Fréttablaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 16
16 4. mars 2008 ÞRIÐJUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Kosningaúrslitin í Rússlandi
Sjötíu prósent Rússa
greiddu Dimitrí Medvedev
atkvæði sitt. Aðrir fram-
bjóðendur áttu aldrei mögu-
leika.
Forsetakosningarnar í Rússlandi á
sunnudaginn hafa verið harðlega
gagnrýndar, sagðar ólýðræðisleg-
ar og ótrúverðugar. Sjötíu prósenta
sigur Dimitrís Medvedevs, manns-
ins sem Vladimír Pútín hafði fyrir-
fram útnefnt arftaka sinn í forseta-
embættinu, þykir mörgum ótvíræð
staðfesting á þeim efasemdum sem
fyrirfram voru um framkvæmd
kosninganna.
Öryggis- og samvinnustofnun
Evrópu sá sér ekki fært að sinna
neinu eftirliti með framkvæmd
kosninganna, vegna þess hve
ströng skilyrði Rússar settu slíku
eftirliti, en Evrópuráðsþingið sendi
á hinn bóginn 22 manna kosninga-
eftirlitssveit á vettvang og sú
nefnd gaf blendnar yfirlýsingar
um það sem fyrir augu bar.
„Það væri of einfalt að segja nið-
urstöður kosninganna falsaðar,“
sagði Andreas Gross, yfirmaður
kosningaeftirlitssveitar Evrópu-
ráðsþingsins. Hann sagði niður-
stöður kosninganna vissulega „end-
urspegla vilja kjósenda“, en þær
voru „samt hvorki frjálsar né sann-
gjarnar.“ Hann orðaði það þannig
að „töluvert skorti því miður upp á
að lýðræðislegir möguleikar rúss-
neskra kjósenda séu tæmdir“ og
sagði kosningarnar frekar líkjast
opinberri skoðanakönnun en eigin-
legum kosningum.
Fyrirfram gefin úrslit
Fyrirfram var vitað að enginn
hinna þriggja mótframbjóðenda
Medvedevs ætti raunhæfan mögu-
leika á sigri. Gennadí Sjúganov,
leiðtogi Kommúnistaflokksins,
þótti þó ná óvæntum árangri með
því að tryggja sér nærri 18 prósent
atkvæða. Þjóðernissinninn kjaft-
fori, Vladimír Sjírinovskí, náði
tæpum tíu prósentum eins og fyr-
irfram var spáð. Sá fjórði, sem
reyndar er yfirlýstur stuðnings-
maður Pútíns rétt eins og Medved-
ev, komst varla á blað. Hann heitir
Andrei Bogdanov. Gagnrýni á kosn-
ingarnar beinist einkum að því að
stjórnvöld hafi fyrirfram séð ræki-
lega til þess að enginn ætti í raun
möguleika gegn Medvedev. Nánast
allir fjölmiðlar, sem meira og
minna eru undir stjórn eða áhrif-
um ríkisins, hafi gefið Medvedev
miklu meira vægi en öðrum fram-
bjóðendum. Auk þess hafi meira og
minna allir stjórnmálamenn, sem
hugsanlega hefðu átt raunhæfan
möguleika gegn Medvedev þrátt
fyrir óhlutdrægni fjölmiðla, verið
útilokaðir frá framboði löngu fyrir
kosningar.
Þrýstingur á kjósendur
„Þessar kosningar eru mikið
auglýst embættisskipun sérút-
valins arftaka,“ sagði Garrí
Kasparov, fyrrverandi heimsmeist-
ari í skák, sem hefur undanfarin
misseri haft uppi harðorða gagn-
rýni á stjórnarhætti Pútíns en fékk
ekki að bjóða sig fram.
Mikill þrýstingur var á fólk um
allt Rússland að kjósa. Jafnt ríkis-
fyrirtæki sem einkafyrirtæki eru
sögð hafa hótað því starfsfólki upp-
sögn sem ekki mætti á kjörstað. Í
afskekktari héruðum landsins var
hreinlega gengið með kjörkassa
hús úr húsi til að safna atkvæðum.
Þrátt fyrir þetta varð kosninga-
þátttakan ekki nema 65 prósent,
sem þó þykir nokkuð góður árang-
ur í svo stóru landi.
Sömu stefnu fylgt áfram
Strax og fyrstu niðurstöður úr
kosningum birtust skömmu fyrir
miðnætti og staðfestu yfirburða-
sigur Medvedevs stigu þeir Pútín
saman á svið á útitónleikum sem
haldnir voru í beinni sjónvarpsút-
sendingu á Rauða torginu í Moskvu,
þar sem Pútín óskaði arftaka sínum
til hamingju, en tók jafnframt fram
að þvílíkur sigur feli í sér ýmsar
skyldur: „Sigurinn tryggir að þeirri
stefnu, sem við höfum tekið, þeirri
árangursríku stefnu sem fylgt
hefur verið síðustu átta árin, verð-
ur fylgt áfram.“
Medvedev tók undir þetta og hét
því að fylgja stefnu Pútíns á kjör-
tímabilinu, sem nú fer í hönd.
Formlega tekur hann við af Pútín
7. maí og eftir það líður væntan-
lega ekki á löngu þar til Pútín tekur
við forsætisráðherraembættinu af
Viktori Zubkov, sem hefur þó
aðeins gegnt því starfi í nokkra
mánuði.
Sá góði og sá grimmi
Medvedev hefur ekki þótt
svip sterkur stjórnmálamaður og
fátt sem bendir til annars en að
hann ætli sér að vera Pútín auð-
sveipur. Það kemur þó varla í ljós
fyrr en líða tekur á kjörtímabilið
hvernig honum vinnst úr stöðu
sinni. Stjórnmálaskýrendur hafa
sumir hverjir sagt að þeir Medved-
ev og Pútín ætli sér að leika hlut-
verk „góðu löggunnar“ og „grimmu
löggunnar“ í rússneskum stjórn-
málum.
Pútín geti nú óhræddur berað
tennurnar og gelt grimmilega
meðan Medvev lofar öllu fögru og
reynir að sigla milli skers og báru
– en Pútín fái að stjórna í reynd því
sem hann vill.
Medvedev lætur Pútín ráða stefnunni
Bakgrunnur
Bæði Dmitrí Medvedev og Vladimir
Pútín lærðu lögfræði í borginni
Leníngrad, sem nú heitir Pétursborg.
Að loknu námi valdi Pútín sér starfs-
vettvang innan leyniþjónustunnar
KGB en Medvedev hélt sig áfram
innan háskólans og gerðist kennari.
Medvedev hefur starfsreynslu úr
einkageiranum sem Pútín vantar.
Stíll
Í samanburði við Pútín virðist Med-
vedev hógvær og ljúflyndur. Pútín
grípur oft til grófgerðs götuorð-
bragðs en Medvedev er bóklegri í
tali - þótt hann sé reyndar byrjaður
að herma eftir talsmáta Pútíns, að
því er virðist til að hljóma valds-
mannlegri og forsetalegri.
Stefna
Rætur Pútíns í KGB styrkja þá ímynd
að hann sé harður leiðtogi sem
fyrst og fremst hugsar um öryggi og
styrkleika Rússlands. Bakgrunnur
Medvedevs í lögfræðinni hefur á
hinn bóginn orðið til þess að hann
leggur áherslu á réttarríkið og
sjálfstæði dómstólanna. Medvedev
hefur einbeitt sér að því að efla
viðskiptalífið og styrkja velferðar-
kerfið, en hefur aðeins nýlega byrjað
að tala opinberlega um utanríkismál
og víkur þar í engu frá línu Pútíns.
TVÍEYKIÐ PÚTÍN OG MEDVEDEV
575 1221
Renault Kerax
Nýskr: 08/06, 420.40, 8x4
Ekinn 31.000 km.
Tilboðsverð:
8.500.000
án vsk.
Renault Mascott
Nýskr: 04/01, 130.65
Ekinn 130.000 km.
Tilboðsverð:
1.390.000
án vsk.
M.B. Atego
Nýskr: 09/02, 815
Ekinn 151.355 km.
Tilboðsverð:
1.950.000
án vsk.
Stórir og sterkir
á tilboði
EINS OG STJÖRNUR TVÆR Pútín og Medvedev stigu upp á svið á útitónleikum í Moskvu þegar fyrstu tölur staðfestu yfirburða sigur að kvöldi kjördags. NORDICPHOTOS/AFP
GAMAN Á KJÖRDAG Eftir að hafa greitt atkvæði á sunnudaginn settust þeir saman
að snæðingi flestir helstu ráðamenn Rússlands: Viktor Zubkov, sem enn er forsætis-
ráðherra Rússlands, situr lengst til vinstri á myndinni, við hlið hans er Sergei Mironov
þingforseti, þá Boris Gryzlov, leiðtogi stjórnarflokksins Sameinaðs Rússlands, en
hinum megin borðsins brosa breitt þeir Dimitrí Medvedev, nýkjörinn forseti, og
Vladimír Pútín, fráfarandi forseti og verðandi forsætisráðherra. NORDICPHOTOS/AFP
ÆSKA PÚTÍNS Daginn eftir kosningar
fjölmenntu ungir stuðningsmenn Pútíns
út á götur Moskvuborgar til að mótmæla
utanríkisstefnu Bandaríkjanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FRÉTTASKÝRING
GUÐSTEINN BJARNASON
gudsteinn@frettabladid.is