Fréttablaðið - 13.03.2008, Side 12
12 13. mars 2008 FIMMTUDAGUR
EVRÓPUMÁL Samstarf Norðurland-
anna væri öflugra ef öll Norður-
löndin væru aðilar að Evrópusam-
bandinu og samkvæmt reynslu
Svía af ESB-aðild undanfarin 13 ár
liggur leiðin fyrir lítið Evrópuríki
til áhrifa í heiminum í gegnum
Brussel. Þetta segir Gunilla Carls-
son, þróunarmálaráðherra Sví-
þjóðar, en hún var framsögu maður
á málfundi um Norðurlönd og ESB
sem haldinn var á vegum Evrópu-
samtakanna og Alþjóðamálastofn-
unar HÍ í gær.
„Svíar myndu fagna sterkari við-
veru Norðurlanda í Brussel. Ég tel
að það myndi líka styrkja Norður-
landasamstarfið ef þau væru öll í
sambandinu,“ sagði Carlsson í
erindi sínu. Hún segir Evrópusam-
bandið líka myndu hafa gott af því
að hafa öll Norðurlöndin innan-
borðs. Þó segir hún ekki um það að
ræða að Norðurlöndin myndi
„blokk“ innan sambandsins. Engu
að síður líti hún svo á að það myndi
styrkja stöðu Svíþjóðar innan þess
að fá Noreg og Ísland einnig inn.
Carlsson lýsti þeirri reynslu
sinni að leiðin fyrir land af stærðar-
gráðu Svíþjóðar til áhrifa í hinum
hnattvædda heimi nútímans lægi í
gegnum Evrópusambandið. Með
því að finna sér bandamenn innan
þess fyrir sinni afstöðu til mála
væri mögulegt að hafa mun meiri
áhrif á gang mála í heiminum en
ef Svíþjóð stæði utan við ESB og
reyndi upp á eigin spýtur að beita
sér í sömu málum á alþjóðavett-
vangi, svo sem gagnvart löndum
eins og Bandaríkjunum eða Kína.
Meðal annars í þessu lægi ávinn-
ingurinn af aðild að Evrópusam-
bandinu. „Með því að standa utan
við missir maður af möguleikum
til áhrifa,“ segir hún.
Spurð hvort hún telji að Ísland
gæti gert sér vonir um að geta
samið um sérlausn í sjávarútvegs-
málum, ef það færi út í aðildarvið-
ræður, segir hún að viss sveigjan-
leiki sé alltaf fyrir hendi í
aðildarviðræðum. En hún segir
það ekki til góðs árangurs fallið að
fara út í slíkar viðræður með of
harðar kröfur um undanþágur. „Ef
Ísland íhugar alvarlega að fara út
í aðildarviðræður myndi ég ráð-
leggja að gera ekki eins og Bretar
eða Danir, að segjast vilja vera
með en þó bara að hluta. Maður
ætti að ganga hreint til verks og
sýna vilja til að taka þátt að fullu.“
- aa
Ég tel að það myndi styrkja
Norðurlandasamstarfið ef
þau væru öll í sambandinu.
GUNILLA CARLSSON
ÞRÓUNARMÁLARÁÐHERRA SVÍÞJÓÐAR
SKORA Á FARC Þingmenn á Evrópu-
þinginu í Strassborg halda á loft
myndum af Ingrid Betancourt til að
þrýsta á um lausn hennar úr gíslingu
FARC-liða í Kólumbíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NEYTENDUR Verðlagning á Tonlist.com, systursíðu vefverslunarinnar
Tónlist.is, er nú allt að hundrað prósent hærri en í síðustu viku.
Ástæðan er ábending Fréttablaðsins um að tónlistin væri mun dýrari
fyrir Íslendinga en þá sem kaupa hana frá útlöndum.
Á Tónlist.is og Tonlist.com má kaupa íslenska tónlist í gegnum
netið. Ekki er hægt að versla á Tonlist.com nema með tölvu sem er
staðsett utanlands. Síðurnar líta eins út og selja að mestu leyti sömu
tónlist. Þær eru báðar í eigu D3 sem er dótturfélag 365 hf.
Í síðustu viku var sama hljómplatan allt að því tvöfalt dýrari á
Tónlist.is en á Tonlist.com. Aðspurður sagði Steingrímur Árnason,
framkvæmdastjóri D3, eina ástæðu fyrir þessum verðmun vera að
Tonlist.com selji tónlist á erlendu markaðssvæði þar sem verðlag sé
annað.
Á föstudag barst blaðamanni tölvupóstur frá Steingrími þar sem
sagði að verðið á Tonlist.com hefði verið „einhver misskilningur sem
hefur verið leiðréttur“.
Verðið sé nú það sama og á Tónlist.is, að undanskildum virðisauka-
skatti sem leggst ekki á útflutningsvörur.
Nokkrum mínútum síðar hafði allt snarhækkað á Tonlist.com.
Platan Ferðasót með Hjálmum, sem kostaði 662 krónur fyrr um
daginn, hafði hækkað í 1.125 krónur eða um 70 prósent. Platan kostar
1.399 krónur á Tónlist.is.
Aðrar plötur hækkuðu um 20 til 70 prósent. Einstök lög, sem
kostuðu áður 66 krónur kosta nú 131 krónu. Hækkunin nemur
hundrað prósentum. - sþs
Tónlist í vefverslun D3 var mun dýrari á Íslandi en erlendis þar til á föstudag:
Hækkuðu verð um hundrað prósent
NÝTT VERÐ Hér má sjá hvernig verðið hækkaði á Tonlist.com eftir að Fréttablaðið
spurði hvers vegna Íslendingar borguðu mun meira en þeir sem eru erlendis.
+ Nánari upplýsingar og bókanir á
www.icelandair.is eða í síma 50 50 100
* Innifalið í verði: Flug aðra leiðina, flugvallarskattar og gjöld. Sölutímabil: 13.—16. mars. Ferðatímabil: 1.–30. apríl.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
15
49
0
3
/0
8
M
AD
RID
BARCELO
NA
PARÍS
LONDON
MANCHESTER
GLASGOW
MÍLANÓ
AMSTERDAM
MÜNCHEN
FRANKFURT
BERLÍN
KAUPMANNAHÖFN
BERGEN
GAUTABORG
OSLÓ
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
HA
LIF
AX
BO
ST
ONORL
AND
O
MINNE
APOLIS –
ST. PAUL
TORO
NTO
NE
W Y
OR
K
REYKJAVÍK
AKUREYRI
Vortilboð:
Kaupmannahöfn
Verð frá 8.800 kr.*
TAKMARKAÐ SÆTAFRAMBOÐ!
Þróunarmálaráðherra Svíþjóðar:
Leiðin til áhrifa
í gegnum Brussel
GUNNILLA CARLSSON Þróunarmálaráð-
herra segir að samstarf Norðurlandanna
væri öflugra ef öll löndin væru aðilar að
ESB. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN