Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 90

Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 90
HANDBOLTI Dómstóll HSÍ hefur hafnað kröfu Hauka þess efnis að úrslit leiks þeirra og Fram í úrslitum deildarbikars HSÍ verði dæmd ógild og leikurinn spilað- ur að nýju. Dómurinn staðfestir að mistök hafi verið við skrán- ingu marka en eitt marka leiks- ins var tvískráð á Fram, sem vann leikinn, 30-28. Samkvæmt leikreglum HSÍ eru dómarar ábyrgir fyrir skrán- ingu marka og mistökin á þeirra ábyrgð. Mistök eru hluti af leikn- um rétt eins og önnur atvik sem hafa áhrif á þróun og úrslit leikja. Þeir skrifuðu undir skýrsl- una með þessum lokatölum og því standa úrslitin. „Það verður að játast að maður var næstum búinn að gleyma þessu. Þetta er búið að taka óra- langan tíma og málið var hálf- partinn svæft hjá dómstólnum,“ sagði Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka. Félagið hefur beðið nið- urstöðu í rúma þrjá mánuði en leikurinn fór fram 29. desember í fyrra. „Þeir fóru léttu leiðina út úr þessu. Úrslit standa og ekkert vesen. Það segir að dómararnir beri ábyrgð en staðan er nú orðin þannig í dag að dómarar hafa vart tíma til að skrá mörkin. Þá þurfum við að spyrja okkur að því hvort við þurfum ekki hlut- lausa aðila á ritaraborðin ólíkt því sem gerist í dag. Dómarar þurfa að treysta ritaraborðinu,“ sagði Aron en hann útilokar ekki að skjóta málinu til áfrýjunar- dómstóls HSÍ. - hbg Úrslitin í úrslitaleik deildarbikarsins standa: Málið var hálfpartinn svæft hjá dómstólnum LEIKURINN UMDEILDI Hornamaðurinn knái Guðjón Finnur Drengsson brýst hér í gegnum Haukavörnina í leiknum. Ritaraborðið tvískráði mark hjá Fram í leiknum, mistökin voru viðurkennd en kæru Hauka hafnað. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR LEIKMANNAHÓPUR: Markverðir: Kjartan Sturluson (Valur) Stefán Logi Magnússon (KR) Útileikmenn: Helgi Sigurðsson (Valur) Tryggvi Guðmundsson (FH) Marel J. Baldvinsson (Breiðablik) Baldur I. Aðalsteinsson (Valur) Atli Sveinn Þórarinsson (Valur) Birkir Már Sævarsson (Valur) Bjarni Ólafur Eiríksson (Valur) Davíð Þór Viðarsson (FH) Jónas Guðni Sævarsson (KR) Pálmi Rafn Pálmason (Valur) Aron Einar Gunnarsson (AZ Alkmaar) Guðmann Þórisson (Breiðablik) Guðmundur Reynir Gunnarsson (KR) Hallgrímur Jónasson (Keflavík) Heimir Einarsson (ÍA) Hjörtur Logi Valgarðsson (FH) FÓTBOLTI Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari karla í knatt- spyrnu, tilkynnti í gær átján manna leikmannahóp sinn fyrir vináttulandsleik gegn Færeyjum sem fram fer í Kórnum í Kópavogi á sunnudaginn 16. mars kl. 16.00. Ólafur tilkynnti enn fremur að hann hefði ákveðið að leita aðstoð- ar fjögurra valinkunnra kollega sinna til að njósna um mótherja Íslands í undankeppni HM 2010. Þar sem ekki er um alþjóðlegan keppnisdag að ræða þá voru hend- ur Ólafs að mestu leyti bundnar við að velja þá leikmenn sem leika hérlendis og fimm nýliðar eru í A- landsliðshópnum að þessu sinni. Það eru þeir Guðmann Þórisson, Guðmundur Reynir Gunnarsson, Hallgrímur Jónasson, Heimir Ein- arsson og Hjörtur Logi Valgarðs- son. Aron Einar Gunnarsson, leik- maður AZ Alkmaar, er eini leikmaðurinn í hópnum sem leikur erlendis. „Ég sótti reyndar um að fá ákveðna leikmenn sem leika erlendis en fékk því miður ekki leyfi hjá viðkomandi félögum. Árni Gautur Arason er náttúru- lega án félags eins og er og ég ákvað því að velja hann ekki að þessu sinni en hann er enn inni í myndinni hjá mér eins og aðrir. Bjarni Guðjónsson, leikmaður ÍA, var einn af þeim leikmönnum sem ég hafði hugsað mér að velja en hann gat ekki gefið kost á sér þar sem hann er meiddur,“ sagði Ólaf- ur sem tilkynnti einnig fjögurra manna ráðgjafahóp sem mun aðstoða hann í undirbúningi liðs- ins fyrir undankeppni HM 2010. „Ég fór þess á leit við heiðurs- mennina Leif Garðarsson, þjálf- ara Fylkis, Willum Þór Þórsson, þjálfara Vals, Kristján Guðmunds- son, þjálfara Keflavíkur, og Rúnar Kristinsson, yfirmann knatt- spyrnumála hjá KR, að aðstoða mig við að fylgjast með andstæð- ingum Íslands í undankeppni HM 2010 og mun hver og einn þeirra fá eitt lið í riðlinum til að fylgjast með og leikgreina. Rúnar tekur Noreg fyrir, enda spilaði hann þar, Leifur fylgist með Skotum þar sem hann telur sig vita svo mikið um breskan fótbolta og Kristján fær Makedóníu og Willum fær Holland vegna tungumálakunn- áttu þeirra,“ sagði Ólafur á léttum nótum en hélt svo áfram án gríns: „Ég tel að það geti komið okkur vel að hafa einn mann sem einbeit- ir sér að hverju landi fyrir sig í stað þess að grautast í öllum saman og síðan munum við hittast og fara yfir hvern mótherja fyrir sig og horfa á upptökur af leikjum og annað,“ sagði Ólafur. - óþ Ólafur Jóhannesson kynnti hóp Íslands og plön sín fyrir undankeppni HM 2010: Ólafur fékk sér fjóra ráðgjafa UNNIÐ AF FAGMENNSKU Ólafur Jóhannesson er koma upp fagmannlegri umgjörð í kringum karlalandsliðið í fótbolta. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM * Verð í auglýsingunni er án virðisaukaskatts. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara og að auki er kaupverð háð gengi. Aukabúnaður á mynd af Transit er samlitur á stuðara og grilli og þokuljós í framstuðara. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar. „Standard“heiturallamorgna Nýtt útlit. Nýtt innlit. Ný vél. Nýtt stöðugleikastýrikerfi. Komdu. Skoðaðu nýjan Ford Transit. Kannaðu aðstæður. Vinnuaðstöðunni hefur verið breytt til hins betra í nýjum Transit.Reyndu nýju vélina í Transit: 2,2 l dísil Duratorq TDCi. G C IG R O U P Stilltu klukkuna að kvöldi og þú byrjar daginn heitur að morgni. Tímastillanleg olíumiðstöð er staðalbúnaður í Transit sendibílum frá Ford - sérstaklega fyrir íslenskar aðstæður. Komdu í Brimborg. Kynntu þér nýtt stöðugleikastýrikerfi Ford Transit sem er staðalbúnaður. Vertu í hópi þeirra bestu. Komdu í Brimborg. Veldu Ford Transit í dag. Verð frá 2.313.245 kr. án vsk*. Kynntu þér sértæka þjónustu Atvinnubíla Ford hjá Brimborg Kynntu þér sértæka þjónustu Atvinnubíla Ford hjá Brimborg Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.ford.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.