Fréttablaðið - 04.03.2008, Blaðsíða 50
30 4. mars 2008 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
Aðalfundur
Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Haukar verður
haldinn á Ásvöllum þriðjudaginn 11. mars kl. 20.
Dagskrá:
Aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins
Félagar fjölmennið!
Aðalstjórn Hauka
FÓTBOLTI Vandræðagemlingurinn
Antonio Cassano ætlar ekki að
breytast. Nú er þessi 25 ára gamli
sóknarmaður Sampdoria í
vandræðum eftir leik gegn Torino
um helgina.
Cassano skoraði eitt marka síns
liðs í 2-2 jafntefli en fagnaði með
því að sparka niður hornfánann.
Dómarinn Nicola Pierpaoli
spjaldaði hann fyrir vikið en svo
fékk Cassano annað gult spjald í
lok leiksins og missti algjörlega
stjórn á sér.
Hann strunsaði út af vellinum,
kastaði peysunni sinni í dómarann
og kallaði: „Ég bíð eftir þér fyrir
utan völlinn,“ eins og versta
fótboltabulla. - óój
Ítalinn Antonio Cassano:
Henti peysunni
í dómarann
Á SKOTSKÓNUM Antonio Cassano fagn-
ar einu marki sínu. NORDICPHOTOS/AFP
KÖRFUBOLTI Yao Ming ætlar sér að
vera orðinn klár fyrir Ólympíu-
leikana í Peking í haust en hann
gekkst í gær undir aðgerð á fæti
sem hefur kostað hann tímabilið
með Houston Rockets.
Yao Ming þarf að hvíla í þrjá til
fjóra mánuði eftir aðgerðina. Yao
telur að þeir tveir mánuðir sem
þá eru eftir séu nóg til að koma
sér í form fyrir leikana.
Miklar líkur eru taldar á því að
þessi 27 ára og 229 cm miðherji
muni kveikja Ólympíueldinn á
opnunarhátíðinni en hann er ein
allra skærasta íþróttastjarna
Kína. - óój
NBA-stjarna Kína í aðgerð:
Yao Ming ætlar
að spila á ÓL
ÁHORFANDI Yao Ming leggur mikla
áherslu á að vera með á ÓL í Peking.
NORDICPHOTOS/GETTY
MEISTARADEILDIN
Leikir kvöldsins - Úrslit í fyrri leik
Man. Utd - Lyon 1-1
AC Milan - Arsenal 0-0
Barcelona - Celtic 3-2
Sevilla - Fenerbahce 2-3
FÓTBOLTI Búast má við einhverri
dramatík í kvöld er fjögur liða
geta tryggt sér sæti í átta liða
úrslitum Meistaradeildar Evrópu.
Flestra augu munu vafalítið bein-
ast að Old Trafford, þar sem
Manchester United fær Lyon í
heimsókn, og San Siro þar sem
Arsenal sækir Evrópumeistara
AC Milan heim.
Sir Alex Ferguson, stjóri Man.
Utd, játar það fúslega að hann
óttist hinn tvítuga framherja
Lyon, Karim Benzema, en hann
skoraði frábært mark í fyrri við-
ureign liðanna sem endaði með
jafntefli, 1-1.
„Benzema spilar einn frammi
og er stórhættulegur. Hann sýndi í
fyrri leiknum að hann getur skorað
úr engu færi og eðlilega hefur
maður áhyggjur af slíkum leik-
manni. Við þurfum einnig að vara
okkur á spyrnum Juninho, sem
eru stórhættulegar,“ sagði Fergu-
son en Jean-Michel Aulas, forseti
Lyon, er í smá deilu við stjórann
eftir að hann ásakaði Ferguson um
að koma Benzema úr jafnvægi
með því að lýsa yfir áhuga á að
kaupa hann.
„Ég fór til Frakklands og sá leik,
fékk mér svo að borða með honum
og í kjölfarið fór hann í fjölmiðla
og sagði að ég hefði verið að ræða
um Benzema við hann. Ég minntist
ekki einu orði á Benzema við hann.
Mér sýnist hann nú vera í ein-
hverjum leik sem á að vera Lyon
til góða,“ sagði Ferguson.
Arsenal á fyrir höndum sitt
stærsta verkefni í vetur; að fara
til Mílanó og ná að minnsta kosti í
mark og jafntefli til þess að kom-
ast áfram. Fyrri leik liðanna lykt-
aði með markalausu jafntefli
en Emmanuel Adebayor hefði
getað tryggt Arsenal sigur í
lokin er hann fékk
dauðafæri.
„Við settum
mikla pressu á þá í
síðari hálfleik en
þá sá ég Kaladze
og Maldini
spjalla og
hreinlega
hlæja. Það segir meira en mörg
orð um hversu öruggir þessir
gaurar eru með sig,“ sagði
Adebayor, sem hefur
skorað nítján mörk í
úrvalsdeildinni í vetur.
„Munurinn á Meistaradeildinni
og úrvalsdeildinni er helst sá að ef
maður tapar boltanum á eigin
vallarhelmingi er alltaf mikil
hætta á ferðum í Meistaradeild-
inni. Meistaradeildin er stundum
eins og körfubolti, ef maður tapar
boltanum er búið að skora á mann
um leið,“ sagði Adebayor.
henry@frettabladid.is
Hræddur við Benzema
Fjögur lið geta í kvöld tryggt sér sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evr-
ópu. Manchester United fær Lyon í heimsókn og Sir Alex Ferguson hefur miklar
áhyggjur af Karim Benzema, framherja Lyon. Arsenal fer til Mílanó.
ÞARF AÐ FINNA SKOT-
SKÓNA Það er ljóst að
Emmanuel Adebayor og
félagar í Arsenal verða
að skora á San Siro.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
STÓRHÆTTULEGUR Varnarmenn Manchester United verða að hafa góðar gætur á
Karim Benzema, framherja Lyon, í kvöld en hann skoraði frábært mark í fyrri viður-
eign liðanna. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Það er heldur betur farið að birta til hjá handbolta-
kappanum Loga Geirssyni. Hann hefur verið mikið
meiddur síðustu mánuði, var í engu leikformi á
EM en er nú loksins á réttri leið. Hann er búinn
að skora 21 mark í síðustu tveimur leikjum, fyrst
10 og síðan 11 sem er það mesta sem hann
hefur skorað í þýsku úrvalsdeildinni.
„Ég er loksins orðinn heill heilsu og þá fer
þetta að smella. Það er óhætt að segja að ég
sé sjóðandi heitur þessa dagana og ég klikka
varla á skoti. Það er langt síðan ég hafði svona
gaman af þessu. Þarf ekki að eltast við meiðslin og get
notið mín á æfingum sem og í leikjum. Það er frábært
þegar gengur svona vel og ef ég á að segja eins og er
finnst mér ég eiga þetta skilið eftir öll vandræðin sem hafa
verið,“ sagði Logi kampakátur við Fréttablaðið í gær.
Undir lok síðasta árs spurðist það út að Lemgo vildi losna
við Loga og hann fann fyrir því sjálfur. Hann segir því
ljúft að geta svarað almennilega fyrir sig nú á vellinum.
„Ég var einmitt að hugsa um að segja við þá eftir síð-
asta leik hvort þeir ætluðu ekki að láta mig fara núna,“
sagði Logi léttur. „Ég fékk mikið af fyrirspurnum eftir
EM þar sem félögin vissu að ég var lítið að spila með
Lemgo. Sá möguleiki var alveg í stöðunni. Félagið
sagði aldrei neitt við mig en einhverra hluta vegna
voru fyrirspurnirnar orðnar margar og mig grunaði
svo sem af hverju það væri. Þess utan voru sífellt
fréttir af því að þeir væru að skoða leikmenn í
mínar stöður.
Ég sagðist samt alltaf vilja spila á fullu fyrir Lemgo. Þeim
fannst ég vera of dýr miðað við hvað ég spilaði lítið vegna
meiðsla en ég sagði á móti að það kæmi af því ég væri að
gera allt fyrir félagið. Eftir á að hyggja var þetta kannski ágætt
fyrir mig. Menn hafa stundum gott af því að fá blauta tusku
í andlitið. Mótlætið getur eflt mann mikið og það á við um
mig í þessu tilviki,“ sagði Logi ákveðinn en hann segist ætla
að gera eitthvað óvænt og brjálað ef hann nær þrem álíka
leikjum í röð í viðbót.
LOGI GEIRSSON: LOKSINS LAUS VIÐ MEIÐSLIN OG FER Á KOSTUM ÞESSA DAGANA MEÐ LEMGO
Óhætt að segja að ég sé sjóðandi heitur
HANDBOLTI Dagur Sigurðsson
skrifaði í gær undir samning við
austurríska handboltasambandið
um þjálfun karlalandsliðs
Austurríkis fram yfir EM 2010
sem fer einmitt fram í Austurríki.
„Umgjörðin í kringum liðið er
mjög flott. Ég held að það séu
einir átta starfsmenn í fullu starfi
í kringum þetta. Þetta er ekki
mikið starf hjá mér þannig séð. Á
þessu ári er viðveran um 40
dagar og á næsta ári um 60-70
dagar,“ sagði Dagur við Frétta-
blaðið frá Vín í gær en hann veit
nákvæmlega hvar hans lið
stendur gegn þeim bestu um
páskana er Austurríki tekur þátt í
móti með Svíum, Þjóðverjum og
Túnis.
Þegar kemur að því að draga í
riðla fær heimalandið að velja í
hvaða riðli það spilar og Dagur
gæti því vel ákveðið að fara í
sama riðil og Ísland verði
íslenska liðið meðal þáttakenda á
mótinu.
„Ég myndi vaða beint í þann
riðil,“ sagði Dagur og hló létt.
„Nei, annars veit ég ekki. Maður
metur það er að kemur en
vissulega væri það mjög
skemmtilegt og ég get ekki alveg
hugsað það til enda. Það væri
annars gaman að fá æfingaleiki
gegn Íslandi einhvern tímann.“
- hbg
Dagur tekinn við Austurríki:
Væri gaman að
mæta Íslandi
MÆTTUR Í SLAGINN Dagur sést hér með
austurríska trefilinn eftir undirskriftina
fyrir framan Ráðhúsið í Vín.
FRÉTTABLAÐIÐ/HAGENPRESS
> Hvar er stigið mitt?
Íslandsmeistarar KR-inga unnu eins stigs sigur á
Stjörnunni, 106-105, á föstudag í Iceland Express-deild-
inni í körfubolta. Jovan Zdravevski átti góðan leik með
Stjörnunni gegn sínum gömlu félögum og skoraði 26
stig. Makedóninn segist hafa verið svikinn um eitt stig
í leiknum, taldi sig hafa skorað þriggja stiga körfu í fyrri
hálfleik sem hann fékk bara tvö stig fyrir. Dómari leiksins
gaf merki um þriggja stiga skot en breytti því síðan
skömmu síðar. Þegar Jovan horfði aftur á
upptöku af leiknum sá hann ekki þegar
dómararnir breyttu körfunni í tveggja
stiga körfu heldur einungis þegar dómari
leiksins gaf merki um þrjú stig. Jovan var
augljóslega langt fyrir innan og
úrslit leiksins standa; sárt eins
stigs tap Stjörnumanna.
HANDBOLTI Það bendir flest til þess að Óskar Bjarni
Óskarsson, þjálfari Íslands- og bikarmeistara Vals,
verði ráðinn aðstoðarlandsliðsþjálfari á allra næstu
dögum.
Óskar Bjarni staðfesti við Fréttablaðið í gær að
HSÍ væri búið að hafa samband við hann og mun
hann líklega hefja viðræður við sambandið í dag.
„Við mig hefur verið haft samband og sú hug-
mynd viðruð hvort ég vildi taka að mér starfið. Ég
hef sagt það áður að ég hef mikinn áhuga á starfinu
og er klár í viðræður enda finnst mér þetta vera
verulega spennandi starf og verkefin framundan
áhugaverð og krefjandi,“ sagði Óskar Bjarni við
Fréttablaðið í gærkvöldi en hann þarf einnig að
ræða málið við sína yfirmenn.
„Þetta er spurning um að púsla þessu saman og ég
þarf að fara yfir málin með Degi
Sigurðssyni sem er erlendis. Sannast
sagna sé ég engin stór ljón í veginum
og geri ekki ráð fyrir því að þetta
verði eitthvað vandamál. Ég býst fast-
lega við því að verða aðstoðarþjálfari
Guðmundar ef ég á að segja eins og
er. Það þýðir ekkert að fara í graf-
götur með það,“ sagði Óskar
Bjarni. - hbg
HSÍ er búið að bjóða Óskari Bjarna Óskarssyni í samningaviðræður:
Býst við að verða aðstoðarþjálfari
ÓSKAR BJARNI Fyrsti kostur
Guðmundar Guðmundssonar
landsliðsþjálfari um aðstoðar-
mann. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON