Fréttablaðið - 13.03.2008, Side 23

Fréttablaðið - 13.03.2008, Side 23
FIMMTUDAGUR 13. mars 2008 23 Nú styttist óðum í páska og páskaeggin fyrir nokkru far- in að setja svip sinn á mat- vöruverslanir. Fréttablaðið lét sér ekki nægja að kíkja á góssið heldur kannaði verð á helstu tegundum í nokkrum verslunum. Svo var komið að því að opna þau, spá í inni- haldið sem var vegið og að endingu vel þegið. Líkt og um síðustu páska eru umsvifamestu innlendu framleið- endurnir Nói-Síríus, Freyja og Góa. Fréttablaðið kannaði verð á einni stærð frá þessum framleiðendum í Bónus-verslunum, Fjarðarkaupum, Hagkaupum, Krónunni, Nettó, Nóa- túni og Samkaupum. Tegundirnar eru Góupáskaegg númer 6, Freyju rísegg númer 9 og páskaegg Nóa- Síríus númer 6. Verð Góueggið sem keypt er í Fjarðar- kaupum er eina eggið, af þeim sem könnuð voru, sem selt er undir þús- und krónum. Er það jafnvel lægra verð en ódýrasta eggið í könnun Fréttablaðsins í fyrra sem gerð var á sömu tegundum. Séu þær tölur bornar saman má sjá að verðið á páskaeggjunum hefur lækkað í mörgum tilfellum. Til dæmis hafa allar þessar tegundir lækkað í Fjarðarkaupum og þær tvær tegundir sem fást í Bónus hafa einnig lækkað í verði. Í Krónunni hafa ríseggið og eggið frá Nóa- Síríus lækkað og í Nóa- túni hafa Góueggið og egg Nóa-Síríus einnig lækkað. „Það er bara sam- keppnin við lágvöru- verðsverslanirnar sem fær okkur til að lækka verðið,“ segir Gísli Sigurbergsson, verð- lagsstjóri Fjarðarkaupa. Kristján Geir Gunnars- son, markaðsstjóri Nóa- Síríus, segir að hrávöru- verð hafi hækkað og því hafi framleiðendur hækkað sitt verð um 5 til 7 prósent frá í fyrra. Hann fagnar því að sú hækkun hafi ekki bitnað á neytendum. Í ár fer hins vegar ein af þessum tegundum yfir tvö þúsund krónur en það kom ekki fyrir í fyrra. Það er egg Nóa-Síríus í Hagkaupum. Hvar er dýrast og ódýrast? Í öllum verslunum var eggið frá Nóa-Síríus dýrast nema í Nóatúni og svo Nettó þar sem það var á sama verði og Freyju ríseggið. En páskaeggið frá Nóa-Síríus er einnig þyngst, eða 600 grömm. Páskaegg- ið frá Góu var alls staðar ódýrast. Munurinn á ódýrasta egginu, sem er Góueggið keypt í Fjarð- arkaupum, og dýrasta egginu, sem er egg Nóa- Síríus keypt í Hagkaup- um, er 1.061 króna. Góueggið fæst ekki í Bónus en hinar tegundirn- ar tvær voru ódýrastar þar. Freyju ríseggið var dýrast í Nóatúni en þó var sáralít- ill munur á verðinu þar og í Sam- kaupum og Hagkaupum. Góuegg- ið var dýrast í Samkaupum þar sem það var einni krónu dýrara en í Hagkaupum og Nóatúni. Páskaegg númer 6 frá Góu „Fátt fer svo vel, að eigi megi betur fara“, segir málshátturinn í páska- eggi númer 6 frá Góu. Inni í því má finna karamellur, konfektmola, lakkrís, hlaup, sleikjó og súkkulaði- húðaðar rúsínur. Minnst af sælgæti fylgir því eggi, eða 238 grömm, sem er ögn minna en góssið sem er í rísegginu. Rísegg númer 9 frá Freyju „Sá vægir sem vitið hefur meira“, segir málshátturinn í rísegginu og kæmi sú speki sér eflaust vel víða þegar vel hefur verið neytt af sykri. Innihaldið er býsna litríkt enda er mikið um sælgætiskúlur, hlaup og möndlur í ýmsum litum. Þar að auki eru karamellur, hríspoki, konfekt- molar og svo rís-súkkulaði sem reyndar er utan við eggið. Í könnun Fréttablaðsins í fyrra reyndist sæl- gætið mest með þessu eggi en nú er það um 50 grömmum léttara en í Nóa-Síríus egginu. Páskaegg númer 6 frá Nóa-Síríus „Enginn er of gamall gott að læra“, segir málshátturinn í páskaeggi númer 6 frá Nóa-Síríus. Inni í því er að finna tvo Nóakropp-poka, kon- fektmola, súkkulaðihúðaðar rúsín- ur, lakkrísrúllu, tvo poka með hlaupi, krít í poka, litskrúðuga sæl- gætismola í poka og síðan töggur. Þar að auki eru kúlur sem sumar hverjar innihalda lakkrís. Í versl- unarferðinni spurði Fréttablaðið nokkra viðskiptavini í matvöru- verslunum hvaða páskaegg þeim þætti best og var Nóa-Síríus páska- eggið oftast nefnt í því sambandi. Þetta er þyngsta eggið og með mesta sælgætið. jse@frettabladid.is Páskaeggin lækka víða í verði HVAÐA PÁSKAEGG ÞYKIR ÞÉR BEST? „Mér finnst reynd- ar páskaeggin sem amma býr til best en þegar ég kaupi páskaegg kaupi ég Nóa-Síríus. Ég fékk oft aðrar tegundir þegar ég var yngri en mér finnst þau ekki eins góð, ég veit ekki af hverju, kannski bara stemningin. Málshátt- urinn skiptir miklu máli, ég man meira að segja enn þann sem ég fékk í fyrra: Betra er að vera laukur í lítilli ætt en strákur í stórri.“ Egill Kaktus Þorkelsson „Ég er svo sem eng- inn sérfræðingur í páskaeggjum. Við erum náttúrulega með páskaegg í Bretlandi þaðan sem ég kem, ég er þó ekki frá því að þau íslensku séu betri því innihaldið er meira spenn- andi hér, hin bresku eru nefnilega tóm. Til dæmis eru börnin afar spennt fyrir namminu og ég fyrir málshættinum.“ Katrin Faulkes „Ég hreinlega man það ekki hvaða páskaegg mér finnst best, það er svo langt síðan ég smakkaði þau. En ég gef nú barna- börnunum páska- egg og þau hafa eflaust mikla skoðun á þessu. Ég kaupi venjulega Nóa Síríus-páska- eggin, ætli það sé ekki vegna þess að sjálfur fékk ég Nóa-egg þegar ég borðaði þetta af kappi og svo er gott að kaupa þau því maður er viss um að þetta er íslensk framleiðsla.“ Jónas R. Jónsson VERÐKÖNNUN Á PÁSKAEGGJUM GÓA PÁSKAEGG NÚMER 6 FREYJA RÍSEGG NÚMER 9 NÓI-SIRÍUS EGG NÚMER 6 Heildarþyngd 550 g Heildarþyngd 540 g Heildarþyngd 600 g Þyngd innihalds 238 g Þyngd innihalds 240 g Þyngd innihalds 293 g 2008 2007 2008 2007 2008 2007 Bónus - - 1.389 1.398 1.589 1.598 Fjarðarkaup 998 1.189 1.398 1.462 1.689 1.727 Hagkaup 1.398 1.299 1.835 1.695 2.054 1.675 Krónan 1.229 1.199 1.390 1.399 1.590 1.599 Nettó 1.299 1.202 1.799 - 1.799 1.632 Nóatún 1.398 1.399 1.839 1.698 1.798 1.985 Samkaup 1.399 1.099 1.835 - 1.999 1.795

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.