Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 50
13. MARS 2008 FIMMTUDAGUR14 ● fréttablaðið ● fermingar
„Ég fermdist árið 1974 og fékk
dágóða peningaupphæð í ferm-
ingargjöf. Á þessum tíma þótti
það afskaplega góð fjárfesting
að kaupa einhvers konar ríkis-
tryggð innlánsskírteini og auð-
vitað keypti ég svoleiðis fyrir
alla fermingarpeningana mína.
Mér þótti peningunum vel varið
með þessum hætti og sá fram
á að geta gengið að peningun-
um vísum og gott betur þegar
ég væri orðin eldri,“ segir Birna
Einarsdóttir, framkvæmdastjóri
viðskiptabankasviðs Glitnis.
„Bréfin fínu komu svo til inn-
lausnar þegar ég var í Verslunar-
skólanum svo ég fór í hátíðlega
ferð í Landsbankann til að ná í
afraksturinn. Fermingarpening-
arnir mínir höfðu þá brunnið illi-
lega á verðbólgubálinu og upp-
hæðin rétt dugði fyrir pylsu og
kók. Verðbólgan hafði étið upp
restina, ég er nefnilega af hinni
svokölluðu verðbólgukynslóð.“
Birna segir að þótt því sé
þannig farið að landsmenn böl-
sótist oft út í verðtrygginguna
af og til, þá hefði hún svo sann-
arlega komið sér vel á þess-
um tíma. „Fermingarbörn í dag
eru í öllu betri málum. Bankar
taka við þeim opnum örmum og
ávaxta peninga þeirra á öruggan
og arðsaman hátt.“ - vaj
Pylsa og kók
FERMINGARPENINGAR
Birna fékk dágóða
peningaupphæð í
fermingargjöf, sem
brann síðan á verð-
bólgubálinu.
Tíska og hönnun spilar stóran þátt í
lífi margra fermingarbarna. Hérna
er úrval sem hentar bæði hal og
drós sem vilja fá fal-
legt tískupunt
í fermingar-
pakkann.
FERMINGARGJAFIR TÍSKUVITANS
Hettupeysa fyrir
tískuvitann úr
Brim, Laugavegi,
kr. 6.790.
Hrikalega flott
hálsfesti fyrir
fermingar-
pæjuna. KVK,
Laugavegi, kr.
6.500.
Töff
uglu-
púði frá
Fauna/
Salvör.
Kisan,
Lauga-
vegi, kr.
8.400.
Hárskraut
frá KVK,
Lauga-
vegi, kr.
6.500.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
41
32
7
02
/0
8
North Face Aleutian
svefnpoki
Þægilegur að -2C°
Mesta kuldaþol -19C°
fermingargjöf
Flott hugmynd að
Fermingartilboð
9.990 kr.
Verð áður 12.990 kr.
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Í OROBLU
flottar
N‡ju vorvörurnar frá Oroblu eru komnar.
Glæsilegt úrval af toppum, leggings, sokkum og sokkabuxum.