Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 82
46 13. mars 2008 FIMMTUDAGUR maturogvin@frettabladid.is Dagur heilags Patreks, eða St. Patrick’s Day, verður haldinn hátíðlegur víða um heim nú á laug- ardag og mánudag. Þó að Írar hafi upphaflega verið einir um að fagna þessum dýrlingi þjóðarinn- ar hefur siðurinn breiðst út og nú eru þeir mun fleiri sem flagga grænu honum til heiðurs. Yfirleitt fara hátíðarhöldin fram 17. mars á ári hverju, en þar sem dagurinn hittir í ár á upphaf vikunnar fyrir páska ákvörðuðu írskir biskupar að honum yrði þess í stað fagnað á laugardegi. Þó má búast við því að fagnaðarlæti sem ekki tengjast kirkjunni nái hámarki á mánudag, að vanda. Þeir sem vilja samgleðjast Írum geta sótt í matarhefðir og skellt í eina nautakjöts- og Guinness- kássu. Uppskriftina má sjá á heimasíðu Food Network. Hreinsið kjötið og skerið í hent- uga bita. Veltið kjötinu upp úr 1 msk. af olíu. Blandið hveiti, salti, pipar og cayenne-pipar í lítilli skál. Hitið restina af olíu á pönnu yfir háum hita. Brúnið kjötið, lækkið hitann og bætið lauk, hvít- lauk og tómatablöndunni við. Setjið lok yfir og látið malla í 5 mínútur. Færið innihaldið yfir í pott og hellið helmingnum af Guinness- bjórnum í pönnuna. Látið suðu koma upp og skrapið kjötleifar af pönnunni. Hellið yfir kjötið, ásamt restinni af bjórnum. Bætið gulrót- um og timjani út í, hrærið og smakkið til. Látið malla undir loki yfir lágum hita þar til kjötið er meyrt, í um 2-3 tíma. Skreytið með steinselju og berið fram. - sun Írsk kjötkássa á degi dýrlings Barþjónakeppnin Finlandia Vodka Cup var haldin í snjóhúsi í Lapplandi í lok febrúar, þar sem barþjónar öttu kappi í 10 metra háu snjóhúsi með ísborðum. Full- trúi Íslands þar var Valtýr Berg- mann, sem sigraði undankeppn- ina hér heima með drykk sínum, SpassiMongo. Markmið keppninnar er bæði að finna færasta barþjóninn og besta nýja drykkinn byggðan á Finlandia vodka. Sigurvegari Finlandia Vodka Cup að þessu sinni var Ungverj- inn Mihaly Handtuch, en Valtýr Bergmann lenti í 8. sæti, sem telst góður árangur. Hann hlaut þriðju verðlaun fyrir fordrykk sinn, en keppt var um fordrykki, kokkteil og í svokölluðu Quick Mix, þar sem keppendur fá að velja sér hráefni úr kassa og fá fimm mínútur til að blanda drykk. Valtýr í 8. sæti BARÞJÓNAKEPPNI Í SNJÓHÚSI Finlandia Vodka Cup var haldin í 10 metra háu snjóhúsi í Lapplandi í lok febrúar. Full- trúi Íslands hafnaði í 8. sæti af 28. Frá því að sólþurrkaðir tómatar héldu innreið sína í íslenskar matarverslanir hafa þeir átt sjálfsskipaðan sess í öðrum hverjum eld- hússkáp á landinu. Þeir sem vilja flækja málin aðeins geta gert eigin útgáfu af tómötunum. Í stað þess að reyna að þurrka þá í vetrar- sólinni í eldhúsglugganum er hins vegar gáfulegra að snúa sér að ofninum. Með því að þurrka þá í ofni verða tómatarnir bragðmeiri og alveg samkeppnishæfir við þá sem maður kaupir í krukkunum. Notið plómutómata, og skerið í helminga á lengd- ina. Stráið sjávarsalti í sárið, og leggið tómatana með sárið niður á eldhús- bréf. Látið standa í um klukkutíma. Hitið ofninn í um 150 gráður. Leggið tómatana, með sárið upp, á plötu með bökunarpappír. Bakið í um 3 ½ til 4 tíma, eða þar til kanturinn á tómötunum fer að krullast. Enn betri tómatar OFNÞURRKUÐ GÆÐI Við þurrkun verða tómatar bragðmeiri og má þurrka þá hvort sem er í ofni eða láta sólarljósið sjá um það. NORDICPHOTOS/GETTY Hvaða matar gætirðu síst verið án? Það myndi vera sætabrauð, súkku- laði, kaffi og te. Besta máltíð sem þú hefur fengið: Baklava-bakkelsi sem ég fékk í tyrknesku bakaríi í Amsterdam. Er einhver matur sem þér finnst vond- ur? Ég skil ekki sellerí. Mér finnst það alveg ótrúlega vont eitt og sér. Annars borða ég held ég bara allt, bara minna af því sem er ekki gott. Leyndarmál úr eldhússkápnum: Vonandi verður leynivopnið lavendersykur- inn sem ég er að búa til núna. Hvað borðar þú til að láta þér líða betur? Besta trixið til að láta sér líða vel er að baka eitthvað ótrúlega gott og mikið. Hvað áttu alltaf til í ísskápn- um? Lýsi, af því að það er ótrúlegt! Og svo smjör, egg, osta og gott úrval af marmelaði og sultum. Ef þú yrðir föst á eyðieyju, hvað tækirðu með þér? Kartöflur. Þær geta bjargað mannslífum. Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur borðað? Allt kjöt í hlaupi er frekar skrýtið. > Prófaðu... ...að plata bæði þig og aðra til að borða meiri ávexti með því að gera úr þeim salat. Það er töluvert meira aðlaðandi fyrir augað en stakur banani. Fyrir frekara dekur má svo prófa að strá kókosflögum, dálitlu af dökku súkkulaði eða einni mulinni makkar- ónuköku yfir hollustuna. Guinnesskássa 1 kíló nautakjöt 3 msk olía 2 msk hveiti Salt og nýmulinn svartur pipar Klípa af cayenne pipar 2 stórir laukar, skornir gróft 1 hvítlauksgeiri, kraminn 2 tsk tómatpúrra, leyst upp í 4 msk af vatni 1 ¼ bolli Guinness 2 bollar gulrætur, skornar gróft 1 timjangrein 1 söxuð steinselja til skreytingar KJÖT Í GUINNESS Þessi kjötkássa er með afar írskum formerkjum, en í hana er meðal annars notaður Guinness-bjór. NORDICPHOTOS/GETTY Jóhannes Bragi Bjarna- son, auglýsingagerðar- maður, plötusnúður og mataráhugamaður, hefur miklar mætur á ítölskum kjötbollurétti sem tengdafaðir hans kenndi honum. „Þegar maður er ekki að spila eitthvað þá verður maður að hafa eitthvað í sig og þetta er alltaf vinsælt heima hjá mér,“ segir Jóhannes Bragi, sem er einráður í eldhúsinu á sínu heimili. „Tengdapabbi á heiðurinn af þessu. Hann alla vega kynnti mig fyrir þessum rétti en það er mikið atriði að nota vel af sítrónum í hann. Þetta er aðeins meira vesen en að elda spaghetti bologn- ese, svona klukkutími með öllu, en er vel þess virði,“ segir hann. „Þegar ég smakkaði þetta fyrst varð ég yfir mig hrifinn af þessu sítrónu „elementi“. Annars er þetta bara mjög venjulegur réttur, myndi ég segja.“ Asískur og ítalskur matur Jóhannes Bragi segist þó ekki leggja það í vana sinn að elda hefðbundinn heimilismat. „Ég myndi segja að ég væri meira í asískum og ríkulegum ítölskum mat. Annars er þetta eitthvað sem kemur upp úr mér því ég á mjög erfitt með að fara eftir uppskriftum. Ég les þær aðallega mér til hliðsjónar.“ Hann segir að eldamennska sín falli vel að starfi sínu sem plötusnúður í dúettinum Gullfoss og Geysir, enda fer það aðallega fram á nóttunni. „Það er ekki verra að hafa smá prótín í líkamanum til að hafa úthald í það,“ segir hann. freyr@frettabladid.is Prótín fyrir plötusnúðinn „Þetta eru í grunninn ítalskar kjötbollur sem tengdapabbi gerir af mikilli snilld en ég lagaði hana að því sem ég átti í ísskápnum einhvern tímann um daginn,“ segir Jóhannes um uppskriftina. 500 gr nautahakk 1 brauð bleytt í mjólk 1 egg 2 hvítlauksrif 2 tsk oregano 2 tsk fersk steinselja Hnefi af söxuðum ólífum 1 tsk salt 2 tsk svartur pipar Parmesan ostur Sítrónubörkur af heilli sítrónu og safi Aðferð: Blandið öllu saman, þannig að auðvelt sé að hnoða litlar bollur, veltið upp úr hveiti og steikið í smá olíu í 2-3 skömmtum. Sósa: 2 dollur LaSelva tómatsósa með basil 3-4 þurrkaðir litlir chilli-bitar 1 laukur gróft skorinn 2 hvítlauksrif Tómatpúré Sítrónusafi Hnefafylli af rifnu fersku basil. Aðferð: Laukur, hvítlaukur og chili steikt þangað til það glansar og sósunni þá hellt út í. Látið malla aðeins. Smakkað til með pipar, salti og tómatpúré. Að lokum er basilinu hent út á. Borðað með spaghetti eða einhverju öðru pasta. ÍTALSKAR KJÖTBOLLUR JÓHANNES OG ALDÍS Aldís Eyja, fósturdóttir Jóhannesar Braga Bjarnasonar, aðstoðar hann í eldhúsinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR MATGÆÐINGURINN BRYNHILDUR PÁLSDÓTTIR HÖNNUÐUR Baklava-bakkelsi besta máltíðin ...alla daga t... r. ir Allt sem þú þarft... F é bl ðið l d bl ð l d i FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 200 8 FYLGIRIT FRÉT TABLAÐSINS Kolfinna Baldvinsdóttir og Ásdís Olsen hreyfa við fólki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.