Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 74

Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 74
38 13. mars 2008 FIMMTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Bull! Auðvitað geturðu það! Hvað annað býr þarna inni?? Eða mörður.Já, hún malar eins og köttur! Hún hljómar bara mjög vel! Farðu nú og fáðu þér einn öl með Jóa! Vinir eru vinir. Dask dask dask dask Heyrið! Heyrið þetta hljóð! Jesús! Ég get ekki sést úti meðal fólks með þessa kúlu! Bókasafn Ó, já, fyrir utan... Þú segir að gælusnig- illinn þinn sé vel upp alinn?! Viltu virkilega frekar fá fjölda- framleidda gerðu-það-sjálf samloku í plasti en heimatilbúna nestið mitt? Má ég fá þetta sem nesti á morgun? Má ég?? Já! Má ég það ekki? Mig langar svo að prófa! Allt í lagi... Hvernig er maturinn þinn? Skortir kærleika. Heyrðu, hættu þessu Lalli litli! Komdu til baka og það undireins! Hann eltir alltaf bréfberann. Eftir 42 ára dygga þjónustu við gesti bókasafnsins ákvað Jói að ljúka þessu með látum... Er einhver til í keilu? Hóst! Hóst! Hvæs! Tökum við umsóknum núna Kynntu þér námið á www.hr.is Námið er hægt að stunda sem fullt starf eða á minni hraða með annarri vinnu. Fyrri umsóknarfrestur er til 15. apríl, sá seinni 30. maí. Þeir sem sækja um fyrir fyrri frestinn eiga meiri möguleika. Meistaranám við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík er fjölbreytt og krefjandi nám sem getur opnað þér dyr að margvíslegum starfs- tækifærum. Viðskiptadeild HR hefur á að skipa sérlega öflugum hópi kennara frá 23 löndum, sem allir búa yfir mikilli fræðilegri þekkingu og hafa fjölþætta reynslu úr atvinnulífinu. Að auki er Háskólinn í Reykjavík með samstarfssamn- inga við yfir 100 háskóla um allan heim sem gefur nemendum möguleika á því að víkka sjóndeildarhringinn með því að stunda hluta námsins erlendis. MEISTARANÁM Í VIÐSKIPTADEILD MSc í alþjóðaviðskiptum Námið byggir bæði á fræðilegum grunni og hagnýtri þekkingu á alþjóðaviðskiptum og fer kennsla fram á ensku. Uppbygging námsins miðar við reynslu margra bestu háskóla heims. Allir nemendur dvelja erlendis eina önn þar sem þeir starfa fyrir íslensk fyrirtæki eða stunda nám við samstarfsháskóla HR. Flestir nemendur læra annað tungumál en ensku og eru fjögur tungumál í boði: Kínverska, spænska, franska og þýska. Einnig er í boði að sérhæfa sig í alþjóðlegum markaðsfræðum. MSc í fjármálum Námið er sérsniðið að þörfum fjármálafyrirtækja og framsækinna alþjóðlegra fyrirtækja. Hægt er að velja á milli tveggja lína. Investment Management (MSIM): Ætlað þeim sem hyggjast starfa sem sérfræðingar á fjármálamarkaði, einkum við eignastýringu, markaðsviðskipti og fjárfestingar. Corporate Finance: Hentar þeim sem hafa áhuga á að starfa sem fjármálastjórar eða stjórnendur fyrirtækja. MSc í reikningshaldi og endurskoðun Námið er ætlað þeim sem vilja verða löggiltir endurskoðendur, eða hafa áhuga á að starfa sem sérfræðingar eða stjórnendur á sviði reikningshalds í fyrirtækjum. Útskrifaðir nemendur eru eftirsóttir til ýmissa stjórnunarstarfa í atvinnulífinu, einkum hjá stórfyrirtækjum í alþjóðlegri starfsemi. H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -0 4 5 4 Ég er einn af þeim sem eru alltaf til í að prófa nýja hluti. Eins og um árið þegar ég ákvað að fara í brúnkusprautun til að hressa upp á útlitið og upplifði í staðinn niðurlægingu lífs míns. Ég fór í tímann með óljósar hug- myndir um það sem beið mín. Hafði þó einhvers staðar lesið að fólk færi berrassað í klefa með sjálfvirkum búnaði sem frussaði brúnku áburði á kroppinn þar til hann væri orðinn fallega brúnn og glansandi. Það kom svolítið flatt upp á mig þegar engan klefa var að finna á stofunni, heldur lítið herbergi með skilvegg fyrir glugganum. Snyrti- fræðingurinn varð ekki síður undr- andi þegar ég spurði hvort ég sæist nokkuð nakinn út um gluggann og endurtók svo spurninguna eins og ég talaði eitthvert framandi tungu- mál. Hún varð náföl þegar hún skildi loks inntak spurningarinnar; hentist fram en kom að vörmu spori með samanbrotna tusku og rétti mér dularfull með þeim orðum að kannski væri ráðlegast ef ég færi í hana. Ég vissi þá ekki fyrr en ég stóð allt í einu með rosalegan g-streng í höndunum; neta-g-streng; með litla, ljósbleika slaufu á hvorri hlið. Þá rann upp fyrir mér að fyrst þarna var enginn klefi, var auðvit- að enginn sjálfvirkur úðari. Konan var úðarinn, eða réttara sagt ætlaði hún að úða á mig og var pungpjötl- unni ekki síður ætlað að hlífa blygð- unarkennd vesalings konunnar heldur en djásnunum mínum. Við gerðum þá samning. G- strengurinn fékk að fjúka en á móti lét ég mig hafa það að bretta boxer- buxurnar upp í bleyju og lét þannig úða á mig næsta korterið með lokuð augu, útréttar hendur og öndina í hálsinum, í von um að verða súkku- laðisætur þegar niðurlægingunni lyki. Og ég var reyndar bara svolítið sexý þegar yfir lauk, þótt sebra- rendurnar á rassinum hafi hins vegar ekkert verið rosalega æsandi. STUÐ MILLI STRÍÐA Brúnkusprautanir og bleikir g-strengir ROALD VIÐAR EYVINDSSON LENTI Í SANNKÖLLUÐUM HARMLEIK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.