Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 81

Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 81
FIMMTUDAGUR 13. mars 2008 45 Stórstjörnur úr kvikmyndaheiminum hafa fylkt sér að baki Baracks Obama og styðja hann í stórum hópum í forsetaslaginn. Hollywood-leikarar eru uggandi yfir því að Bandaríkin kjósi aftur repúblikana í Hvíta húsið enda er ekki hægt að segja að George W. Bush hafi verið sverð landsins og skjöldur á erlendum vettvangi. Stórleikarinn Edward Norton ætlar ekki að láta sitt eftir liggja í þeim efnum og opinberaði í Variety að hann væri með heim- ildarmynd um Obama í smíðum. Gerð hennar hófst í kringum ráðstefnu demókrata árið 2004 og ef að líkum lætur verður hún frum- sýnd í Hvíta húsinu árið 2009. Samkvæmt Empire- vefnum er Bryan Singer byrjaður að skrifa framhaldið að næstu mynd um Ofur- mennið. Einhverj- um fannst síðasta myndin, Super- man Returns, vera hálfgerð mistök en leikstjórinn vísar því á bug. „Hún halaði inn 400 milljónum dollara,“ sagði Singer. „Vissulega var myndin rómantísk og hugljúf en nú hafa persónurnar öðlast líf og þá getum við búið til alvöru hasarmynd,“ bætir Singer við. Fastlega er reiknað með því að Brandon Routh klæðist rauðu nærbuxunum og skikkjunni aftur. Og meira af ofurhetjum og framahaldsmyndum. Því aðstandendur kvikmynd- arinnar Dark Knight eru í eilítið erfiðri stöðu. Mark- aðsherferð myndarinnar gerði mikið út á Heath Ledger sem Jókerinn en ótímabært andlát hans hefur sett strik í þann reikning. Að sögn mark- aðsmannanna eru þeir þó hvergi bangnir og hyggjast nota Jókerinn enn sem fyrr í herferðinni. „Frammistaða Ledgers er hreint út sagt stórkostleg. Hann lék eins og blóðið væri við suðumarkið,“ lét kvikmyndatökumaður á tökustað hafa eftir sér. Þótt Tony Soprano teljist seint til ofurhetja þá hefur Hollywood engu að síður áhuga á að koma Sopranos-fjölskyldunni til skila á hvíta tjaldinu. Eigandi strippbúll- unnar Badabing segist hafa fengið símhringingu frá einhverjum úr dramaborginni sem hafi verið að vinna að gerð handrits um Sopran- os. „Þannig að ég vil ekkert breyta staðnum mikið,“ sagði Nick D‘Urso, eigandi Badabing. Aðeins einn hængur er þar á; Sopranos sótti nefnilega mikið til fyrirmyndar sinn- ar sem er önnur mafíósa-mynd- Goodfellas og þessir tveir fánaberar Cosa Nostra-glæpaklík- unnar eru reyndar alveg glettilega líkir. ÚR VERINU Spænski sérvitringurinn og snillingurinn Salvador Dalí virðist á góðri leið með að verða nýjasta æðið í Hollywood. Picasso hefur þegar hlotið náð fyrir augum draumaverksmiðjunnar og er skemmst að minnast frammistöðu Anthony Hopkins í hlutverki meistarans. En nú er það Dalí og er reiknað með að þrjár myndir um líf hans og listir birtist á næstu árum á hvíta tjaldinu. Johnny Depp er sagður hafa svo mikinn áhuga á að leika listamann- inn að hann er reiðubúinn til að vinna með hverjum sem er. Depp þarf hins vegar hafa allan varan á því Al Pacino mun væntanlega leika hann í kvikmyndinni Dali & I: The Surreal Story. Þá hefur breski leikarinn Peter O‘Toole verið orðaður við Dalí í kvikmyndinni Goodbye Dali. Dalí nýjasta æðið í Hollywood Plakatið fyrir nýjustu Indiana Jones-myndina, Indiana Jones and the Kingdom of Crystal Skull, hefur vakið mikla athygli. Aðdá- endur fornleifafræðingsins hafa beðið spenntir eftir fjórðu mynd- inni og fylgst grannt með gangi mála og telja sig nú hafa fundið það út að Steven Spielberg ætli sér að blanda saman tveimur af sínum vinsælustu hlutum; Indy sjálfum og geimverum. Para- mount-kvikmyndaverið hefur reynt í lengstu lög að halda sögu- þræðinum leyndum en nú virðist sagan vera farin að kvisast út. USA Today greinir frá því í dag að meðal annars sjáist í kassa sem merktur er Roswell, New Mexico, 1947. „Og þú þarft ekki að vera prófessor til að fatta um hvað það snýst allt saman,“ segir blaðið. Indiana er að sjálfsögðu leikinn af Harrison Ford en ungstirnið Shia LeBeouf fer með hlutverk sonar hans. Meðal annarra leik- ara eru Ray Winstone, Cate Blanchett og John Hurt. Indy berst við E.T INDY Ætli Spielberg blandi ekki bara saman geimverum og fornleifafræðingi, formúlu sem ekki getur klikkað. LEIKUR DALÍ Al Pacino verður í hlutverki lista- mannsins í kvikmynd- inni Dali & I: The Surreal Story. ENDURFÆÐING Salvador Dalí gæti verið nýjasta æðið í Hollywood. LANGAR Johnny Depp langar afskap- lega mikið til að leika listamanninn. Forsala að göngumið a á NASA fö studaginn 14. mars milli kl. 13 og 17 og í Gallerí 17, Keflavík. A gent.is kynnir X X X R EY K JAV ÍK Ó li G eir á A gent.is klárar hina m ögnuðu partí-hringferð sína kringum landið á N AS A í R eykjavík m eð besta plötusnúð landsins. Páll Ó skar þeytir skífum í stanslausu stuði alla nóttina og treður upp m eð gógópíum , glow sticks, sprengjum og blöðrum eins og hann einn getur leyft sér. Miðaverð kr. 1500.- Húsið opn ar kl. 23.0 0 Páll Óska r spilar frá 23.00 - 5.3 0 Aldurstak mark 20 á ra. LA U G A R D A G IN N 15. M A R S
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.