Fréttablaðið - 13.03.2008, Side 28
UMRÆÐAN
Dómskerfið
Ómar R. Valdimarsson hefur fengið staðfest fyrir dómi að staðhæfingar
Gauks Úlfarssonar um að hann sé rasisti
séu ósannar og beri því að líta á þær sem
ærumeiðingar. Meira hékk á spýtunni því
Gaukur mun hafa sagt að Ómar ynni
fyrir alþjóðlegt glæpagengi. Þar er vísað
til þess að Ómar hafi verið fréttafulltrúi
fjölþjóðarisans Impregilo. Ómari þótti
þessi áburður svo ærumeiðandi að hann lét ekki við
það eitt sitja að krefjast þess að ummælin væru
dæmd ómerk heldur vildi láta dæma sér tvær
milljónir í skaðabætur. Í dómsniðurstöðu segir hins
vegar að Impregilo sé ekki aðili að málaferlunum og
því ekki ástæða til að fella dóm um þau ummæli.
Ég skal játa að mér hefði þótt fróðlegt að fylgjast
með Impregilo hvítþvo sig af áburði um glæpsam-
legt athæfi í Suður-Ameríku, Afríku og víðar. Í
málaferlum um ærumeiðingar gagnvart Impregilo
væri Gaukur ekki einn á báti. Þar væri undirritaður
líka, höfundar rannsóknarskýrslu breska þingsins,
fréttamenn, þingmenn í Brasilíu og Paragvæ að
ógleymdum Carlos Menem, fyrrverandi forseta Arg-
entínu, sem sagði að Impregilo hefði reist minnis-
varða um spillingu með sviksemi og prettum við
framkvæmdir í Suður-Ameríku.
Ekki ætla ég að fara í saumana á hvað bjó að baki
ásökunum Gauks Úlfarssonar varðandi meinta
fordóma Ómars R. Valdimarssonar. Þar komst
dómur að niðurstöðu sem ég ætla ekki að vefengja
þótt ýmsar yfirlýsingar Ómars, þar sem erlendir
menn koma við sögu, þyki mér umdeilanlegar
jafnvel þótt ekki sé um kynþáttafordóma að ræða.
Það er hins vegar sitthvað annað sem orkar
tvímælis í þessu máli. Í niðurstöðu dómara segir m.
a.: „þótt stefndi hafi tekið þátt í stjórnmálaumræðu
á vefsíðu sinni … verður ekki fallist á að stefnandi
sé opinber persóna í þeim skilningi að hann verði að
þola meiri og sterkari gagnrýni en gengur og
gerist.“ En ber prívatpersónan Ómar ekki einhverja
ábyrgð gagnvart þeim sem hann fjallar um? Af
málskjölum að dæma virðist vefsíða Ómars hafa
verið nokkuð glæfraleg á köflum, óspart dylgjað um
pólitíska andstæðinga og stundum gróflega snúið út
úr orðum þeirra. Því fer fjarri að Ó.R.V. sé saklaus
af pólitískum leðjuslag. Þrátt fyrir þetta samhengi
hlutanna lætur dómarinn sér ekki nægja
að dæma áburðinn um rasisma ómerkan
heldur á Gaukur Úlfarsson að punga út
með 300 þúsund krónur í miskabætur og
500 þúsund krónur fyrir málskostnaði
Ómars. Með dráttarvöxtum kemur
kostnaðurinn til með að teygja sig í átt að
milljóninni.
En lítum nú á annað mál. Maður er
dæmdur fyrir að hafa barið konu til
óbóta með „ítrekuðum hnefahöggum í
höfuð og andlit og þá sparkað í líkama
hennar, með þeim afleiðingum að hún
hlaut opið sár og mar á augnlok og augnsvæði hægra
megin, marga yfirborðsáverka á höfði, mar yfir
hryggjartindi, mar á aftanverðum hægri upphand-
legg, yfirborðsáverka á öxl og mar á vinstra læri.“
Og hver skyldi niðurstaða dómara hafa verið í þessu
máli? Í dómsorði segir: „Ákærði …sæti fangelsi í tvo
mánuði, en fresta skal fullnustu refsingarinnar og
hún falla niður að liðnum tveimur árum. Ákærði
greiði … 90.000 krónur í málsvarnarlaun, þar með
talinn virðisaukaskattur.“
Hvað er íslenska dómskerfið að segja? Ef
einstaklingur er borinn röngum sökum opinberlega
er ekki látið sitja við það eitt að dæma viðkomandi
ummæli ómerk heldur er beitt þungum viðurlögum.
Ef einstaklingur hins vegar misþyrmir annarri
manneskju þannig að hún stórskaddast eru engar
miskabætur dæmdar.
Þetta þýðir að menn skuli gæta orða sinna á hinum
pólitíska vígvelli, annars skuli þeir hafa verra af. Ef
þú hins vegar ert kona og þér er misþyrmt þannig að
þú bíður verulegan skaða er til einskis að leita til
dómstóla um miskabætur. Í hugum kvenna sem
orðið hafa fyrir ofbeldi er reyndar svo komið að
dómstólaleiðin er slík þrautaganga að aðeins lítill
hluti þeirra kærir ofbeldið. 15% kvenna sem sóttu
Kvennaathvarfið árið 2007 kærðu ofbeldið. Af þeim
konum sem sóttu Stígamót árið 2007 kærðu 13%.
Það er hægt að meiða fólk með margvíslegum hætti.
Það er hægt að meiða fólk með orðum. Það er líka
hægt að meiða fólk með hnefanum. Íslenskir
dómstólar hafa verið að prísleggja meiðslin.
En það er líka hægt að meiða fólk með dómum.
Svo mikið er hægt að misbjóða fólki með ranglátum
dómum að réttarvitundin og þar með sjálft réttar-
kerfið bíði skaða af.
Höfundur er þingmaður Vinstri grænna.
28 13. mars 2008 FIMMTUDAGUR
ÖGMUNDUR JÓNASSON
Hvað kostar að meiða fólk?
UMRÆÐAN
Heimaþjónusta fyrir
aldraða
Í starfsáætlun Vel-ferðarsviðs fyrir
árið 2008 kemur fram
pólitísk áhersla meiri-
hluta borgarstjórnar á
samþættingu, upp-
byggingu og aukna
þjónustu við aldraða
og fatlaða í heimahús-
um. Við leggjum ríka áherslu á
þessa þætti í þriggja ára áætlun
sem var til umræðu í borgar-
stjórn Reykjavíkur hinn 5. mars
síðastliðinn. Meðal þess sem
stendur til er að auka fjármagn til
heimaþjónustu um 250 milljónir
króna.
Á réttri leið
Af nýútkominni skýrslu OECD
má glöggt ráða að hugmyndir
okkar og ákvarðanir í málefnum
eldri borgara eru réttar – við
eigum að leggja enn frekari
áherslu á að nóg sé til af sérhönn-
uðum íbúðum fyrir þennan hóp í
tengslum við hjúkrunarheimili og
þjónustu. Þetta er einmitt það
sem við höfum verið að gera og
við hyggjumst halda áfram á
sömu braut. Hafið er mikið átak í
húsnæðismálum aldraðra og við
höfum þegar sett í gang uppbygg-
ingu á tveimur nýjum félags- og
þjónustumiðstöðvum við Sléttu-
veg og Spöng auk yfir 200 þjón-
ustuíbúða í tengslum við þær. Nú
þegar höfum við skrifað undir
viljayfirlýsingu um að veita Sam-
tökum aldraðra lóð við Sléttuveg
og verður gengið frá úthlutun á
henni innan tíðar. Í farvatninu er
einnig úthlutun lóða til Félags
eldri borgara bæði við Gerðuberg
og í Suður-Mjódd. Beðið er sam-
þykkis nýs deiliskipulags til þess
að hægt verði að úthluta þeim
lóðum. Auk þessa er verið að
skoða hvar SA geti fengið aðra
lóð til uppbyggingar fleiri íbúða
og er t.d. horft til miðsvæðis Úlf-
arsárdalsins í því samhengi.
Meira en steinsteypa
Við höfum ekki einungis gert átak
í búsetuuppbyggingu því við
höfum líka skoðað fleira sem
hægt er að gera til að auðvelda
einstaklingum að búa heima.
• Við fórum af stað með til-
raunaverkefni um öryggissíma
til sex mánaða hjá hundrað ein-
staklingum. Sú tilraun hefur
gengið vel og er nú verið að skoða
með hvaða hætti við höldum
áfram með þá þjónustu.
• Við erum í til-
raunaverkefni við að
aðstoða fimm einstakl-
inga sem eru á bið
eftir þjónustuíbúð við
að gera breytingar á
íbúðum sínum svo þeir
geti áfram búið
heima.
• Við skrifuðum
undir forvarnarsamn-
ing við Forvarnarhús
Sjóvár um fræðslu til
aldraðra um hættur í
heimahúsum. Auk þess mun For-
varnarhús Sjóvár taka út
nýbyggðar íbúðir ætlaðar eldri
borgurum.
Sameining þjónustunnar
Sennilega er þó það mikilvægasta
ótalið, en það eru viðræður okkar
við heilbrigðisráðuneytið um að
sameina heimahjúkrun og heima-
þjónustu. Með því að sameina
þjónustuna teljum við að megi ná
fram samfelldari, einfaldari og
betri þjónustu við þjónustuþega.
Það komst loks skriður á það
mál síðastliðið sumar með nýjum
vindum í heilbrigðisráðuneytinu,
en því er ekki að leyna að okkur
hafði ekki tekist að fá fund með
fyrrverandi heilbrigðisráðherra.
Nú er umhverfið annað og mikill
vilji af hálfu ríkis og borgar til
þess að við látum sameiningu
heimahjúkrunar og heimaþjón-
ustu verða að veruleika. Velferð-
arsvið og heilbrigðisráðuneytið
funda nú vikulega um það hvern-
ig best sé að sameina þessa þjón-
ustu og ráðinn hefur verið verk-
efnastjóri í fullt starf til
Velferðarsviðs til þess að vinna
að sameiningunni. Auk þess vinn-
ur verkefnastjóri á vegum heil-
brigðisráðuneytisins að þessum
málum.
Það er að mörgu að hyggja og
mikilvægt að vel takist til. Ég
bind miklar vonir við að okkur
takist að sameina þessa þjónustu-
þætti í borginni öllum þjónustu-
þegum til heilla og aukinna lífs-
gæða. Þetta er afar mikilvægt
skref sem við þurfum að stíga
sem allra fyrst.
Höfundur er borgarfulltrúi og
formaður velferðarráðs.
Betri búsetuskilyrði
Með því að sameina þjónust-
una teljum við að megi ná
fram samfelldari, einfaldari
og betri þjónustu við þjónustu-
þega.
JÓRUNN
FRÍMANNSDÓTTIR
UMRÆÐAN
Ruslpóstur
Síðasta misserið fór að bera á verulegri
aukningu ruslpósts
með venjulegum pósti
frá Íslandspósti. Við
höfðum verið bless-
unarlega laus við
þennan ófögnuð um
langa hríð og bréfber-
arnir virðast hafa kunnað að lesa
áberandi skilti við bréfalúguna.
Nú ber svo við, að þeir virðast
vera orðnir ólæsir og láta afþökk-
un ruslpósts sem vind um eyru
þjóta.
Hinn 31. janúar 2008 var mér
nóg boðið eftir ítrekuð mótmæli
við þjónustufulltrúa Íslandspósts
hf. eða Póstsins hf. Þjónustufull-
trúi sagði undirrituðum að fyrir-
tækið hefði hætt allri kurteisi
við móttakendur pósts og gæti
ekki hugsað sér annað en að ausa
sem mestu rusli yfir okkur. Hann
tilkynnti jafnframt, að sér væri
óheimilt að segja mér, hver bæri
ábyrgð á nýjum vinnureglum
fyrirtækisins og hún mætti ekki
gefa mér samband við neina
ráðamenn þess til að mótmæla
þessari ósvífni.
Ég sendi Póst og fjarskipta-
stofnun fyrirspurn um ástandið.
Mig vantar upplýs-
ingar um rétt minn til
að losna við þetta rusl
og hvaða meðulum
stofnunin geti beitt til
að gæta réttar míns.
Mig langar líka til að
vita, hver viðbrögð og
afleiðingar kynnu að
verða, ef ég ákvæði
einhliða að loka bréfa-
lúgunni hjá mér og
gera Íslandspóst
ábyrgan fyrir afleiðingunum.
Íslandspóstur lýsti yfir stríði,
sem mig langar ekki til að taka
þátt í.
Þjónustufulltrúinn svaraði síð-
ari spurningunni þannig, að póst-
urinn yrði geymdur í dreifingar-
stöð svæðisins í tvær vikur og
síðan endursendur. Hún sagði
einnig, að henni væri óheimilt að
segja mér hver og hvar dreifing-
armiðstöðin væri, þótt ég byðist
til að sækja póstinn minn sjálf-
ur.
Póst- og fjarskiptastofnun
hefur ekki svarað opinberlega
enn þá þótt næstum mánuður sé
liðinn síðan fyrsti tölvupóstur
var sendur stofnuninni. Er virki-
lega löglegt að bjóða almenningi
svona þverstæðubull? Íslands-
póstur ætti að skammast sín.
Höfundur er leiðsögumaður.
Ruslpóstur Íslandspósts
FRIÐRIK HARALDSSON
G
ra
fík
a
20
08
NEYÐAR- OG ÖRYGGISFJARSKIPTI
Ein samhæfingarstöð - samræmt fjarskiptakerfi
RÁÐSTEFNA
Verður haldin á Hótel Loftleiðum föstudaginn 14. mars kl. 9:00 – 16:00
Setning
Hvað eru neyðar- og öryggisfjarskipti
Staðan í dag: Land
Staðan í dag: Loft
Staðan í dag: Sjór
Kaffihlé
Lögreglan
Björgunarsveitir
Smærri slökkvilið
Almannavarnir
Vegagerðin
Matarhlé
Sjúkraflutningar
Orkufyrirtækin
Slökkviliðin
Vinnubúðir (workshops)
Eiginleikar og uppbygging Tetrakerfisins
Pallborðsumræður. Lögregla, Landsbjörg, Sjúkra- og slökkviliðsmenn,Tetra.
Björn Bjarnason
Magnús Hauksson
Þröstur Brynjólfsson
Bergþór N. Bergþórsson
Gylfi Geirsson
Hjálmar Björgvinsson
Daníel Gunnlaugsson
Davíð Rúnar Gunnarsson
Rögnvaldur Ólafsson
Nicolai Jónasson
Boðið upp á léttan hádegisverð
Ármann Höskuldsson
Guðlaugur Sigurgeirsson
Kjartan Blöndahl
4 hópar
09:15
09:30
09:45
10:00
10:15
10:30
11:00
11:15
11:30
11:45
12:00
12:15
13:15
13:30
13:45
14:00
15:00
15:30
16:00 Ráðstefnu lýkur
Dagskrá:
Í lok ráðstefnu verður boðið upp á léttar veitingar.
Ráðstefnustjóri: Róbert Marshall
Vinnubúðir (workshops)
Fjarskiptastjórar - Fjölhópar
Eiginleikar kerfisins
Gáttir – Endurvarpar - DMO
Notendabúnaður
G
ra
fik
a
20
08
Þröstur Brynjólfsson