Fréttablaðið - 04.03.2008, Síða 39
ÞRIÐJUDAGUR 4. mars 2008 19
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 433
4.832 -1,12% Velta: 5.935 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 8,08 -0,98% ... Bakkavör 40,20 -1,11% ... Eimskipafé-
lagið 29,20 -2,34% ... Exista 11,90 -1,25% ... FL Group 9,30 -1,59% ... Glitnir 16,80 -0,89% ...
Icelandair 25,00 -0,79% ... Kaupþing 726,00 -0,68% ... Landsbankinn 26,40 -1,49% ... Marel
90,10 -0,99% ... SPRON 5,29 -2,40% ... Straumur-Burðarás 11,53 -2,04% ... Teymi 5,13 -1,35%
... Össur 92,50 -0,22%
MESTA HÆKKUN MESTA LÆKKUN
ATLANTIC PETROL. 4,63%
EIK BANKI 2,97%
SPRON 2,40%
Umsjón: nánar á visir.is
Enn stækkar
Iðnaðargeirinn með skráningu
Morphic Technologies
omxgroup.com/nordicexchange
Fjarskipti
UpplýsingatækniVeiturHráefni
Nauðsynjavörur
Neysluvörur Orkuvinnsla Heilbrigðisgeiri
Iðnaður
Fjármálaþjónusta
Við bjóðum Morphic Technologies velkomið í Nordic Exchange.
Morphic Technologies er ört vaxandi sænsk iðnaðarsamstæða
með áherslu á endurnýtanlega orkugjafa svo sem efnarafala,
vind- og vatnsafl. Morphic Technologies verður skráð í Nordic
Exchange í Stokkhólmi þann 4. mars. Morphic Technologies
flokkast sem meðalstórt félag og tilheyrir Iðnaðargeira.
Það gæti verið góður kost-
ur fyrir Íslendinga að taka
upp svissneskan franka,
að mati Sigurðar Kára
Kristjánssonar alþingis-
manns. „Ég hef reyndar
verið hrifinn af því að
taka upp annan gjaldmiðil
eða skoða þá leið,“ sagði
Sigurður Kári í viðtali við
Markaðinn í þættinum „Í
lok dags“ á Vísi.is í gær.
„Það eru fleiri gjaldmiðlar
til í heiminum heldur en
evran. Ég nefni sem dæmi sviss-
neskan franka. Það er sterkur
gjaldmiðill sem sveiflast í takt við
evruna og gæti verið valkostur,“
bætti Sigurður Kári við.
Þá sagði Sigurður Kári
að ríki og sveitarfélög
þyrftu að líta í eigin barm
og draga úr kostnaði núna
þegar slaki væri kominn
á efnahagslífið og fyrir-
séð væri að tekjur ríkis-
ins myndu dragast saman.
„Ég veit að það er ekki
vinsælt en þetta þarf að
gera. Ríkið er ekkert
öðruvísi en heimilin. Það
getur ekki eytt um efni
fram,“ sagði hann. Þá
benti Sigurður Kári á að nauðsyn-
legt væri að stjórnvöld lækkuðu
álögur á fyrirtæki til að örva hag-
kerfið og rétta af niðursveifluna.
- ss
Svissneskur franki
væri góður kostur
SIGURÐUR KÁRI
KRISTJÁNSSON
Slóvensk yfirvöld höfn-
uðu 120 milljarða tilboði
Skipta í slóvenska land-
símann og hafa hætt við
sölu að sinni.
Til stóð að selja tæplega
helmingshlut í Telekom
Slovenije, en einkavæð-
ingarnefnd Slóveníu til-
kynnti í gær að ekkert
yrði af sölu að sinni.
Skipti, móðurfélag
Símans, voru annar
tveggja bjóðenda.
Einkavæðingarnefndin bauð
Skiptum og keppinaut þeirra, Bain
Capital, Axos Capital og BT, sem
áttu sameiginlegt tilboð, að senda
sér endurskoðuð tilboð á
föstudag.
Eftir því sem næst verður
komist endurskoðuðu
báðir tilboð sín. Slóvenska
einkavæðingarnefndin
sagði hins vegar að til-
boðin hefðu ekki verið
fullnægjandi.
Við einkavæðingu
Landsímans árið 2005,
var meðal skilyrða að fyr-
irtækið yrði sett á
almennan hlutabréfa-
markað, eigi síðar en um
síðustu áramót. Fjármála-
ráðherra heimilaði að því
yrði frestað vegna tilboðsins í
Slóveníu.
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Skipta, segir að skráning Skipta í
Kauphöll sé vel á veg komin og
stefnt sé að henni í þessum mánuði.
- ikh
Slóvenar hættu við
BRYNJÓLFUR
BJARNASON
Íslandspóstur hagnaðist um 230
milljónir króna á síðasta ári sem
var um tíu milljónum króna minni
hagnaður en árið 2006. Hagnaður
fyrir skatta, afskriftir og fjár-
magnsliði var 563 milljónir króna.
Fram kemur í tilkynningu frá
félaginu að heildartekjur þess hafi
aukist um 11 prósent á milli ára og
námu þær 6,3 milljörðum í fyrra.
Heildareignir voru 4,3 milljarðar
króna í árslok 2007 og nam eigið fé
2,6 milljörðum króna.
Félagið greiddi 90 milljónir
króna í arð til ríkissjóðs á árinu.
Greiða 90 millj-
ónir til ríkisins
Stjórnendur Close Brothers, elsta
fjármálafyrirtækis Bretlands,
hafa ákveðið að taka hann úr
söluferli þar sem fullnægjandi
tilboð hafi ekki borist í hann.
Landsbankinn bauð 950 pens á
hlut í bankann ásamt verðbréfa-
fyrirtækinu Cenkos Securities.
Stefnt var á að skipta honum upp
á milli kaupenda. Viðræður munu
hafa verið komnar langt á veg
þegar ákveðið var að draga
tilboðið til baka í enda janúar.
Bandaríski fjárfestingarrisinn
Blackstone og japanski kollegi
þeirra hjá Orix drógu tilboð sín
til baka á fimmtudag. - jab
Vilja ekki selja