Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 24
24 13. mars 2008 FIMMTUDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 465 4.937 +0,51% Velta: 11.894 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 7,42 -8,4% ... Bakkavör 40,55 -0,25% ... Eimskipafélagið 28,60 -0,52% ... Exista 12,14 +0,66 ... FL Group 9,00 +0,45% ... Glitnir 17,55 +1,115% ... Icelandair 24,95 -0,40% ... Kaupþing 735,00 +0,00% ... Landsbankinn 28,50 +1,79% ... Marel 88,90 +0,00% ... SPRON 5,06 -0,39% ... Straumur-Burðarás 11,30 +1,16% ... Teymi 4,99 -0,80% ... Össur 89,50 -0,56% MESTA HÆKKUN ATLANTIC PETROL. 3,54% LANDSBANKINN 1,79% STRAUMUR-BURÐA. 1,16% MESTA LÆKKUN ATORKA 8,40% 365 3,40% EIK BANKI 1,00% Fulltrúar stjórnvalda og íslensks viðskiptalífs funda í dag með fjár- málasérfræðingum og fjölmiðlum í Bandaríkjunum til að kynna íslenskt efnahagslíf. Geir H. Haarde forsætisráð- herra sækir árvissan fund Íslensk- ameríska verslunarráðsins (IACC) í New York í Bandaríkjunum í dag, en þar verður farið yfir efnahags- mál hér og svarað spurningum. Á þriðjudag var sambærilegur blaðamannafundur haldinn í Kaup- mannahöfn þar sem Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir utanríkisráðherra sat fyrir svörum. Á ráðstefnu IACC verða auk for- sætisráðherra Lárus Welding, for- stjóri Glitnis, Hreiðar Már Sig- urðsson, forstjóri Kaupþings, Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, og Gregory Miller, prófessor við Harvard Business School, en umræðum stjórnar Þórður Friðjónsson, forstjóri OMX Kauphallar Íslands. Ólafur Jóhann Ólafsson, formaður IACC, fram- kvæmdastjóri Time Warner, rit- höfundur og athafnamaður, opnar ráðstefnuna. - óká GEIR H. HAARDE Forsætisráðherra fundar með amerískum fjölmiðlum í dag í tengsl- um við árvissa ráðstefnu Íslensk-ameríska verslunarráðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Fundað um efnahagsmál Baugur er 47. umsvifamesti smá- sali í heimi, að því er fram kemur í nýrri könnun markaðsrannsókn- arfyrirtækisins Deloitte Touche Tohmatsu. Í niðurstöðum könnun- arinnar kemur fram að tekjur 250 umsvifamestu smásala í heimi hafi vaxið um átta prósent á milli ára og numið 3.250 milljörðum punda í hittiðfyrra. Stærsti smásalinn er sem fyrr bandaríski risinn Wal-Mart en franska verslanakeðjan Carrefour er í öðru sæti. Sérstaklega er tekið fram að af 188 smásölufyrirtækj- um í könnuninni hafi einungis sjö skilað tapi. - jab Baugur í hópi smásölurisa Í VERSLUN WAL MART Ameríska verslun- arkeðjan Wal Mart er stærsti smásali í heimi. Baugur er í 47. sæti. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP Starfsfólk skikkað í frí Breska fjármálaeftirlitið hefur beint þeim tilmæl- um til banka og fjármálafyrirtækja þar í landi að þeir sendi starfsfólk sitt í frí í tvær vikur sam- fleytt á hverju ári. Tilmælin eru á meðal nokk- urra slíkra sem koma eiga í veg fyrir að starfsfólk fyrirtækjanna geti veðjað háum upphæðum á hlutabréfamörkuðum án heimildar. Auk annarra hugmynda sem fjármálaeftirlitið hefur viðrað er möguleiki á því að grannskoða viðskipti og fjármála- gjörninga starfsfólks til að koma í veg fyrir misfærslur og meiri háttar og meðvituð brot. Eftirlitið hefur rætt við fimmtíu fyrirtæki í þessum geira í Bretlandi nú þegar og nokkur þeirra hafa tekið upp breytta starfshætti, að sögn breska dagblaðsins Daily Telegraph í gær. Undarleg vinnuharka Blaðið bætir því við að franski verðbréfaskúrkur- inn Jérôme Kerviel, sem sakaður er um að hafa veðjað sem nemur markaðsverðmæti vinnuveit- anda síns, franska bankans Société Générale, á hlutabréfamarkaði hafi unnið í rúmt ár án þess að hafa tekið sér frí. Eins og fram hefur komið nýtti hann hluta tímans til að fela gjörningana um hver mánaðamót. Slíkt hefði alla jafna átt að vekja grunsemdir. Hvað sem segja má um vinnuhörku Kerviels þá tapaði hann jafnvirði 500 milljarða króna í nafni bankans. Kollegi hans, Íslandsvinurinn Nick Leeson, sem flaggar þeirri vafasömu nafnbót að vera þekktasti verð- bréfaskúrkur heims, þótt hann hafi glutrað niður mun lægri upphæðum, vann sömuleiðis myrkranna á milli. Hver segir svo að sumir hafi ekki gott af fríi? Peningaskápur ... Með heimild til að gefa út breytileg skuldabréf upp að 1,5 milljörðum evra vill Kaupþing fjölga leiðum í fjármögnun, en ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um að ráðast í slíka útgáfu, eða á hvaða kjörum hún kynni að verða. Heimildin til útgáfunnar sem stjórn bankans fékk hjá hluthöfum á aðalfundi bankans síð- asta föstudag gildir í fimm ár, til 1. mars árið 2013. Taki Kaupþing þá ákvörðun að gefa út skuldabréf- in og þeim verði öllum skipt yfir í hlutabréf þegar fram líða stundir næmi sú hlutafjáreign 19,1 prósenti af heildarhlutafé bankans. Aðalfundur bankans samþykkti fyrir helgi heimild til útgáfunnar og jukust verulega í kjölfarið vanga- veltur um mögulega aðkomu fjársterkra fjárfesta úr arabalöndum að bankanum. Bankinn hvorki játar né neitar mögulegri aðkomu fjárfesta að bankanum og tjáir sig ekki um orðróm á markaði. Samkvæmt heim- ildum Markaðarins væri þó óvarlegt að draga slíkar ályktanir, jafnvel þótt bankar í Bandaríkjunum og víðar hafi í stórum stíl farið þá leið að sækja sér með þessum hætti fjármagn til arabalanda, Japans og víðar. Samkvæmt heimildum blaðsins voru ákveðnar efasemdir í stjórn bankans um hvort vænlegt væri að fara þessa leið í fjármögnun bankans, enda á viss- an hátt verið að færa ávinning af hækkandi hluta- bréfaverði í hendur annarra. Þau sjónarmið urðu hins vegar ofan á að þarna gæti verið mikilsverður markaður að sækja í ef í harðbakka slægi í annarri fjármögnun bankans og lausafjárþurrð á fjármála- mörkuðum drægist fram undir árslok. Kæmi til þess væri mikilvægt að hafa þegar heimild hluthafa til að fara þessa leið, fremur en að þurfa að kalla saman sérstakan hluthafafund vegna þessa. - óká Aukning næmi fimmtungi hlutafjár Á AÐALFUNDI KAUPÞINGS Hluthafar Kaupþings samþykktu fyrir helgi heimild til stjórnar til að gefa út víkjandi skuldabréf sem breyta má í nýtt hlutafé í bankanum. Sigurður Einarsson, stjórnar- formaður bankans, sést hér í pontu á fundinum og í baksýn glittir í Hreiðar Má Sigurðsson forstjóra. MARKAÐURINN/ANTON Borgartúni 29 + Höfðabakka 3 Smiðjuvegi 5 + Ögurhvarfi 2 + Iðuhúsinu Glerárgötu 34 Akureyri + Aðalstræti 27 Ísafi rði Páskaföndur 990 kr. 10 stk. 1.280 kr. 10 stk. MARKAÐSPUNKTAR Lýður Guðmundsson, stjórnarformað- ur Existu, er tilnefndur til stjórnarsetu í finnska fjármálafyrirtækinu Sampo Group. Aðalfundur félagsins fer fram 15. apríl næstkomandi. Exista á tæpan fimmtungshlut í fjármálafyrir- tækinu finnska. Velta í dagvöruverslun jókst um 19 prósent á milli ára á föstu verðlagi, samkvæmt upplýsingum Rannsókn- arseturs verslunarinnar sem birt var í fyrradag. Heildarlaunakostnaður hækkaði um 5,7 til 9,1 prósent á síðasta fjórðungi nýliðins árs frá sama tíma í hittiðfyrra, samkvæmt upplýsingum Hagstofu Íslands. Mest var hækkunin í verslun og viðgerðaþjónustu en minnst í byggingarstarfsemi og mannvirkja- gerð. Glitnir ætlar að gefa út breytileg skuldabréf upp á allt að 15 milljarða króna sem síðar verður breytt í hlutabréf í bankanum. Aðalfundur Kaupþings samþykkti fyrir helgi heim- ild til svipaðrar útgáfu, en tífalt stærri og í erlendri mynt. Erlendir bankar, sér í lagi bandarískir, hafa farið þessa leið í fjármögnun. Breytileg skuldabréf þykja aðlað- andi fjárfestingarkostur á banka- markaði. Arðgreiðslur eru tryggar, auk mögulegs gengishagnaðar kjósi fjárfestarnir að breyta þeim síðar í hlutabréf í félaginu sem gaf þau út. Íslenskir bankar hafa ekki áður farið þessa leið í fjármögnun, þótt fyrirtæki hafi gefið út slík skulda- bréf. Stjórn Glitnis hefur ákveðið að gefa út slík skuldabréf upp á allt að 15 milljarða króna og stendur útboð, sem hófst í gær, til fagfjár- festa vegna útgáfunnar allt fram á næsta mánudag. Útgáfan er hins vegar háð samþykki hluthafafund- ar í bankanum, en boðað hefur verið til sérstaks fundar miðviku- daginn 19. mars. Hluthafar Kaupþings samþykktu á aðalfundi bankans fyrir helgi heimild til stjórnar til svipaðrar útgáfu. Heimildin er þó meira en tíu sinnum hærri en nemur útgáfu Glitnis nú og hljóðar upp á 1,5 millj- arða evra, eða tæpa 160 milljarða króna, miðað við gengi gærdagsins. Þá er einnig sá munur á útgáfunum að samkvæmt heimild Kaupþings ráða fjárfestarnir því sjálfir hvort bréfunum verð- ur breytt í hluta- fé í bankanum, hvort heldur sem er að hluta eða heild. Í tilkynningu stjórnar Glitnis til Kauphallar Íslands kemur fram að eftir fimm ár frá útgáfu skuli skuldabréfunum breytt í hlutafé. Bankinn fundar nú með fagfjárfestum hér innanlands til að kynna kjörin í útgáfunni. Skiptiverð yfir í hlutafé eftir fimm ár er fundið út með því að bæta fjármögnunarkostnaði við núver- andi gengi bréfanna. Ættu því fjár- festar að geta hagnast verði hækk- un á gengi bréfa bankans umfram fjármögnunarkostnað. Framreikn- að gengi liggur samkvæmt heimild- um blaðsins í rúmum 27 krónum á hlut. Fari hins vegar svo að gengi bréfa bankans verði lægra en nú fá fjárfestarnir hlutabréf til viðbótar sem nemur lækkuninni og eign þeirra í bankanum stækkar. Alexander K. Guðmundsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Glitnis, segir útgáfu breytanlegra skuldabréfa Glitnis góðan kost fyrir fjárfesta um þessar mundir. „Bréfin eru höfuðstólstryggð, gefa fasta verðtryggða vexti í fimm ár og breytast í hlutabréf að fimm árum liðnum. Fjárfestar njóta þar með góðs af jákvæðri verðþróun á tímabilinu. Útgáfan styrkir eigin- fjárhlutfall Glitnis verulega og er ein fjölmargra fjármögnunarleiða bankans,“ segir hann. Útgáfunni er fyrst og fremst beint til íslenskra fjárfesta nú, segir Alexander, enda í krónum. Hann segir þó ekki hægt að útiloka frekari útgáfu síðar og þá jafnvel til erlendra fjárfesta í erlendri mynt. „En núna er ekkert nýtt í spilunum með það. Heldur þykir okkur bara jákvætt að styrkja hlut- föllin með þessum hætti og fá stuðning þeirra fjárfesta sem þekkja okkur best, en það eru íslenskir fagfjárfestar.“ olikr@frettabladid.is ALEXANDER K. GUÐMUNDSSON PENINGAR Margvíslegar leiðir eru færar í fjármögnun banka, en í lausafjárþurrðinni hefur markaður með breytileg skuldabréf verið einna líflegastur erlendis. Þar mun óplægður akur fyrir íslenska banka. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Halda öllum leiðum opnum í fjármögnun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.