Fréttablaðið - 13.03.2008, Page 10

Fréttablaðið - 13.03.2008, Page 10
10 13. mars 2008 FIMMTUDAGUR STJÓRNSÝSLA Hætta er á að skattsvik aukist ef birtingu álagningar- og skattskráa verður hætt. Þetta er mat embætta ríkisskattstjóra og skattrannsóknarstjóra ríkisins sem birtist í umsögnum um frumvarp ellefu þingmanna um að birtingu skránna verði hætt. Persónuvernd telur frumvarpið samrýmast almenn- um sjónarmiðum um einkalífsvernd og gerir ekki athugasemdir við efni þess. Í greinargerð með frumvarpinu, sem lagt var fram á haustdögum og er til meðferðar í efnahags- og skattanefnd, segir að veigamestu rökin að baki frumvarpinu séu að líklega sé brotið gegn rétti fólks til friðhelgi einkalífs með birtingu skránna. Ríkisskattstjóri telur unnt að vernda upplýsingar um fjárhag og laun með því að breyta framsetningu upplýsinga í skránum. Birta mætti álögð opinber gjöld í einu lagi í stað þess að sundurliða þau eins og nú er gert. Í greinargerð með frumvarpinu segir líka að framlagning skránna hafi orðið uppspretta frétta um fjárhagsleg málefni einstaklinga. „Leiða má líkur að því að fjölmiðlaumræða af slíku tagi feli í sér hættu á að einstaklingar verði fyrir óverðskuldaðri áreitni vegna tekna sinna, ýmist vegna þess að þær þyki of háar eða of lágar.“ Blaðamannafélagið deilir ekki þeim áhyggjum með flutningsmönnum og leggst alfarið gegn frumvarpinu. Alþýðusambandið vill óbreytt ástand en Viðskipta- ráð og Hagstofan styðja frumvarpið. Telur Hagstof- an opinbera birtingu um álagningu skatta ríma illa við ákvæði ýmissa laga um vernd persónubundinna upplýsinga og er því sama sinnis og þingmennirnir ellefu og Persónuvernd. bjorn@frettabladid.is Skatturinn vill birta skattskrárnar áfram Ríkisskattstjóri og skattrannsóknarstjóri leggjast gegn frumvarpi um að birt- ingu skattskráa verði hætt enda veiti hún skattborgurum aðhald. Persónuvernd telur birtingu skránna stríða gegn almennum sjónarmiðum um einkalífsvernd. ANDVÍGIR OPINBERUN Ungir sjálfstæðismenn hafa lengi mót- mælt birtingu álagninga- og skattskráa og vörnuðu eitt árið gestum Skattstofunnar í Reykjavík aðgang að upplýsingunum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SANDGERÐI Línubáturinn Björgmundur ÍS-49 strandaði utan við innsiglinguna í Sandgerði um klukkan hálf fimm í gærmorgun. Björgmundur er fimmtán tonna yfirbyggður plastbátur, smíðaður árið 2005 í Hafnarfirði og gerður út af Útgerðarfélagi Bolungarvíkur. Fjórir menn eru í áhöfn og voru þeir á leið í róður í gærmorgun þegar stýri bátsins bilaði. Rak bátinn undan vindi og upp á eyrina. „Þetta er eyri hérna fyrir utan, möl og klappir en það var engin hætta á ferðum,“ segir Guðmundur Ingi Ólafsson, formaður björgunarsveitarinnar Sigurvonar í Sandgerði. Kom hann ásamt félögum sínum í Sigurvon fljótlega á staðinn á björgunar- bátnum Kidda Lár og björgunarskipinu Hannesi Hafstein. Tókst þeim að koma taug í Björgmund og draga inn til hafnar í Sandgerði. Tólf menn unnu að björgunaraðgerðum sem lauk innan klukkustundar. Engin slys urðu á fólk en nokkrar skemmdir urðu á Björgmundi. Skrúfan eyðilagðist og botnstykki bátsins skemmdist. Að sögn Vignis Arnarssonar, skipstjóra og eiganda bátsins, stóð til að taka bátinn upp strax í gær og koma honum á flot í gærkvöldi. „Ný skrúfa og af stað aftur í mokið,“ segir Vignir. - ovd Línubáturinn Björgmundur ÍS-49 frá Bolungarvík strandaði utan við innsiglinguna: Bátur strandaði við Sandgerði BJÖRGMUNDUR ÍS-49 Strandaði á klöppum utan við innsigl- inguna í Sandgerði. MYND/HAFÞÓR HREIÐARSSON MÓTMÆLT Í GEORGÍU Þátttakandi í mótmælafundi við þinghúsið í Tíflis hrópar vígorð. Þingkosningar fara fram í maí og gagnrýnendur Saakashvilis forseta krefjast lýðræðisumbóta. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Ford F-350 Harley Davidsson Verð 12.900.000,- Nýskráður: 12.2006 - Ekinn: 6000 km - Slagrými: 5948 cc - Skipting: Sjálfskiptur - Hestöfl: 485 hö Breyttur fyrir 49”, Banks Turbo kit, Loftpúðafjöðrun aftan, Loftlæsing framan og aftan, Loftdæla, Webasto auka-miðstöð, Drifhlutföll 5:13, Milligír, Aukatankur, Warn 15000 punda spil, Aukarafkerfi, GPS tæki, Bakkmyndavél, Talstöð, Leitarljós, Kastarar, Aftur- og hliðarlýsing, Sérstyrkt framhásing, IPF kasta- rar, Xenon aukaljós, Playstation tölva, 17” skjár fyrir aftursæti, 220w Inverter. Tveir dekkjagangar á bead-lock felgum 44” og 49”. Auglýsingasími – Mest lesið AFGANISTAN, AP Fjarskiptaturn sem sér stóru svæði í vesturhluta Afganistans fyrir símasambandi var eyðilagður á þriðjudag. Árásum á farsímamöstur landsins hefur fjölgað ört á síðustu vikum. Talibanar höfðu hótað símafyrir- tækjunum að eyðileggja möstrin, ef þau slökktu ekki á þeim á kvöldin og nóttunni. Ástæðan er sú að skæruliðar telja að NATO- herliðið noti farsímakerfið til að miða út meinta uppreisnarmenn. Turninn sem eyðilagður var á þriðjudag var í eigu símafyrir- tækisins Areeba. Samkvæmt lýsingum vitna tóku fimm menn þátt í árásinni. - mh Hernaður í Afganistan: Skæruliðar eyða símamöstrum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.