Fréttablaðið - 04.03.2008, Side 49
ÞRIÐJUDAGUR 4. mars 2008 29
Hin ástralska Sophie Monk hefur
vísað því á bug að fyrrverandi
kærasti hennar, Benji
Madden, hafi slitið
trúlofun þeirra fyrir Paris
Hilton. Madden og
Hilton hafa verið
afar náin upp á
síðkastið, aðeins
örfáum vikum
eftir að sambandi
Madden og Monk
lauk. „Ég skal hafa
þetta eins skýrt og ég
get, Benji fór ekki frá
mér fyrir Paris Hilton,“
segir Monk. „Ég ber
engan kala til Benji
eða Parisar og er mjög
ánægð með lífið eins og
það er.“
Tobey Maguire, sem hefur
verið grænmetisæta í
mörg ár, hefur bannað
leður í húsinu sínu.
Leikarinn biður gesti
á heimili sínu í Los
Angeles að fjarlægja
allt sem gert er úr
leðri áður en þeir
ganga í bæinn, þar
með talið skó, belti
og leðurtöskur að andvirði allt að
250 þúsundum króna. Leikarinn
segir lyktina af leðri valda honum
ógleði.
Kate Hudson segist
ætla að klæðast eins
litlu og hún mögulega
getur eins lengi og hún
mögulega getur, og þá
helst bikiníi. „Ég veit
að ég mun ekki vera
með þennan líkama
að eilífu, því ég myndi
vilja eignast annað
barn einhvern tíma,“
segir leikkonan.
Hún á fjögurra ára
gamlan son, Ryder,
með rokkaranum Chris
Robinson.
Ofurfyrirsætan Heidi
Klum vill að Victoria’s
Secret hanni líka
nærföt fyrir karlmenn.
Henni finnst ósann-
gjarnt að einungis
konur geti klæðst
flottum nærfötum
og segir að eigin-
maður hennar, Seal,
myndi fagna slíkri línu.
„Boxernærbuxur eru allt
í lagi, en margt miklu
kynþokkafyllra er til sem
má hanna á karlmenn,“
segir hún.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Harry Bretaprins sneri aftur
heim frá Afganistan til Englands
á laugardag. Talið er að hann
muni ekki taka þátt í
hernaðaraðgerðum á erlendri
grundu aftur í bráð, en prinsinn
sagði við heimkomuna að hann
vildi gjarnan snúa aftur.
Hann sagðist jafnframt vera
vonsvikinn yfir því að hafa þurft
að stytta tíma sinn í Afganistan.
„Ég hélt að ég gæti klárað þetta
og komið aftur með strákunum
okkar. Innst inni finnst mér svo
sem ágætt að vera kominn aftur,
og ég hlakka til að fara í bað… En
nei, ég hefði viljað vera áfram
með strákunum,“ segir prinsinn,
sem vill ekkert með hetju-
nafnbótina hafa. „Það voru tveir
slasaðir menn sem voru í
flugvélinni með okkur á leiðinni
heim, og voru eiginlega í móki
alla leiðina. Einn hafði misst tvo
útlimi – vinstri og hægri handlegg
– og annar lifði af því að líkami
félaga hans var fyrir honum, en
fékk sprengjubrot í hálsinn. Þeir
eru hetjurnar,“ segir Harry.
Faðir hans, Karl Bretaprins,
kvaðst einnig vera vonsvikinn að
Harry hefði ekki getað snúið
heim með hersveit sinni, eins og
upphaflega hefði verið áætlað.
Hann leit þó einnig á björtu
hliðarnar. „Eins og þið getið
ímyndað ykkur er það mikill
léttir hvað mig varðar að fá hann
heim í heilu lagi,“ sagði hann við
fjölmiðla. „Ég hef verið mjög
stoltur af Harry,“ bætti hann við.
Segist ekki vera hetja
VILDI VERA LENGUR Harry Bretaprins
kveðst vonsvikinn yfir því að hafa þurft
að snúa heim á undan áætlun, en
hann var fluttur frá Afganistan eftir að
fjölmiðlar greindu frá staðsetningu hans
þar í landi.
Á mánudaginn næsta, 10. mars,
verða liðin tuttugu ár frá því að
Sálin hans Jóns míns kom fram í
fyrsta skipti. Tímamótanna verður
minnst á ýmsan máta og má með
sanni segja að nú séu jólin hjá
Sálaraðdáendum. Hljómsveitin
spilar á stórtónleikum í Laugar-
dalshöllinni föstudagskvöldið 14.
mars. Sala hefur gengið frábær-
lega á tónleikana, samtals hafa nú
selst 4300 miðar og eru bara örfáir
eftir. Heimasíða sveitarinnar –
salinhansjonsmins.is – mun opna
eftir umfangsmiklar endurbætur
á afmælinu. Síðast en ekki síst
koma svo út tveir Sálarkassar þar
sem allar útgefnar plötur sveitar-
innar verða að finna í bestu hugs-
anlegu hljómgæðum og í mjúkum
pappaumbúðum, ekki ósvipað snið
og á nýja Þursakassanum, en frá-
gangur á þeim kassa þykir hafa
heppnast glæsilega.
Kassar Sálarinnar heita Vatna-
skil 1988-2008, kassi eitt og tvö. Í
fyrri kassanum verða sex
Sálarplötur - Syngj-
andi sveittir, Hvar er
draumurinn, Sálin
hans Jóns míns, Garg,
Þessi þungu högg og
Sól um nótt – en sjö
plötur verða í þeim
seinni – 12. ágúst ’99,
Annar máni, Logandi
ljós, Sálin & Sinfó - Vatnið, Undir
þínum áhrifum, Sálin & Gospel –
Lifandi í Laugardalshöll og svo ný
plata, Arg. Sú plata inniheldur öll
safnplötulög Sálarinnar frá því að
safnplatan Garg kom út árið 1992.
Á Arginu verður að finna ellefu
lög, þeirra á meðal „Þú fullkomnar
mig“ og orginal útgáfuna af
„Orginal“.
Með í kassunum verða plötubæk-
lingar með lagatextum og Stefán
Hilmarsson rekur sögu hverrar
plötu fyrir sig. Þessi veglega kassa-
gerð Sálarinnar stendur nú yfir í
verksmiðju erlendis, en stefnt er
að því að kassarnir
verði komnir út fyrir
Laugardalshallartón-
leikana.
- glh
Sálin í kassagerð
Blindi gítarleikarinn Jeff Healey,
sem var þekktur fyrir að spila
með gítarinn í kjöltunni, er látinn,
41 árs gamall. Lést hann á
sjúkrahúsi í Toronto eftir baráttu
við krabba-
mein.
Healey,
sem var
kanadískur,
var
tilnefndur
til
Grammy-
verðlaun-
anna 1988
fyrir
plötuna See
the Light.
Seldist hún
í einni
milljón
eintaka í
Bandaríkj-
unum. Hans
nýjasta
plata, Mess
of Blues, er
væntanleg í búðir víðsvegar um
heiminn á næstu vikum. Á meðal
tónlistarmanna sem Healey
spilaði með á ferlinum voru BB
King, Mark Knopfler og George
Harrison.
Jeff Healey
látinn
JEFF HEALEY Gítarleikar-
inn Jeff Healey er látinn,
41 árs gamall.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES
KOMNIR AF UNGLINGSALDRINUM
Sálin hans Jóns míns er að verða tvítug.
VATNASKIL 1988 - 2008
Sálarkassarnir hafa að
geyma 13 plötur.