Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 44
13. MARS 2008 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● fermingar
„Mig langaði allra mest í nýtt
rúm í fermingargjöf. Eða, eigin-
lega ekki nýtt rúm, heldur notað
rúm en nýtt fyrir mér,“ segir fjör-
kálfurinn og tónlistarmaðurinn
Jónsi, sem samkvæmt þjóðskrá
heitir Jón Jósep Snæbjörnsson og
fermdist árið 1991 í Glerárkirkju
á Akureyri. „Afi minn átti þetta
rúm en hann lést einu og hálfu ári
áður en ég fermdist. Rúmið var úr
bæsuðum við með springdýnu.“
Jónsi hafði þar til hann fermd-
ist sofið í sama gamla rúminu frá
því hann var smápatti. Það rúm
var ætlað börnum og svampdýnan
var klædd grófu efni sem Jónsa
klæjaði undan.
„Ég fékk að vita nokkru fyrir
ferminguna að ég ætti að fá rúmið
hans afa og ég varð virkilega glað-
ur,“ segir Jónsi og bætir við að
rúmið hafi haft sérstaka merk-
ingu, því þeir langfeðgar voru
afar nánir, en Jónsi var skírður í
höfuðið á afa sínum, sem hét Jón
Jósepsson.
Einnig fékk Jónsi forláta búta-
saumsteppi frá mömmu sinni, sem
og skrifborð og hillu, og herbergið
hans var málað sólgult.
„Herbergið breyttist úr barna-
herbergi í unglingaherbergi, sem
var vel við hæfi. Ég vil samt taka
það fram að ég fermdist alls ekki
vegna gjafanna. Ég var mjög virk-
ur í kirkjunni á þessum tíma og
fyrir mér var það mikið mál að
vígjast inn í kristna trú,“ segir
Jónsi. - smk
Tónlistarmaðurinn landsþekkti
Ragnar Bjarnason varð himinlif-
andi þegar hann fékk ferming-
argjöfina frá foreldrum sínum
árið 1948. Hann fékk nefnilega
trommusett.
„Þetta var nú ekki eins og
trommusettin eru í dag, ég man
það var brúnt og mjög einfalt,
lítið trommusett,“ segir Ragnar
og hlær dátt. „Ég held það hafi nú
ekki verið mjög dýrt og ég geri ráð
fyrir því að mamma og pabbi hafi
keypt þetta handa mér til að þurfa
ekki að hlusta á vælið í mér lengur.
Mig var búið að dreyma lengi um
að eignast mitt eigið trommusett.“
Ragnar, sem fermdist í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík, var tromm-
ari í mörg ár. „Ég byrjaði strax
eftir ferminguna að æfa mig á
trommurnar og fór fimmtán ára að
spila með pabba, Bjarna Böðvars-
syni, og fór svo upp úr því að spila
í útvarpi og víðar,“ segir Ragnar.
Hann bætir við að herbergið
hans hafi verið niðri í kjallara og
fyrir vikið var auðveldara fyrir
hann að æfa sig daginn út og dag-
inn inn.
„Ég gat djöflast þar eins og
mér sýndist. En ég hafði nú svo
sem ekki langt að sækja tónlistar-
áhugann og húsið var alltaf fullt af
fólki að æfa tónlist,“ segir Ragn-
ar og útskýrir að móðir hans, Lára
Magnúsdóttir, hafi verið fyrsta
dægurlagasöngkona Íslands og
Bjarni faðir hans hafi stofnað
Félag íslenskra hljómlistarmanna
skömmu áður en Ragnar fæddist.
„Svo ég held að trommuæfingarn-
ar hafi nú ekki farið fyrir brjóstið
á neinum.“
Spurður hvort það hafi þá ekki
verið tónlist í fermingarveisl-
unni svarar Ragnar játandi. „Það
hafa verið svona þrjátíu manns í
veislunni og það var að sjálfsögðu
bæði spilað og sungið,“ segir hann.
- smk
Ragnar Bjarnason, tónlistarmaðurinn
góðkunni, man vel eftir fyrsta trommu-
settinu sínu sem hann fékk í fermingar-
gjöf árið 1948. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Af öllu því sem Arna Schram, for-
maður Blaðamannafélags Íslands
og blaðamaður á Viðskiptablað-
inu, fékk í fermingargjöf er ekk-
ert eftir nema orðabókin.
„Ég fékk tjald, orðabók og
margar styttur. Tjaldið týndist
í einhverri útilegunni, stytturn-
ar lét ég viljandi hverfa smám
saman, enda hef ég aldrei verið
nein styttukona, en orðabókin
hefur enst vel. Ég notaði hana í
gegnum alla mína skólagöngu og
nota hana enn reglulega,“ segir
Arna, sem fermdist í Dómkirkj-
unni í Reykjavík árið 1982.
„En svo fékk ég líka tvær skíða-
ferðir í fermingargjöf, eina til
Austurríkis frá pabba sem ég fór
í með honum og öllum systkinum
mínum og aðra í Kerlingarfjöll
frá mömmu. Þetta voru virkilega
flottar og veglegar fermingar-
gjafir á þessum tíma,“ segir Arna
og bætir við að einnig hafi hún
fengið skartgripi og peninga, sem
hún keypti sér bakpoka og svefn-
poka fyrir.
Orðabókin góða, sem er íslensk
orðabók og var frá systur föð-
urafa Örnu, var alls ekki efst á
óskalistanum þótt hún hafi reynst
notadrýgst allra gjafanna. Úti-
legugjafir voru vinsælastar meðal
vinkvenna Örnu í byrjun níunda
áratugarins, sem og gjafir sem
tengdust íþróttum.
„Reyndar langaði mig allra
mest í hest eða eitthvað tengt
hestamennskunni, en sú ósk rætt-
ist ekki og hefur í raun enn ekki
ræst,“ segir hún og hlær. - smk
Orðabókin ein eftir
Íslenska orðabókin sem Arna Schram, formaður Blaðamannafélags Íslands, fékk
í fermingargjöf hefur komið að góðum notum, enda talar Arna afspyrnu góða
íslensku. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Erfði rúm eftir afa sinn Trommusett í gjöf
Jónsi varð ákaflega ánægður með
aðalfermingargjöfina sína, sem var
að herberginu hans var breytt úr
barnaherbergi í unglingaherbergi.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
A
LL
I