Fréttablaðið - 04.03.2008, Page 19
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
RITGERÐ UM FRUMBYRJUR
Aðlögun að móðurhlutverkinu var umfjöll-
unarefni Guðrúnar Aspar Theodórsdóttur
og Tinnu Hall-
dórsdóttur í
BS-verkefni
þeirra í hjúkr-
unarfræði.
HEILSA 2
Að hjóla einn um hálendi Íslands í öllum veðr-
um er ekki allra en Magnús Bergsson rafvirki
segir það einstaka upplifun.
Magnús stofnaði Fjallahjólaklúbbinn árið 1989 en
hann hafði þá átt fjallahjól í þrjú ár. Hann hefur
hjólað bæði í útlöndum og um Ísland og kann best við
sig einn á hjóli uppi á hálendinu.
„Það eru eflaust til nokkrar gerðir af hjólreiða-
mönnum, annars vegar einfarar og hins vegar þeir
sem vilja vera í hóp, ætli ég teljist ekki til þeirra sem
vilja fara einförum,“ segir Magnús. „En það er nú
vegna þess að það að vera einn úti í náttúrunni með
allt það sem heldur manni gangandi er einhvern veg-
inn svo hrífandi. Maður getur sokkið í eitthvert
algleymi þegar maður er svona einn með sjálfum sér
á hjólinu.“
Magnús hefur hjólað hvern spotta og slóða sem
finnst á Íslandskortinu á fjallahjóli og átti sér uppá-
haldsstað norðan Vatnajökuls áður en Kárahnjúka-
virkjun kom þar. Hann ferðast með allan sinn
farangur á hjólinu og segir gott að fara að byggja upp
þol og þrek fyrir lengri ferðir með mánaðar fyrir-
vara. „Farangurinn er ekkert mál, maður útbýr bara
hjólið og ég hef hann ekki meiri en svo að ég geti
borið hjólið með farangrinum í einni ferð yfir ár sem
ég þarf að vaða. Ef maður getur ekki haldið á hjólinu
er farangurinn orðinn of mikill. Svo er ágætt að
spretta svolítið úr spori svona mánuði áður en maður
fer í langferð og þá nær maður þolinu upp. En svona
ferðir geta verið svolítið lýjandi.“
Magnús segir að bestu ferðirnar fari hann einn og
ekki skemmi fyrir ef veðrið versni því þá upplifi
hann eitthvað spennandi. „Það er það sem fær mig til
að hjóla úti í náttúrunni og það að vera ekki upptekinn
af neinu öðru en stað og stund. Þá skiptir veðrið engu
máli. Því verra sem það er, því meira hrífandi er það
einhvern veginn,“ segir Magnús og rifjar upp ógleym-
anlega ferð yfir Arnarvatnsheiði. „Einu sinni gerði
svo vitlaust veður uppi á Arnarvatnsheiði að sandur-
inn varð hvítur af endurkastinu frá regndropunum.
Rokið bylgjaði þetta til svo langt sem augað eygði og
ég stóð varla í rokinu. Þetta var skyndilegt áhlaup
sem gerði en ég komst í gangnamannaskála sem
bjargaði mér. Það var gaman að upplifa það að hafa
tekist á við þetta veður. Þótt maður hafi verið blautur
og hrakinn gleymi ég þessu líklega aldrei.“
Magnús ætlar að halda áfram að hjóla upp um fjöll
og firnindi svo lengi sem hann getur. „Ég er ekkert
hættur, það eru til svo margar gerðir af hjólum að
jafnvel þó maður missi fætur eða hendur getur maður
alltaf haldið áfram að hjóla.“ heida@frettabladid.is
Magnús Bergsson hjólar
um fjöll og firnindi í
öllum veðrum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Best að vera einn að hjólaLaukst flú burtfararprófi í ljósmyndun frá I›nskólanum
í Reykjavík 2006 e›a fyrr?
Áttu eftir a› ljúka vinnusta›anáminu?
Hefur flú áhuga á a› ljúka sveinsprófi í ljósmyndun?
Bættu um betur – vinnusta›anám ljósmyndunar er tilrauna-
verkefni sem mi›ar a› flví a› meta færni sem vi›komandi hefur
og jafnast á vi› vinnusta›anámi›, óhá› flví hvernig færninnar
hefur veri› afla›. Markmi›i› er a› flátttakendur í verkefninu
ljúki sveinsprófi.
Áhugasömum er bent á a› hafa samband vi› I‹UNA-fræ›slu-
setur í síma 590-6400 og fá frekari uppl‡singar um verkefni›.
Nánari uppl‡singar er a› finna á www.idan.is. Einnig er hægt
a› senda tölvupóst á netfangi› radgjof@idan.is.
Hófst flú nám í ljósmyndun
en átt eftir
vinnusta›anámi›?
Ei
n
n
t
v
ei
r
o
g
þ
r
ír
4
26
.0
0
7
HANNAR FÖT OG FYLGIHLUTI
Sigrún Lilja Guðjónsdóttir rekur
netverslunina gydjan.is þar sem hún
selur sína eigin hönnun en hún hefur
saumað á sig föt sjálf síðan hún var
þrettán ára gömul.
TÍSKA 3