Fréttablaðið - 13.03.2008, Page 16
13. mars 2008 FIMMTUDAGUR
A
T
A
R
N
A
–
K
M
I
/
F
ÍT
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
blettakerfi
8 kg.
15
mín. hraðkerfi 60
mín. kraftþvottakerfi
Snertihnappar
A+
NOREGUR Jafnlaunanefnd norsku ríkisstjórnarinnar
hefur lagt til að Norðmenn taki upp sams konar
fæðingarorlof og Íslendingar og skipti fæðingarorlof-
inu í þrjá jafnlanga hluta fyrir móðurina, föðurinn og
svo síðasta hlutann sem foreldrarnir skipta sjálfir á
milli sín. Tillagan hefur skapað heitar umræður í
Noregi.
Bæði atvinnurekendur og verkalýðshreyfingin
hafa lýst yfir stuðningi við hugmyndina en gagnrýn-
endur benda á að á Íslandi hafi fæðingarorlofið verið
lengt úr sex í níu mánuði um leið og réttur feðranna
jókst. Norðmenn ætla hins vegar ekki að lengja
fæðingarorlofið heldur taka af rétti mæðranna til að
auka rétt feðranna.
Í Noregi er fimmtán prósenta launamunur kynj-
anna. Norska ríkis stjórnin hefur sett sér það
markmið að minnka launamuninn og var jafnlauna-
nefndin skipuð til þess að fara yfir
stöðuna og koma með tillögur til
úrbóta. Hún hefur nú komist að
þeirri niðurstöðu að með breyting-
um á fæðingarorlofinu verði hægt
að minnka launamuninn og vitnar
til þróunarinnar á Íslandi máli sínu
til stuðnings.
„Við teljum að launamunurinn
verði til á þeim tíma þegar fólk er
með lítil börn. Mæðurnar sitja eftir
en pabbarnir rjúka upp launastig-
ann. Fjörutíu prósent af launamuninum verða til í
einkageiranum og tuttugu prósent í opinberum
geira,“ hefur norska ríkisútvarpið NRK eftir Anne
Enger, formanni nefndarinnar.
Í umræðunni í Noregi hefur komið fram að
fæðingarorlof feðra hafi fengið frábærar viðtökur
meðal karla á Íslandi og því haldið fram að fæðingar-
orlof feðra hafi minnkað launamun kynjanna um
helming en um leið hafi ýmsir dregið þróunina í efa,
aðallega áhugamenn og fagmenn sem vinna með
brjóstagjöf ungbarna.
Norskar mæður hafa rétt til fæðingarorlofs í 44
vikur á fullum launum og 54 vikur á áttatíu prósenta
launum. Með breytingu þyrftu mæður að fara á
vinnumarkað eftir sex mánaða fæðingarorlof.
Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Noregs, telur
tillöguna ganga of langt. „Það er mikill munur á því
hvort móðirin þarf að fara að vinna aftur eftir sex
mánuði eða níu mánuði,“ sagði hann við VG Nett.
Norska ríkisstjórnin hefur lofað að lengja fæðing-
arorlof feðra í tíu vikur, að sögn Dagsavisen, en feður
eiga nú rétt á sex vikum. ghs@frettabladid.is
Vilja feðraorlof að
íslenskum hætti
Jafnlaunanefnd norsku ríkisstjórnarinnar hefur lagt til að Norðmenn taki upp
íslenska fæðingarorlofskerfið með því að færa orlofsrétt frá mæðrum til feðra
en lengja það ekki eins og var gert hér. Tillagan mætir harkalegri gagnrýni.
KOMI NIÐUR Á KONUM Norsk nefnd hefur lagt til að Norð-
menn taki upp þrískipt fæðingarorlof á íslenska vísu, stytti
fæðingarorlof kvenna og lengi fæðingarorlof karla þannig að
kynin eigi jafnan rétt. Tillagan hefur verið harkalega gagnrýnd
og meðal annars bent á að hún komi niður á konum.
JENS STOLTENBERG
UMHVERFISMÁL Meirihluti
um hverfis ráðs Reykjavíkurborg-
ar telur það ekki raunhæft að berj-
ast gegn svifryksmengun með því
að auka skattheimtu af bílum, loka
umferðargötum eða banna ákveðn-
ar bílategundir á ákveðnum svæð-
um.
Þetta kemur fram í svari meiri-
hlutans við fyrirspurn fulltrúa
minnihlutans um það hvernig
brugðist verði við tillögum
umhverfissviðs um viðbrögð við
svifryksmengun.
Í tillögum umhverfissviðs
kemur fram að til þess að draga úr
menguninni séu helstu ráðin þau
að draga úr umferðarhraða,
minnka bílaumferð, taka toll til að
minnka umferð um ákveðna borg-
arhluta, loka götum tímabundið
þegar mengun er mikil, takmarka
þungaumferð og takmarka notkun
nagladekkja.
Í bókun minnihluta í umhverfis-
ráði segir að óþarfi sé að hafna
afdráttarlaust hugmyndum
umhverfissviðs, eins og meirihlut-
inn hafi gert í svari sínu.
Meirihlutinn bókaði á móti að
með grænum skrefum nýs meiri-
hluta sé einmitt farið að ráðum
sérfræðinga umhverfissviðs.
Markmiðið sé að hvetja borgarbúa
til umhverfisvænna samgangna
með því að gera almenningssam-
göngur og hjólreiðar að raunhæf-
um og góðum kosti. - bj
Meirihluti umhverfisráðs borgarinnar um möguleg viðbrögð við svifryksmengun:
Aukin skattheimta óraunhæf
SVIFRYK Draga ætti úr umferðarhraða,
minnka bílaumferð og loka götum tíma-
bundið til að bregðast við svifryksmeng-
un, að mati umhverfissviðs borgarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EFNAHAGSMÁL Stýrivextir eru einna
hæstir hér á landi ef miðað er við
önnur vestræn ríki. Stýrivextir eru
nú 13,75 prósent á Íslandi og eru
líklega hvergi hærri í hinum vest-
rænu ríkjum nema þá helst í Tyrk-
landi. Þar eru stýrivextir 15,25 pró-
sent.
Stýrivextirnir eru yfirleitt á bil-
inu 3,0 prósent, eins og er í Banda-
ríkjunum, upp í 5,25 prósent í Nor-
egi og Bretlandi. Lægstir eru þeir í
Japan, þar sem þeir eru 0,5 pró-
sent. Í Ástralíu eru þeir 7,25 pró-
sent og á Nýja-Sjálandi 8,25 pró-
sent.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins, SA, segir löngu vitað að stýri-
vextir séu mun hærri hér á landi en
í nágrannalöndunum. „Þetta er
mjög bagalegt. Þegar stýrivextir
eru háir svona lengi og ekki fyrir-
sjáanlegt að Seðlabankinn lækki þá
ótilneyddur þá er verið að verð-
leggja krónuna út af markaðnum,“
segir hann.
„Íslenska krónan er í samkeppni
við aðra gjaldmiðla. Þegar stýri-
vextirnir eru svona háir svona lengi
rýrir það samkeppnishæfni krón-
unnar sem gjaldmiðils til að taka
lán í. Lántakendur fara að flýja
krónuna í sífellt meira mæli og
smám saman minnkar hennar hlut-
deild,“ segir Vilhjálmur.
Vilhjálmur segist ráðleggja fólki
að taka lán núna í erlendri mynt
„Eftir að gengið hefur lækkað er
krónan ódýr.“ - ghs
Framkvæmdastjóri SA ráðleggur fólki að taka lán í erlendri mynt:
Krónan verðlögð af markaði
STÝRIVEXTIR
Í nokkrum löndum
Noregur 5,25
Svíþjóð 4,25
Danmörk 4,25
Seðlabanki Evrópu 4,0
Bandaríkin 3,0
Bretland 5,25
Japan 0,5
Ástralía 7,25
Nýja-Sjáland 8,25
Kanada 3,5
Ísland 13,75
Tyrkland 15,25
Miðað við föstudaginn 7. mars 2008.
SAMKEPPNI VIÐ AÐRAR MYNTIR
„Íslenska krónan er í samkeppni við
aðra gjaldmiðla,“ segir Vilhjálmur
Egilsson um stöðuna í gjaldeyrismálum
þjóðarinnar.