Fréttablaðið - 04.03.2008, Page 40
20 4. mars 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab-
ladid.is eða hringja í síma 550 5000.
SIGURÐUR BREIÐFJÖRÐ
RÍMNASKÁLD FÆDDIST
ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1798
„Hamingjan býr í hjarta
manns, höpp eru ytri
gæði.“
Sigurður kynntist skáld-
skap í Danmörku þar sem
hann var við nám. Hann
orti geysimikið um ævina,
einkum rímur.
Þennan dag árið 1980
vann Robert Mugabe stór-
sigur í þingkosningum í
Zimbabwe.
Mugabe er umdeildur
maður. Hann lét fyrst
að sér kveða í Lýðræðis-
flokknum árið 1960. Síðar
færði hann sig yfir í flokk
sem kallaðist Zimbabwe Afríku-
ráðið (Zanu), sem stofnaður var
árið 1963, og stundaði skæruliða-
hernað gegn hvíta minnihlutanum
sem réði ríkjum í Rhodesíu (eins
og Zimbabwe var kallað áður).
Mugabe var handtekinn árið
1964 og dæmdur í tíu ára fangelsi.
Á meðan hann sat bak við lás og
slá lagði hann stund á lögfræði og
stjórnun. Hann er með BS-gráðu
í hagfræði frá University
of London og fimm aðrar
háskólagráður í stjórnun
frá Háskólanum í Suður-
Afríku. Úr fangelsinu stýrði
hann einni deild innan
Zanu og þannig barst
hróður hann víða.
Þegar út var komið hélt
Mugabe baráttunni áfram. Hann
bauð sig svo fram fyrir Zanu í
kosningunum árið 1980. Margir
telja að kosningarnar hafi verið ein
stór svikamylla. Samkvæmt opin-
berum tölum fékk Zanu 57 af 80
þingsætum og var Mugabe gerð-
ur að forsætisráðherra. Hann
hefur gegnt forsetaembættinu í
Zimbabwe frá 1987 og er enn afar
umdeildur.
ÞETTA GERÐIST: 4. MARS ÁRIÐ 1980
Mugabe verður forsætisráðherra
Menningarmiðstöðin Gerðuberg
fagnar 25 ára afmæli sínu í dag. Elísa-
bet Bjarklind Þórisdóttir hefur verið
framkvæmdastjóri frá upphafi og átt
veigamikinn þátt í því að móta starfið.
Hún segist í fyrstu hafa byggt mið-
stöðina upp á eigin hugmyndum enda
var engin fyrirmynd til.
„Hugmyndin var að leggja jafna
áherslu á starf fyrir alla aldurshópa og
hefur það einkennt menningarmiðstöð-
ina í gegnum árin. Við höfum gert mikið
með börnum og fyrir börn en ekki síður
sinnt þeim sem hafa lagt grunninn að
því góða samfélagi sem við búum í með
vinnuframlagi sínu og menningu. Svo
beinum við að sjálfsögðu sjónum að
þeim sem rísa hæst hverju sinni í rit-
list, myndlist og sjónlist,“ segir Elísa-
bet og rifjar upp söguna:
„Við einbeittum okkur mikið að tón-
list fyrstu árin en þá var Jónas Ingi-
mundarson okkar helsti tónlistarráð-
gjafi og samverkamaður. Gerðuberg
gaf út fjölda geisladiska með einsöngs-
lögum sem hljóma enn nánast daglega
á öldum ljósvakans.“
Elísabet nefnir einnig listasmiðj-
urnar Gagn og gaman sem voru starf-
ræktar í ein sautján ár. Þær voru hugs-
aðar sem mótvægi við þau keppnis-
námskeið og þær íþróttir sem boðið
var upp á fyrir börn í borginni. Í lista-
smiðjunum kepptu börnin bara við
sig sjálf og fengu frekar leiðsögn en
kennslu. Myndlistarmenn voru svo
fengnir til að velja myndir af nám-
skeiðunum og úr varð eina myndlist-
arsafn eftir börn á landinu, en í því
eru hátt í þúsund myndir. „Við höfum
lagt mikla vinnu í að merkja og skrá-
setja myndirnar og í september verð-
ur haldin sýning með verkunum í Ráð-
húsinu,“ segir Elísabet. Sýningin mun
svo fara víðar enda er markmiðið að
vekja athygli á því hversu skapandi
börn eru.
Um þessar mundir stendur yfir
sýning sem ber heitið Hið breiða holt
en Elísabet segir starfsfólk Gerðu-
bergs lengi hafa gengið með þá sýn-
ingu í maganum.
„Við fengum unglinga til að mynda
einhvern nákominn sem var kominn
yfir 67 ára aldurinn og sú manneskja
myndaði síðan unglinginn. Báðir að-
ilar fengu smá kennslu í ljósmynd-
un og síðan var tekin mynd af þeim
saman. Myndirnar eru síðan settar
upp saman og erum við afskaplega
ánægð með útkomuna.“ segir Elísabet
og bætir við að markmið Gerðubergs
sé að vera uppbyggjandi, fræðandi,
leiðandi á sínu sviði sviði og skemmti-
legt. „Við höfum verið óhrædd við að
fara ótroðnar slóðir og erum stundum
á jaðrinum. Við höfum lagt áherslu á
að starfa þar sem okkur finnst eitt-
hvað vanta í litrófið og hjálpað fólki
að láta hugmyndir og drauma rætast,“
segir hún.
Á afmælisárinu verða margvísleg-
ar uppákomur í Gerðubergi en í dag
verða opnaðar tvær sýningar. Annars
vegar er það sýningin Stefnumót við
safnara III: Hljómfagurt stefnumót
við tónlistarfólk og hljóðfæraleikara
og hins vegar Vatnslitastemmningar
Maríu Loftsdóttur alþýðulistakonu frá
ferðalögum vítt og breitt um heiminn.
vera@frettabladid.is
MENNINGARMIÐSTÖÐIN GERÐUBERG: TUTTUGU OG FIMM ÁRA AFMÆLI
Fyrir unga jafnt sem aldna
Elísabet Bjarklind Þórisdóttir
hefur verið framkvæmdastjóri
Gerðubergs frá upphafi.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Innilegar þakkir til ykkar allra sem
sýnduð okkur samúð og hlýhug vegna
andláts
Arnóru Friðrikku Salóme
Guðjónsdóttir
síðast til heimilis að Sléttuvegi 13
Reykjavík.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hjúkrunarheimilisins
Skjóli 3. hæð.
Eiríkur Valdimarsson
Arnfríður H. Valdimarsdóttir Ólafur Árnason
Magnúsína G. Valdimarsdóttir Þór G. Þórarinsson
Sigurjóna Valdimarsdóttir Kristjón Sigurðsson
Arnór V. Valdimarsson Guðlaug Jónsdóttir
Páll G. Valdimarsson Soffía Gísladóttir
Sigurborg Valdimarsdóttir Jón Egilsson
Guðjón Valdimarsson Ólafía G. Einarsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og samúð vegna andláts og
útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Guðmundar J. Pálssonar
Gullsmára 7, Kópavogi.
Salbjörg Matthíasdóttir
Páll Hermann Guðmundsson Monica Guðmundsson
Jón Guðmundsson Ágústa Karlsdóttir
Sólfríður Guðmundsdóttir
Guðmundur Þór Guðmundsson Steinunn Fjóla
Ólafsdóttir
Svanhvít Guðmundsdóttir Kjartan Harðarson
Matthías Guðmundsson Ólöf Sveinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafað-
ir, afi og langafi,
Rögnvaldur Ó. Johnsen
Háteigsvegi 12, Reykjavík,
lést á Landspítalanum í Fossvogi þriðjudaginn
26. febrúar. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 6. mars kl. 15.00.
Dóra Johnsen
Ástríður Johnsen
Gunnar V. Johnsen Bergþóra Sigmundsdóttir
Guðni Ingi Johnsen Helga Sæmundsdóttir
Inga Dóra Sigvaldadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
r minn, faðir okkar, tengda-
fi
teinsson
maður Loftleiða/Flugleiða
Vogatungu 45, Kópavogi
ars.
t Anna Jónsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
J. Sigurður Gunnsteinsson
fyrrverandi starfsmaður Loftleiða/
Flugleiða,
lést á heimili sínu, Vogatungu 45 Kópavogi, laugardag-
inn 1. mars.
Margrét Anna Jónsdóttir
Gunnsteinn Sigurðsson Dýrleif Egilsdóttir
Þorgerður Ester Sigurðardóttir Einar Ólafsson
Jón Grétar Sigurðsson Sveinbjörg Eggertsdóttir
Anna Sigríður Sigurðardóttir Guðni Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ólöf Kristín Erlendsdóttir
Háaleitisbraut 36, Reykjavík,
andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 26. febrúar.
Útförin fer fram frá Grensáskirkju föstudaginn 7. mars.
kl. 13.00.
Margrét Guðjónsdóttir
Ingunn Kristín Guðjónsdóttir
Guðrún Guðjónsdóttir Björn Stefánsson
Guðjón Erlendur Guðjónsson Freyja Sverrisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg dóttir mín, móðir, tengdamóðir,
amma, systir, frænka og fyrrum eiginkona,
Hafdís Þórarinsdóttir
sjúkraliði á Akureyri,
er látin. Útförin verður auglýst síðar.
Þórdís Brynjólfsdóttir
Þórarinn Jakob Þórisson Maren Óla Hjaltadóttir
Hanna Bryndís Þórisdóttir Gunnar Jón Eysteinsson
Brynjar Davíðsson Gréta Björk Halldórsdóttir
Sigurður Heiðar Davíðsson Sylvía Dögg Tómasdóttir
Dröfn Þórarinsdóttir
barnabörn og aðrir aðstandendur
Davíð Hauksson
timamot@frettabladid.is