setja strumpa ofan á eggin og vilji einbeita sér að þeim. Fyrirtækinu hafa meðal annars borist kvörtunarbréf um að með því að skreyta páskaegg púkum væri verið væri að tengja hina kristnu hátíð illum og yfirnátt- úrulegum öflum. - kóþ Strumparnir komnir aftur: Púkarnir hverfa af páskaeggjum UM BORÐ Í BALDRI Samgöngur á legi hafa verið ómissandi fyrir allan almenn- ing á Breiðafirði. Nú er áformað að vegakerfið verði bætt þannig að einkabíllinn geti hlaup ið í skarðið að mestu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.