Fréttablaðið - 04.03.2008, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 4. mars 2008
Stundum þarf
maður hjálp til
að halda áfram
Það er góð regla að lesa vel tryggingaskilmálana, þeir eru sá grundvöllur sem samskipti þín og TM byggjast á.
Hringdu í síma 515 2000 eða farðu á www.tm.is og fáðu skýr svör.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/T
M
I
41
09
8
02
/0
8
Áfallahjálp TM
Áfallahjálp hjá TM
Þeir sem eru vel tryggðir fá efnisleg verðmæti sín bætt, en eftir stendur oft tilfinningatjón
sem ekki verður metið til fjár. Það er vel þekkt staðreynd að áföll eða slys geta haft í för
með sér áfallastreitu og leitt til langvarandi áfallaröskunar ef ekki er gripið í taumana.
TM gengur nú skrefinu lengra í þjónustu sinni og er eina tryggingafélagið á Íslandi
sem býður tjónþolendum upp á áfallahjálp í sínum tryggingaskilmálum.
Áfallahjálpin er veitt af sálfræðingi og er innifalin í Heimatryggingu TM.
Þannig vinnum við saman úr áfallinu og stuðlum að því að það hafi ekki neikvæðar
afleiðingar til lengri tíma fyrir viðskiptavini okkar.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN / Sími 515 2000 / tm@tm.is / www.tm.is
SJÁVARÚTVEGUR Einar K. Guðfinns-
son sjávarútvegsráðherra hefur
orðið við tilmælum Hafrann-
sóknastofnunar um að auka afla-
mark á loðnu um 50 þúsund tonn.
Heildaraflamarkið er því um 207
þúsund tonn og þar af koma 152
þúsund tonn í hlut íslenskra
skipa.
Vertíðinni bjargað
„Þetta er náttúrulega langt frá því
að vera góð vertíð en nú er búið að
bjarga þessu fyrir horn,“ segir
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
framkvæmdastjóri Vinnslustöðv-
arinnar í Vestmannaeyjum. Hann
segir að velta fyrirtækisins á
loðnuvertíðinni í fyrra hafi verið
um 1.300 milljónir en þá var afla-
markið helmingi meira. Veltan nú
verði þó rúmlega helmingurinn af
því sem hún var í fyrra þar sem
nýtingin sé betri í ár.
Þór Vilhjálmsson, starfsmanna-
stjóri Vinnslustöðvarinnar, hafði
sagt þegar loðnuveiðibannið var
sett á að ef því yrði ekki aflétt
yrðu starfsmenn af um 700 þús-
und krónum á þeim sex vikum
sem loðnuvertíð varir venjulega.
„Vissulega hefur þetta haft ein-
hver áhrif á starfsfólk þó þetta
hafi ekki farið á versta veg, þetta
er verst fyrir lausafólk,“ segir
Sigurgeir Brynjar.
Þorsteinn Sigurðsson, sviðs-
stjóri Nytjastofnasviðs, segir að
um 56 þúsund tonn hefðu mælst
austan við Ingólfshöfða þar af
rúm 50 þúsund tonn af kynþroska
loðnu og á þeim forsendum hefði
ráðgjöf stofnunarinnar byggst.
Draumur Línu í Túni
Þó útlitið væri svart á tíma segir
Sigurgeir Brynjar að ein
manneskja hefði alltaf vitað að úr
myndi rætast. „Það er hún Lína í
Túni sem sér um kaffið hjá okkur,“
segir hann.
„Mig dreymdi í janúar að varla
væri nokkuð til að bjóða fólkinu
upp á með kaffinu og voru allir
ósköp leiðir út af því,“ segir
Sigurlína Árnadóttir eða Lína í
Túni. „Það var ekki hægt að bjóða
upp á þetta en svo koma nokkrir
jakkaklæddir menn af skrif-
stofunni með þrjá eða fjóra bakka
með nýbökuðum vöfflum og gátu
þá allir fengið sér í svanginn þó
ekki yrðu þeir pakksaddir. Ég réð
þetta þannig að fyrst yrði ekkert
veitt en síðan kæmu þrjár til
fjórar göngur og vertíðin myndi
bjargast fyrir horn þó ekki fengju
menn jafn mikið og þeir vildu,“
segir hún og hlær við.
Sagði hún sjávarútvegsráð-
herra draum sinn þegar hann
fundaði í Eyjum en gat þó ekki séð
að honum létti. Hún stakk þeirri
hugmynd að yfirmönnum sínum
að hún yrði látin sofa í svítu svo
hana dreymdi fyrir góðum tímum.
jse@frettabladid.is
Loðnukvótinn
aukinn í gær
Sjávarútvegsráðherra jók aflamark á loðnu um 50
þúsund tonn í gær. Vertíðin bjargast fyrir horn,
segir framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar. Lína í
Túni reyndist draumspök um loðnuvertíðina.
SJÓMENN KÆTAST Aflamarkið hefur verið aukið svo ræst hefur úr vertíðinni sem
blásin var af um tíma.
SIGURLÍNA ÁRNADÓTTIR Sagði sjávar-
útvegsráðherra frá draumi sínum um
loðnuvertíðina.