Fréttablaðið - 13.03.2008, Síða 18
18 13. mars 2008 FIMMTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Gæta hlutleysis
„Dómarar eru fyrst og fremst
að gæta hlutleysis og þess
vegna eru þeir varkárir þegar
þeir tjá sig.“
EGGERT ÓSKARSSON, FORMAÐUR
DÓMARAFÉLAGS ÍSLANDS
Fréttablaðið 12. mars
Kæra hvor annan
„Ég kærði Ragnar áður en
hann kærði mig, en hann
er búinn að vera að dreifa
einhverjum rógi um mig.“
BENJAMÍN ÞÓR ÞORGRÍMSSON
EINKAÞJÁLFARI
DV 12. mars
„Ég geri enga athugasemd við að
stjórnmálamenn séu skipaðir í þessi
embætti,“ segir Gísli S. Einarsson,
bæjarstjóri á
Akranesi, um
skipan stjórn-
málamanna í
sendiherrastöður.
„Vegna þess að í
flestum tilfellum
er verið að skipa
stjórnmálamenn
sem eru með
mikla reynslu,
góða þekkingu
á íslenskum
aðstæðum og
aðstæðum útlendinga á Íslandi. Þeir
hafa í flestu þekkingu til að koma
hagsmunum Íslands vel á framfæri.
Ég tel það mjög vel við hæfi að
erlendum samskiptum sé sinnt
vel því það er mjög mikilsvert fyrir
okkur sem þjóð, upp á viðskipti,
samskipti, kynningu landsins og
annað. Varðandi fjölgun sendiherra
þá er þetta ekki ótæmandi en við
þurfum að koma okkar sjónar-
miðum á framfæri á svo mörgum
sviðum.“
SJÓNARHÓLL
STJÓRNMÁLAMENN
Í SENDIHERRASTÖÐUR
Gerir ekki
athugasemd
GÍSLI S.
EINARSSON
Bæjarstjóri á
Akranesi.
„Ég er frekar nýkominn úr skiptinámi í Dan-
mörku,“ segir Gunnar Hólmsteinn Guðmunds-
son verkfræðinemi. „Ég ákvað að fara
þangað til að taka nokkra valkúrsa sem
voru ekki í boði hérna heima.“
Gunnar segir það hafa verið
áhugavert að kynnast annars konar
námsáherslum. „Námið hérna heima
er mun fræðilegra, en áhersla Dana
er á að gera verkefni og útskýra þau
munnlega. Mér finnst það mjög
mikilvægt fyrir atvinnulífið,“
segir Gunnar. „Á Íslandi sitja
krakkar í tíu ár í grunn-
skóla án þess að þurfa
að segja neitt, nema
kannski flytja eitt og
eitt ljóð. Mér finnst að
krakkar ættu ekkert að
komast upp með það.“
Gunnar tekur þátt ásamt félögum sínum í
Frumkvöðlakeppni Innovit. „Við erum að þróa
nýstárlega leið til að gera viðhorfsrannsóknir
með aðstoð gervigreindar á netinu,“ segir Gunn-
ar. Í fyrstu verðlaun er ein og hálf milljón króna.
„Svo erum við fimm saman félagar að spá
í að kaupa okkur hús í miðborginni. Það er
fiðringur í manni vegna þess hvað markaðurinn
er óstöðugur, en við lögðum fram tilboðið í
gærmorgun,“ segir Gunnar.
„Annars fór ég með Gumma félaga
mínum í ísbíltúr í síðustu viku til Akur-
eyrar. Við fengum okkur Brynjuís og það
tók alveg tíu klukkutíma, en það var
ferðarinnar virði. Í næstu viku förum við
líklega til Þorlákshafnar í humarsúpu og
svo kannski seinna í hreindýrsborgara á
Egilsstöðum,“ segir Gunnar Hólmsteinn.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? GUNNAR HÓLMSTEINN GUÐMUNDSSON VERKFRÆÐINEMI
Tíu tíma ísbíltúr til Akureyrar
■Lundinn er
svartur á kolli,
hálsi og baki,
hvítur að neðan
og grár í vöngum.
Til eru litaafbrigði
sem kennd eru við kóngafólk.
Alhvítur lundi kallast kóngur,
lundi með brúnan lit í stað þess
svarta kallast drotting, og flekk-
óttur eða hvítdröfnóttur lundi
kallast prins. Lundinn gengur
undir mörgum gælunöfnum
vegna sköpulags síns og háttern-
is. Hann er kallaður prófasturinn
vegna göngulagsins og þess
virðuleika sem hann hefur yfir að
bera þegar hann gengur sperrtur
um auk þess sem liturinn á
fjaðrahamnum minnir á hempu.
LUNDINN:
KALLAÐUR PRÓFASTUR
Á hverju ári þreyta karlar
og konur Guðlaugssund
í Vestmannaeyjum og
minnast um leið eins fræki-
legasta afreks sem unnið
hefur verið á vorum dögum.
Afreksmaðurinn sjálfur var
á svæðinu að venju.
Hinn 1. mars árið 1984 var Guð-
laugur Friðþórsson í fimm manna
áhöfn á Hellisey VE á togveiðum
austur af Stórhöfða þegar trollið
festist í botninum með þeim
afleiðingum að bátnum hvolfdi.
Guðlaugur var sá eini sem komst
lífs af en hann synti rúma fimm
kílómetra leið til Vestmannaeyja
í ísköldum sjónum.
Friðrik Ásmundsson var á
þessum árum skólastjóri Stýri-
mannaskólans í Vestmannaeyj-
um. „Árið eftir að Guðlaugur
vann þetta afrek fengu nemend-
ur mínir þá hugmynd að halda
Guðlaugssund í Sundhöll Vest-
mannaeyja,“ segir Friðrik. „Síðan
þá höfum við minnst þessa fræki-
lega afreks á hverju ári 12. mars
en það var á þeim degi sem hann
kom í land.“
Að þessu sinni tóku sautján
þátt í sundinu en fimm syntu heilt
Guðlaugssund sem er 5,4 kíló-
metrar eða sama vegalengd og
hann synti fyrir 24 árum.
Þeir voru Helgi Einarsson,
sonur hans Aron og dóttir hans
Árney, Guðný Jensdóttir og Sól-
rún Haraldsdóttir. Aron náði
bestum tíma eða einni klukku-
stund og 26,5 mínútur.
„Svo tóku Óskar Óskarsson og
Guðný Óskarsdóttir, sem eru syst-
kini á miðjum aldri, þátt og skiptu
Guðlaugssundinu bróðurlega á
milli sín,“ segir Friðrik kankvís.
Síðan skiptu fjórir starfsmenn úr
Glitni sundinu á milli sín og krakk-
ar úr Sunddeild Vestmannaeyja
létu heldur ekki sitt eftir liggja.
„Svo leit Guðlaugur sjálfur við
eins og hann gerir alltaf,“ bætir
Friðrik við. Aðspurður hvort sund-
garpurinn sá hefði stungið sér til
sunds segir Friðrik „nei, hann er
víst búinn að fá að synda nóg.
Reyndar má segja, ef ég gantast
nú aðeins, að hann hafi notið nokk-
urra forréttinda í sínu sundi fyrir
24 árum en hann fékk fylgd frá
múkkanum en því var ekki að
heilsa í Sundhöllinni.“
jse@frettabladid.is
Afrek sem vert er að synda fyrir
ALLIR Í GUÐLAUGSSUNDI Friðrik Ásmundsson stendur þarna með skeiðklukkuna yfir buslandi sundköppum í Guðlaugssundi en
Allan Friðriksson sundvörður fylgist með honum á vinstri hönd. MYND/ÓSKAR FRIÐRIKSSON
GUÐLAUGUR FRIÐÞÓRSSON Afreksmað-
urinn kom við í Sundhöllinni eins og
hann hefur alltaf gert þegar Guðlaugs-
sund hefur verið þreytt til að minnast
afreks hans. MYND/ÓSKAR FRIÐRIKSSON
Verið er að undirbúa umfjöllun um íslenska
kvótakerfið fyrir fréttaskýringaþáttinn „Thalassa“
sem sýndur er á frönsku sjónvarpsstöðinni France
3. Hann verður svo sýndur laugardaginn 19. apríl
að sögn Jóns Þórðarsonar, athafnamanns á
Bíldudal, en hann er einn af viðmælendum þeirra í
þættinum. Þeir voru við tökur á Bíldudal og í
Arnarfirði í byrjun febrúar en einnig fóru þeir
víðar um landið.
„Þátturinn þar sem umfjöllun þeirra verður sýnd
er mjög vinsæll fréttaskýringaþáttur og er áhorf
um 15 til 20 prósent sem telst nokkuð mikið að
teknu tilliti til hve margra sjónvarpsstöðva
Frakkar geta valið um,“ segir Jón. „Þættinum er
einnig dreift til 25 landa að lokinni sýningu í
heimalandinu.“
Hann segir enn fremur að áhugi þeirra hafi
vaknað á kvótakerfinu í kjölfar álits mannréttinda-
nefndar Sameinuðu þjóðanna en þar segir að
íslensk yfirvöld hafi beitt þá Örn Snævar Sveins-
son og Erling Svein Haraldsson misrétti en þeir
sóttu málið eftir að hafa verið sakfelldir af
íslenskum dómstólum fyrir að veiða án veiðiheim-
ilda.
Sjónvarpsmenn tóku viðtal við Örn Snævar sem
nú sækir sjóinn frá Reykhólahreppi. - jse
Fréttaskýring um kvótakerfið á franskri sjónvarpsstöð:
Íslenskir sjómenn á franska skjánum
VIÐ TÖKUR Í ARNARFIRÐI Hér eru frönsku sjónvarpsmennirnir
frá France 3 við tökur í Arnarfirði. Þátturinn verður sýndur í
Frakklandi 19. apríl en síðan í 27 löndum. MYND/BILDUDALUR.IS