Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 4
4 13. mars 2008 FIMMTUDAGUR VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Basel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 7° 7° 7° 4° 5° 11° 12° 9° 3° 8° 20° 17° 9° 11° 24° 10° 25° 14° Á MORGUN 10-15 m/s allra austast, annars 5-10 m/s. LAUGARDAGUR Hæg, breytileg átt. 0 1 2 2 3 6 3 4 2 2 -1 10 10 5 6 6 6 4 8 6 10 8 -1 -1 1 31 0 -1 -1 12 HELGARHORFUR Þær eru fl ottar veðurhorfurnar um helgina. Hæg breytileg átt og víða bjart á laugar- dag en á sunnudag verður skýjað sunnan og vestan til en vindur áfram mjög hægur. Hitinn verður ekki mjög fjarri frostmarki. Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur ALÞINGI Þingmenn landsbyggðar- kjördæmanna og formenn stjórnarandstöðuflokka geta ráðið sér aðstoðarmenn í kjölfar breytinga á lögum um þingfarar- kaup sem samþykktar voru í gær. Fjallað er um aðstoðarmenn þingmanna í þingsköpum en breyta þurfti lögum svo heimild fengist til greiðslu launa aðstoðar- mannanna. Áður var gert ráð fyrir kostnaðinum í fjárlögum. Forsætisnefnd þingsins undir forystu Sturlu Böðvarssonar þingforseta mælti fyrir frum- varpinu. Eru þetta fimmtu lögin sem samþykkt hafa verið á árinu. - bþs Breytt lög um þingfararkaup: Þingmenn geta fengið aðstoð INDLAND, AP Hundruð útlægra Tíbeta héldu í gær áfram mót- mælagöngu frá Indlandi til Tíbet. Áformað er að gangan taki hálft ár og göngumenn komi til Tíbet á meðan Ólympíuleikarnir í Peking standa sem hæst. Indversk stjórnvöld hafa bannað göngumönnum að yfirgefa Kangra-héraðið á Norður-Indlandi. Stjórnvöld óttast að gangan geti haft slæm áhrif á samskipti Indlands og Kína. Mótmælagangan er hluti af skipulagðri herferð til að minna á ástandið í Tíbet. Í gær beitti lögregla táragasi gegn um 300 munkum sem efndu til mótmæla í höfuðborginni Katmandu. - bj Tíbetskir útlagar og munkar: Ganga áfram þrátt fyrir bann MÓTMÆLI Tíbetskir búddamunkar voru meðal göngufólks í gær. NORDICPHOTOS/AFP EFNAHAGSMÁL Íslenskt barnafólk borgaði hlutfallslega meira í skatt árið 2006 en um aldamótin. Á sama tíma léttist skattbyrði barnafólks að meðaltali í ríkjum Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri skýrslu stofnunar- innar síðan í gær. Rýrnun skattleysismarka, barna- bóta, vaxtabóta og annarra aðgerða sem ætlað er að létta á skattbyrði er ein orsök þessarar þróunar á Íslandi, segir í skýrslunni. Í stig- hækkandi skattkerfi geti launa- hækkanir sem ætlað er að endur- spegla verðbólgu einnig valdið því að skattbyrðin aukist. Í skýrslunni kemur líka fram að skattabreytingar á Íslandi hafi að mestu leyti gagnast þeim sem hafi hærri tekjur. Það sé þvert á almenna þróun innan OECD-ríkj- anna, þar sem skattabreytingar gagnist oftar þeim tekjulægri. „Það er ekkert nýtt í þessari skýrslu, þetta er samhljóða því sem ég hef verið að segja hér um þróun- ina í tekjuskatti einstaklinga,“ segir Stefán Ólafsson, prófessor við félagsvísindadeild Háskóla Íslands. „Hann hefur verið að aukast vegna rýrnunar skattleysismarka.“ Stefán skrifaði grein í Morgun- blaðið í janúar 2006 undir yfir- skriftinni „Stóra skattalækkunar- brellan“. Þar sagði hann að skattar á almenning hefðu ekki lækkað áratuginn sem á undan leið eins og stjórnvöld hefðu haldið fram. Þvert á móti hefðu þeir hækkað. Framkvæmd skattastefnu ríkis- stjórnarinnar hefði stóraukið ójöfnuð í landinu. Daginn eftir gagnrýndi Árni Mathiesen fjármálaráðherra grein Stefáns harðlega í fjölmiðl- um, og sagði hann tala sem minnst um þær staðreyndir sem mestu máli skipti. Meira væri um brellur í grein Stefáns en í skatta- lækkunarferli ríkisstjórnar- innar. „Ég hlýt að líta þannig á að þessi skýrsla veiti mér uppreisn æru,“ segir Stefán. „Ég hef aldrei efast um að þetta myndi koma skýrt og klárlega fram þegar fram liðu stundir og menn hætti að slá ryki í augu fólks til að reyna að villa um fyrir því.“ salvar@frettabladid.is Skattbyrði barna- fólks hefur þyngst Íslenskt barnafólk borgaði meira í skatt árið 2006 en sex árum áður. Það er þvert á meðaltalsþróun innan OECD, samkvæmt skýrslu. Prófessor segir orsökina rýrn- un skattleysismarka. Hærri skattur vegna hærri tekna, segir fjármálaráðherra. „Þetta er það sama og menn hafa verið að tala um,“ segir Árni Mathiesen fjármálaráðherra. „Við erum með stighækkandi skattkerfi þar sem þeir sem hafa hærri tekjur borga meira í skatt. Skattarnir hafa aukist af því að tekjurnar hafa aukist.“ Hann segist aldrei hafa neitað því að skatttekjur ríkisins hafi aukist, en með þeim hafi ríkisstjórnin getað greitt niður skuldir og aukið fjármuni til velferðarkerfisins. „Skattarnir hafa lækkað en tekjuaukningin hefur verið svo mikil að fólk borgar á end- anum meira í skatt. Það er ekkert SKATTAR HAFA HÆKKAÐ MEÐ TEKJUNUM LÖGREGLUMÁL Fimmti maðurinn sem lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu leitaði að vegna þjófnaðar á skotvopnum í Hafnarfirði er fundinn. Hann gaf sig fram í fyrrakvöld eftir að lögreglan hafði náð tali af honum. Maðurinn, sem er rétt rúmlega tvítugur, viðurkenndi þátt sinn í málinu og einnig aðild sína að öðrum þjófnaðarmálum á höfuð- borgarsvæðinu. Honum var sleppt að lokinni skýrslutöku. Áður hafði lögregla yfirheyrt fjóra menn vegna umræddra mála. Þeim var sleppt að loknum yfirheyrslum og telst málið upplýst. - jss Vopnaþjófnaður upplýstur: Fimmti maður- inn fundinn FORELDRI Á GANGI Auk Íslands þyngdist skattbyrði á barnafólk á árunum 2000 til 2006 meðal annars í Grikk- landi, Kóreu og Mexíkó. Að meðaltali léttist hún í ríkjum OECD á þessu tímabili. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR BANDARÍKIN, AP Barack Obama vann forkosningar demókrata í Mississippi-ríki sem fram fóru á þriðjudag. Obama hlaut 61 prósent atkvæða gegn 37 prósentum Hillary Clinton. Ljóst er að Obama hefur hlotið að minnsta kosti 17 af 33 lands- fundarfulltrúum sem kosið var um í forkosningunum. Í heildina hefur hann 1.385 fulltrúa gegn 1.237 fulltrúum Clinton, sam- kvæmt talningu AP. 2.025 fulltrúa þarf til að hljóta útnefningu sem forsetaframbjóðandi demókrata. Næstu kosningar fara fram í Pennsylvaníu, en þar eru 158 fulltrúar á boðstólum. - sgj 148 fulltrúa forskot Obama: Obama sigrar í Mississippi NÁTTÚRA Mælt er með hvalaskoð- un á Ströndum út frá Drangsnesi og í Steingrímsfirði í hag- kvæmnis athugun á kostum skipulagðrar hvalaskoðunar á Vestfjörðum. Reykjanes í Ísafjarðardjúpi er einnig talið álitlegur staður til hvalaskoðunar. Niðurstöður athugunarinnar voru kynntar á fundi í gær. Þar kom fram að hvala skoðun væri í örum vexti hér á landi, og rúmlega hundrað þúsund manns hefðu farið í slíka ferð á síðasta ári. Vestfirðir væru eina svæðið á Íslandi þar sem hvalaskoðun hefði ekki náð fótfestu, en vel væri hægt að bæta úr því. - sþs Hagkvæmnisathugun: Vestfirskir hval- ir skuli skoðaðir STJÓRNMÁL Minni líkur en meiri eru á að ríkisstjórnin beiti sér fyrir að starfræksla fjárvörslusjóða eða sjálfseignarsjóða (e. trusts) verði heimiluð á Íslandi. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins hafa stórfelld skattsvik efnaðra Evrópumanna sem geymt hafa fjárfúlgur í skattaskjólinu Liechtenstein dregið úr áhuga ráð- herra enda geti starfsemin skaðað ímynd Íslands. Sagt var frá því í Fréttablaðinu í gær að frumvarpsdrög viðskipta- ráðherra um fjárvörslusjóði væru til skoðunar í fjármálaráðuneytinu og í nefnd sem fjallar um aðgerðir gegn peningaþvætti. Geir H. Haarde forsætisráð- herra sagði á Alþingi í síðustu viku ýmis álitamál uppi og nauðsynlegt að gæta þess að Íslendingar fengju ekki á sig ásakanir um peninga- þvætti. Frumvarpsdrögin voru lengi í smíðum í viðskiptaráðuneytinu og hófst vinnan í ráðherratíð Jóns Sig- urðssonar á síðasta kjörtímabili. Nefnd forsætisráðherra um alþjóðlega fjármálastarfsemi taldi raunhæft að á þremur árum gæti umsýsla fjárvörslusjóða numið yfir 2.500 milljörðum króna og að tekjuaukning þjóðarbúsins vegna þeirra gæti numið 100 milljörðum. - bþs Líkur hafa minnkað á að frumvarp um fjárvörslusjóði verði lagt fram á Alþingi: Liechtenstein-svikin víti til að varast SKATTAPARADÍS Ráðamenn telja mikilvægt að vernda orðspor Íslands á alþjóðavettvangi og finnst því óráðlegt að heimila starfsemi sem gefið geti ásökunum um peningaþvætti eða skattasvik byr. Varðhaldi lýkur í dag Gæsluvarðhald rennur út í dag yfir fimm Litháum sem grunaðir eru um að hafa byrlað konu ólyfjan og nauðgað henni í heimahúsi. Að sögn lögreglu verður afstaða tekin til þess í dag hvort framlengja eigi varðhaldið. LÖGREGLUFRÉTTIR GENGIÐ 12.03.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 136,6812 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 68,03 68,35 137,34 138 105,12 105,7 14,100 14,182 13,331 13,409 11,189 11,255 0,6617 0,6655 110,63 111,29 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.