Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 88
52 13. mars 2008 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is Margrét Lára Viðarsdóttir tryggði sér markakóngstitilinn á Algarve Cup með því að skora sitt sjötta mark á mótinu í 3-0 sigri á Finnum í gær. Hún er búin að skora í átta landsleikjum í röð og alls 35 mörk í 39 A-landsleikjum. „Þetta er búið að vera frábært og þessi sigurleikur gegn Finnum var bara til þess að toppa ferðina í alla staði. Við vorum svolítið ryðgaðar í byrjun móts en síðan vorum við farnar að spila glimrandi vel og enduðum þetta síðan með stæl því sigurinn hefði alveg getað orðið stærri,” sagði Margrét Lára. „Við vorum með hápressu nánast allan tímann og það er nokkuð sem íslenska kvennalandsliðið hefur ekki gert áður. Við erum að koma svolítið á óvart með þessu, erum að setja mörk snemma í leikjunum sem gefur okkur síðan aukið sjálfstraust,” sagði Margrét Lára, sem játaði að markið í gær væri eitt það flottasta sem hún hafði skorað. „Þetta mark getur alveg komist inn á topp fimm hjá manni og það var mjög skemmtilegt að skora þetta mark,” segir Margrét og bætir við: „Ég er orðin reynslunni ríkari, búin að spila í nokkur ár og þá fer maður að ná meiri stöðugleika, er að skora frekar í hverjum leik í stað þess að skora þrjú í einum leik en skora síðan ekki í næstu fjórum á eftir. Ég veit að ég þarf að vera klár þegar boltinn kemur því við fáum ekki það mörg færi í hverjum leik,” segir Margrét. Hún er aðeins 22 ára gömul en er engu að síður í leiðtogahlutverki í liðinu. „Ef við lítum yfir leikjafjölda leikmanna held ég að ég sé fjórða í röðinni. Þó að ég sé ennþá ung tek ég mikla ábyrgð í þessu liði og ég held að við gerum það allar. Maður reynir líka að hjálpa þessum yngri sem eru að stíga sín fyrstu skref því maður þekkir alveg hvernig það er,” segir Margrét Lára sem er bjartsýn á árið. „Við ætlum okkur að fara alla leið í ár. Þetta er frábær hópur og mjög sterk liðsheild. Ég held að það sjái það allir sem hafa verið í kringum þennan hóp að þetta er einstakur hópur sem getur náð gríðarlega langt ef við erum tilbúnar að leggja hart að okkur.” MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR MARKAHÆST Á ALGARVE CUP: SKORAÐI Í ÁTTUNDA LANDSLEIKNUM Í RÖÐ Við ætlum okkur að fara alla leið í ár FÓTBOLTI Íslenska kvennalandslið- ið er að gera frábæra hluti undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfs- sonar og sýndi það og sannaði með góðum sigri á sextándu bestu knattspyrnuþjóð heims þegar liðið vann Finnland 3-0 í gær. Margrét Lára Viðarsdóttir, Rakel Hönnudóttir og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir skoruðu mörk íslenska liðsins. Fyrirliðinn Katrín Jónsdóttir fagnaði tvöfalt því hún varð einnig fyrsta konan til þess að spila 70 A-landsleiki. „Ég var mjög ánægður með mótið í heild sinni og leikurinn í dag [gær] var sennilega sá besti hjá okkur á þessu móti. Fyrri hálf- leikurinn var virkilega góður og svo skorum við þrjú mörk og höld- um hreinu. Við erum að senda skilaboð með þessari frammistöðu til mótherja okkur í riðlinum og kannski bara líka til íslensku þjóðar innar um að fylgjast vel með okkur og mæta á leikina okkar í sumar því við erum með þrusugott lið,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari kvennalandsliðsins. Sigurður Ragnar var mjög ánægður með varnarleikinn. „Við erum ekki að fá á okkur nein mörk í opnun leik og varnarlega er íslenska landsliðið mjög öflugt. Ég er núna búinn að vera með liðið í þrettán leikjum og við höfum bara fengið á okkur tólf mörk. Það er góð tölfræði og við höfum líka unnið alla leiki sem við höfum haldið hreinu í þannig að við höfum alltaf haft það sem áhersluatriði að halda hreinu. Það er mjög gott að vinna lið 3-0 sem á að vera sterkara en við,“ sagði Sigurður Ragnar. „Það er margt jákvætt að gerast hjá okkur. Það eru nýliðar að stíga sín fyrstu skref og þær eru strax farnar að standa sig frábærlega vel. Svo eru líka nokkrir reynsluboltar í liðinu sem eru mjög mikilvægir og voru að spila virkilega vel á þessu móti,“ sagði Sigurður Ragnar en hann var ánægður með að íslenska liðið spilaði betur saman og héldi boltanum betur innan liðsins en oft áður. Margrét Lára Viðarsdóttir kom íslenska liðinu í 1-0 með stórglæsi- legu marki strax á tólftu mínútu en hún skoraði um leið í áttunda landsleiknum í röð og hefur þar með skorað 35 mörk í aðeins 39 A- landsleikjum. „Margrét Lára skoraði frábært mark í dag [gær] og kom okkur á blað. Hún hitti boltann ótrúlega vel og skoraði með langskoti efst upp í hornið. Hún er búin að skora í átta leikjum í röð og er að standa sig rosa- lega vel. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að hafa íþróttamann ársins í okkar röðum, hún er líka að bæta sig og að spila ennþá betur en í fyrra þó að það hafi verið erfitt. Hún skoraði sex mörk á þessu móti og er langmarka- hæsti leikmaður mótsins,“ sagði Sigurður Ragnar. Guðbjörg Gunnarsdóttir er tekin við sem aðalmarkvörður landsliðsins og fékk aðeins eitt mark á sig á mótinu. „Ég var mjög ánægður með Guðbjörgu og hún fékk nú mikil- væga reynslu. Hún fékk mikinn leiktíma í mótinu, greip alltaf vel inn í þegar á þurfti að halda og besti leikurinn hennar var gegn Finnum í dag þar sem hún þurfti að verja þrisvar mjög vel. Hún virkaði mjög örugg í öllum aðgerð- um og er að fylla upp í skarð Þóru B. Helgadóttur. Það er mikilvægt fyrir okkur að hafa öflugan mark- mann og Guðbjörg átti mjög gott mót,“ sagði Sigurður Ragnar um markmanninn sinn. Fram undan er barátta um að komast á EM í Finnlandi 2009. „Við erum ennþá að stefna á það að vera fyrsta landsliðið sem kemst í úrslitakeppni stórmóts og ég vona að íslenska þjóðin standi við bakið á okkur og allir verði duglegir að koma á þessa tvo landsleiki í júní því það gæti fleytt okkur alla leið,“ sagði Sig- urður að lokum. ooj@frettabladid.is Við erum með þrusugott landslið Íslenska kvennalandsliðið vann alla fjóra leiki sína á Algarve Cup og tryggði sér sjöunda sætið með glæsi- legum 3-0 sigur á Finnum í gær. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði í áttunda landsleiknum í röð. FYRSTA MARKIÐ Rakel Hönnudóttir skoraði sitt fyrsta mark fyrir A- landsliðið í gær. FRÉTTABLAÐ- IÐ/DANÍEL ÖRUGG Í MARKINU Guðbjörg Gunnars- dóttir stóð sig vel. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON FRÁBÆR ÁRANGUR Kvennalandsliðið hefur unnið 9 af 13 leikjum undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR ÚRSLITIN Í GÆR Enska úrvalsdeildin: Portsmouth-Birmingham 4-2 1-0 Jermain Defoe, víti (6.), 2-0 Jermain Defoe (9.), 2-1 Fabrice Muamba (10.), 2-2 Sebastian Larsson (40.), 3-2 Hermann Hreiðarsson (49.), 4-2 Kanu (90.) Aston Villa-Middlesbrough 1-1 0-1 Stewart Downing (23.), 1-1 Gareth Barry, víti (74.) Chelsea-Derby 6-1 1-0 Frank Lampard, víti (28.) , 2-0 Salomon Kalou (42), 3-0 Lampard (57.), 4-0 Joe Cole (64.), 5-0 Lampard (66.), 6-0 Lampard (72.), 6-1 David Jones (73.) Euroleague í körfubolta: Lottomatica-AAXA FC Barcelona 68-63 Jón Arnór Stefánsson skoraði 8 stig á 19 mínút- um auk þess að taka 3 fráköst og stela 2 boltum. Lottomatica varð að vinna leikinn til að eiga möguleika á að komast í 8 liða úrslitin. Þýski handboltinn: SC Magdeburg- Wetzlar 33-25 Flensburg-Füchse Berlin 31-23 Einar Hólmgeirsson skoraði 4 mörk fyrir Flens- burg og Alexander Petersson var með 2 mörk. Gummersbach-HSV Hamburg 29-32 Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 5 mörk og Róbert Gunnarsson var með 2. Algarve Cup: Ísland-Finnland 3-0 1-0 Margrét Lára Viðarsdóttir (12.), 2-0 Rakel Hönnudóttir (41.), 3-0 Guðrún Sóley Gunnars- dóttir (90.). Lið Íslands: Guðbjörg Gunnarsdóttir (88., Sandra Sigurðardóttir) - Ólína G. Viðarsdóttir. Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Katrín Jónsdóttir, Ásta Árnadóttir (56., Embla Grétarsdóttir) - Edda Garðarsdóttir, Dóra Stefánsdóttir (83., Erla Steina Arnardóttir), Sara Björk Gunnarsdóttir (60., Katrín Ómarsdóttir) - Rakel Hönnudóttir (73., Dóra María Lárusdóttir), Margrét Lára Viðars dóttir, Guðný Björk Óðinsdóttir (63., Greta Mjöll Samúelsdóttir) Leikur um 1. sætið Bandaríkin-Danmörk 2-1 Leikur um 3. sætið Noregur-Þýskaland 2-0 Leikur um 5. sætið Svíþjóð-Ítalía 3-0 Leikur um 7. sætið Kína-Portúgal 1-1 Kína vann í vítakeppni 5-4 Margrét Lára Viðarsdóttir varð markadrottning mótsins annað árið í röð en hún hefur skorað 10 mörk í 8 leikjum á þessu móti undanfarin tvö ár. > Þórsarar geta tryggt sér síðasta sætið Sjö lið hafa þegar tryggt sér sæti í úrslitakeppni Iceland Express-deildar karla og nýliðar Þórs frá Akureyri geta orðið áttunda og síðasta liðið inn í úrslitakeppnina vinni þeir í Grindavík í kvöld. Þór hefur unnið 4 af 5 leikjum sínum síðan liðið fékk hinn hávaxna Robert Reed til sín en í kvöld mæta þeir Grindvíkingum sem hafa tapað tveimur leikjum naumlega í röð, þeim fyrri í framlengingu gegn ÍR en þeim síðari á flautukörfu gegn Snæfelli í Hólminum. Þór vann fyrri leik liðanna með sex stigum á Akureyri. Aðrir leikir kvöldsins eru Fjölnir-Njarðvík í Grafarvogi, Tindastóll-KR á Sauðár- króki og Snæfell-ÍR í Stykkishólmi en allir leikirnir hefjast klukkan 19.15. FÓTBOLTI Hermann Hreiðarsson var á skotskónum í fyrsta sinn í fimm mánuði þegar hann skoraði eitt marka Portsmouth í 4-2 sigri á Birmingham í gærkvöldi. Stigin þrjú komu Hermanni og félögum upp um tvö sæti í ensku úrvals- deildinni. Chelsea vann á sama tíma 6-1 stórsigur á Derby og er nú aðeins fimm stigum á eftir toppliði Arsenal. Portsmouth komst upp fyrir Blackburn og Manchester City í sjöunda sætið með 4-2 sigri á Birmingham. Jermain Defoe skor- aði tvö mörk á fyrstu níu mínútum en Birmingham var búið að jafna fyrir hlé. Hermann skoraði sitt mark af stuttu færi í upphafi síð- ari hálfleiks eftir aukasyrnu Munt- ari frá hægri. Þetta var þriðja mark Hermanns á tímabilinu en hann skoraði síðast í sigri á Ful- ham í byrjun október. Það var síðan varamaðurinn Kanu sem gulltryggði sigurinn í uppbótar- tíma en mark Hermanns var vendi- punktur í þróun mála í seinni hálf- leik. Það voru fleiri á skotskónum í í deildinni í gær því Frank Lamp- ard skoraði fernu í 6-1 sigri Chel- sea á Derby og fyrir vikið eru Lampard og félagar aðeins fimm stigum á eftir toppliðinu. Lampard skoraði fyrsta mark leiksins úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur en í seinni hálfleik opnuðust allar flóðgáttir þar sem Lampard bætti við þremur mörk- um. Það getur fátt komið í veg fyrir að Derby falli úr deildinni og þar sem næsti leikur er gegn Manchester United geta leikmenn liðsins byrjað að búa sig undir næstu rasskellingu. Aston Villa virðist vera að gefa eftir í baráttunni við Liverpool og Everton um fjórða og síðasta sætið inn í Meistaradeildina því liðið náði aðeins 1-1 jafntefli á heima- velli gegn Middlesbrough í gær. Villa er nú sjö stigum á eftir Liver- pool-liðunum. - óój Frank Lampard skoraði fernu í stórsigri Chelsea á botnliði Derby í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi: Hermann skoraði í sigurleik Portsmouth Á SKOTSKÓNUM Hermann Hreiðarsson kom Portsmouth í 3-2 í gær. Hann fagn- aði vel sínu fyrsta marki í fimm mánuði í ensku úrvalsdeildinni. NORDICPHOTOS/GETTY
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.