Fréttablaðið - 13.03.2008, Síða 6

Fréttablaðið - 13.03.2008, Síða 6
6 13. mars 2008 FIMMTUDAGUR flugfelag.is Burt úr bænum Hópaferðir fyrir öll tilefni Upplýsingar: Sími 570 3075 hopadeild@flugfelag.is REYKJAVÍK AKUREYRI EGILSSTAÐIR FÆREYJARVESTMANNAEYJAR ÍSAFJÖRÐUR GRÆNLAND VOPNAFJÖRÐUR ÞÓRSHÖFN GRÍMSEY NARSARSSUAQ KULUSUK CONSTABLE POINT NUUK VINNUMARKAÐUR Töluvert var um að atkvæðaseðlar bærust seint og illa til félagsmanna stéttarfélag- anna og í einhverjum tilfellum bárust þeir of seint til að viðkom- andi gætu greitt atkvæði í póst- kosningunni vegna kjarasamning- anna við Samtök atvinnulífsins. Guðmundur Gunnarsson, for- maður Rafiðnaðarsambandsins, RSÍ, segist hafa fengið símtöl að norðan á þriðjudagskvöldið frá félagsmönnum sem ekki höfðu fengið atkvæðaseðla fyrr en þann sama dag. Atkvæðagreiðslunni hjá Rafiðnaðarsambandinu lauk á hádegi á miðvikudag. Hann á allt eins von á því að eiga eftir að fá atkvæði sem hafi verið póstlögð áður en frestur rann út en hafi ekki enn verið borin út. „Þjónusta Póstsins er fyrir neðan allar hellur. Pósturinn ábyrgist að bréf séu borin út dag- inn eftir ef maður kemur þeim í póst fyrir klukkan fimm daginn áður. Við lentum í því að póst- leggja atkvæðaseðla í fyrri hluta síðustu viku og þeir bárust ekki á Akureyri fyrr en á þriðjudags- kvöld,“ segir hann og kveðst hafa heyrt sömu sögu frá öðrum lands- samböndum. Þetta gildi ekki bara um Norðurland heldur líka fyrir sunnan. Meirihluti félagsmanna Rafiðn- aðarsambandsins, RSÍ, hefur sam- þykkt kjarasamninginn við Sam- tök atvinnulífsins, eða tæp 71 prósent, en rúmlega 27 prósent höfnuðu honum. Rúm sextán pró- sent félagsmanna tóku þátt í atkvæðagreiðslunni. Guðmundur segir að niðurstaðan komi sér á óvart, hann hafi talið að munurinn yrði naumari. „Þetta er svipað hlutfall og hjá hinum iðnaðarmannafélögunum nema við erum með ívið meiri þátttöku,“ segir hann. - ghs Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins: Atkvæðaseðlar bárust seint KVARTAÐ YFIR PÓSTINUM „Atkvæða- seðlar bárust ekki á Akureyri fyrr en á þriðjudagskvöld,“ segir Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsam- bandsins, sem fékk kvartanir símleiðis að norðan á þriðjudagskvöldið. DANMÖRK Bent Falbert, einn af rit- stjórum Ekstra Bladet í Danmörku, gerir lítið úr gagnrýni Sigurðar Einarssonar, starfandi stjórnarfor- manns Kaupþings, og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráð- herra á vinnubrögð danskra blaða- manna í umfjöllun þeirra um stöðu íslensku bankanna og íslensk efna- hagsmál. Falbert segir að enginn hafi tekið eftir henni. „Það stendur ekkert um þetta í dönskum dagblöðum,“ sagði Fal- bert og kannaðist ekki við að fótur gæti verið fyrir gagnrýninni. „Allir danskir blaðamenn eru frábærir. Allir íslenskir blaðamenn eru líka frábærir, þeir eru bara hræddir við stjórnmálamennina,“ sagði hann. Hann kvaðst ekkert vita um upp- lýsingafundinn eða gagnrýnina sem þar hefði komið fram. Fred Jacobsen, varaformaður danska blaðamannafélagsins, segir erfitt að alhæfa um umfjöllunina um íslenskan efnahag. Þetta sé afar misjafnt eftir ritstjórnum og blaða- mönnum. „Það er alltaf ákvörðun hverrar ritstjórnar hvað er birt í blaðinu og mér finnst ekki hægt að alhæfa og segja að það hafi almennt verið neikvæð umræða og ófagleg vinnubrögð um íslenskan efnahag í Danmörku,“ segir hann. Bent Sörensen, yfirmaður rit- stjórnarinnar á Börsen, segist ekki geta séð að danskir blaðamenn séu neitt sérstaklega neikvæðir um Ísland. „Af hverju ættum við að vera það? Á Börsen fylgjumst við með og hlustum á það sem bank- arnir segja. Við fylgjumst líka með gengi íslensku krónunnar og íslensks hlutabréfamarkaðar og skrifum um þróunina.“ - ghs Ritstjóri Ekstra Bladet gerir lítið úr gagnrýni á vinnubrögð danskra blaðamanna: Íslenskir blaðamenn hræddir DÓMSMÁL „Lögreglumenn eru hneykslaðir, þeir eru reiðir og þeim misbýður þau skilaboð sem dómurinn sendir út,“ segir Stein- ar Adolfsson, framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna. Tveir litháískir karlmenn voru í gær sýknaðir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir árás á lögreglu- mann. Þriðji Litháinn fékk 60 daga fangelsisdóm fyrir að kýla tvo lögreglumenn. Refsingin fell- ur niður haldi hann skilorð í tvö ár. Árásin átti sér stað fyrir utan veitingastaðinn Monte Carlo á Laugavegi aðfaranótt föstu- dagsins 11. jan- úar sl. Fjórir óeinkennis- klæddir lög- reglumenn voru við fíkniefna- eftirlit og höfðu afskipti af tveimur körlum og einni konu. Á sama tíma komu mennirnir þrír ákærðu akandi niður Laugaveg- inn ásamt tveimur löndum sínum og íslenskri konu. Mennirnir sögðust hafa haldið að lögreglumennirnir, sem voru óeinkennisklæddir, hefðu ætlað að ráðast á fólkið. Þeir hefðu vilj- að koma fólkinu til hjálpar. Einn Litháanna fór út úr bílnum og kýldi tvo af lögreglumönnunum. Maðurinn var ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni en ekki fékkst sannað að hann hefði vitað að mennirnir væru lögreglumenn, þó að þeir fullyrði að þeir hafi hrópað „police“ og rétt fram ein- kennismerki sín. Refsingin var því mildari en ella. Mönnunum þremur var svo öllum gefið að sök að hafa ráðist á annan lögregluþjón, slegið hann ítrekað, meðal annars í höfuðið, og sparkað tvisvar í höfuð hans eftir að þeir höfðu fellt hann. Lög- regluþjónninn hlaut heilahristing og marga aðra áverka. Samkvæmt dómnum fékkst ekki fullsannað hver hefði ráðist á lögregluþjóninn, enda hefðu fleiri en ákærðu verið á staðnum. Voru þeir því allir sýknaðir. Steinar Adolfsson segist þess fullviss að árásin hafi verið skipu- lögð. „Þessi niðurstaða er veru- legt áfall með tilliti til starfsör- yggis og starfsumhverfis lögreglu mannanna,“ segir Stein- ar. Hann bendir á að nýverið hafi refsiramminn fyrir brot gegn lög- reglumönnum verið hertur. „Það eru mikil vonbrigði að lesa þennan dóm,“ segir Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefna- deildar lögreglunnar á höfuðborgar svæðinu. Karl segist hafa rætt við lögreglumennina sem urðu fyrir árásinni og segir þá hafa orðið fyrir vonbrigðum með dóminn. steindor@frettabladid.is Lögreglumenn eru hneykslaðir og reiðir Tveir litháískir karlmenn voru í gær sýknaðir af líkamsárás gegn lögreglu- manni við störf. Þriðji Litháinn fékk 60 daga skilorðsbundinn dóm fyrir að kýla tvo lögreglumenn. „Mikil vonbrigði,“ segir yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglu. KARL STEINAR VALSSON ALÞINGI Kristján Möller sam- gönguráðherra telur skynsamlegt að reist verði hús við Reykja- víkurflugvöll sem nýst geti sem flugstöð til bráðabirgða. Á Alþingi í gær kallaði Kristján núverandi húsakynni Flugfélags Íslands við völlinn skúra en sagði framtíðarskipan mála flugvallar- ins í Vatnsmýri í óvissu. Valgerður Sverrisdóttir Framsóknarflokki spurði Kristján út í málið og sagði núverandi vandræðaástand bitna á flug- farþegum. Kristján kvaðst sammála en bygging samgöngu- miðstöðvar strandaði á leyfisveit- ingu frá Reykjavíkurborg. - bþs Samgönguráðherra: Flugstöð byggð til bráðabirgða MONTE CARLO Þrír óeinkennisklæddir lögreglumenn urðu fyrir líkamsárás fyrir utan veitingastaðinn Monte Carlo á Laugavegi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Lögreglumenn eru hneykslaðir, þeir eru reiðir og þeim misbýður þau skilaboð sem dómurinn sendir út. STEINAR ADOLFSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI LANDSSAMBANDS LÖGREGLUMANNA SIGURÐUR EINARSSON Starfandi stjórnar for- maður Kaup- þings gagnrýnir danska fjölmiðlamenn harðlega. Notar þú endurskinsmerki? Já 23% Nei 77% SPURNING DAGSINS Í DAG: Hefur þú áhyggjur af niður- skurði hjá lögregluembættinu á Suðurnesjum? Segðu skoðun þína á visir.is KJÖRKASSINN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.