Fréttablaðið - 04.03.2008, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 4. mars 2008 13
SÓMALÍA, AP Níu fréttamenn í
Sómalíu hafa verið drepnir frá því
í febrúar 2007. Þetta kemur fram í
skýrslu Amnesty International um
ástandið þar í landi.
Í skýrslunni er greint frá því að
fréttamenn séu skipulega drepnir,
þeim rænt eða fyrirskipað af öllum
stjórnmálaöflum í Sómalíu að
stöðva fréttaflutning út úr landinu.
Yfir fimmtíu fréttamenn hafa flúið
landið á undanförnum árum.
Stjórn Sómalíu hefur verið í
upplausn allt frá því einræðisherr-
anum Mohamed Siad Barre var
steypt af stóli árið 1991. - rat
Mannréttindi í Sómalíu:
Skipuleg dráp á
blaðamönnum
SKIPULAGSMÁL Til stendur að loka vinstri-
beygju af Bústaðavegi til norðurs inn á
Reykjanesbraut. Við þetta eru íbúar í Bústaða-
hverfi afar ósáttir og segja að bílaumferð um
hverfið muni aukast til muna.
Á íbúafundi var samþykkt ályktun íbúanna
sem telja að samhliða lokun beygjunnar verði
að leggja í verulegar mótvægisaðgerðir við
Réttarholtsveg. Setja íbúarnir það skilyrði að
lokið verði við mótvægisaðgerðirnar áður en
til frekari framkvæmda kemur enda sé erfitt
að sjá að Réttarholtsvegurinn þoli aukið álag
bílaumferðar eins og staðan er í dag.
Við Réttarholtsveg eru leikskólar, tveir
grunnskólar og félagsstarf eldri borgara.
Anna Kristinsdóttir, formaður íbúasamtaka
Bústaðahverfis, segir hugmyndir um undir-
göng fyrir gangandi vegfarendur á móts við
skólana ekki nægar aðgerðir. Frekari aðgerðir
gætu falið í sér að grafa Réttarholtsveginn
allan í stokk á 30 kílómetra svæði. „Ef það er
mögulegt, og það myndi gefa okkur möguleika
á að gera meira fyrir svæðið,“ segir Anna.
Hún segir rúmlega 2.000 bíla aka Bústaða-
veginn og umrædda beygju daglega. Ætla
megi að um 600 bílanna færu Réttarholtsveg-
inn og fram hjá skólanum. „Við erum auðvitað
dauðhrædd um að undirgöngin verði til að búa
til falskt öryggi,“ segir Anna. - ovd
Undirgöng við skólana ekki nægar aðgerðir að mati íbúasamtaka Bústaðahverfis:
Íbúarnir óttast aukna bílaumferð
VIÐ RÉTTARHOLTSSKÓLA Áætlað er að setja undirgöng
við skólann en íbúar telja slíkt ekki nægjanlegt.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KÚBA Utanríkisráðherra Kúbu,
Felipe Pérez Roque, hefur
undirritað tvo lykilsáttmála
Sameinuðu þjóðanna um ýmis
borgaraleg, efnahagsleg og
menningarleg réttindi síðan Fídel
Kastró lét af völdum
Elizardo Sanchez, formaður
mannréttindasamtaka á Kúbu,
fagnar þessu, enda hafi undir-
ritun þessara samninga lengi
verið krafa Kúbverja. Hann er þó
efins um efndirnar.
„Ég vona að þeir haldi í heiðri
bæði bókstaf sáttmálanna og anda
þeirra en ég er ekki viss um að
svo verði,“ segir hann. Ríkið eigi
jú eftir að fullgilda þá. - kóþ
Kúbversk yfirvöld eftir Kastró:
Sáttmálar um
meiri réttindi
SKAGAFJÖRÐUR Samtök um náttúru-
vernd á Norðurlandi (SUNN)
styðja þingsályktunartillögu um
friðlýsingu Austari- og Vestari-
Jökulsár í Skagafirði.
Kom þetta fram í ályktun á
stjórnarfundi samtakanna sem
haldinn var 27. febrúar síðast-
liðinn. Þar segir enn frekar að
jökulárnar í Skagafirði hafi
markað sér sérstöðu sem eitt
besta svæði Evrópu til fljóta-
siglinga og umtalsverð atvinnu-
starfsemi nýti afl og umhverfi
jökulánna með sjálfbærum hætti.
Telur stjórn SUNN „eðlilegt að
friða svæðið og stjórna því á
þann hátt að landslag, náttúrufar
og menningarminjar séu
varðveitt, ásamt því að það verði
notað til útivistar, ferðaþjónustu
og hefðbundinna landbúnaðar-
nytja.“ - ovd
Friðun jökulánna í Skagafirði:
Styðja friðun
jökulánna