Fréttablaðið - 13.03.2008, Side 35

Fréttablaðið - 13.03.2008, Side 35
[ ]Blaðagrind til að halda utan um reikningana er nauð-synleg til að friður ríki yfir heimilishaldinu. Ekki láta glugga-um slögin dreifast um húsið. Ævintýralega munstraðir stólar Tord Boontje fyrir Moroso. Hollenski hönnuðurinn Tord Boont- je er þekktastur fyrir fínleg blóma- og náttúrumunstur sem hann útfærir á ýmsan hátt í húsgögnum, ljósakrónum og áklæðum. Þessi stóll, Dúkkustóllinn, er eins og íklæddur prinsessukjól og er úr línu húsgagna sem Boontje hann- aði fyrir ítalska fyrirtækið Moroso en það leggur áherslu á samvinnu við frumlega hönnuði. Í línunni finnast ruggustólar, bekkir, borð og sessur og skapar Boontje ævin- týraheim með munsturgerð en hús- gögnin bera nöfn eins og Norna- stóll og Fagri spegill. - rat Blóm og ævintýri Kartell fylgist með tæknifram- förum og vinnur með hönnuð- um í fremstu röð. Ítalska fyrirtækið Kartell var stofnað árið 1949 af efnaverk- fræðingnum Giulio Castelli. Kart- ell framleiddi bílahluti til að byrja með en festi sig í sessi á sjöunda áratugnum með litríkum húsgögn- um úr plasti. Enn í dag er plast og plexigler aðalatriði í framleiðslu fyrirtækisins á húsgögnum. Fyrirtækið vinnur með fyrsta flokks hönnuðum og eru plexigler- stólar Philippe Starck eins og Louis Ghost og La Marie með frægustu húsgögnum fyrirtækis- ins. Stóll Starcks, Mademoiselle, sameinar framleiðslutækni og efni en stólfæturnir eru steyptir eftir nýjustu tækni úr gagnsæu plasti en setan er úr mjúkri plast- efnablöndu sem gerir stólinn fal- legan og þægilegan. - rat Litríkt plast og plexigler ráðandi Mademoiselle. Rósamunstraðir stólar eftir Philippe Starck úr plexigleri. Doll chair, eða Dúkkustóllinn, frá Moroso. Nýtt í leigu Bjallavað 1-3 Norðlingaholti Opnað verður fyrir umsóknir á nýjum leiguíbúðum 14. mars ´08. kl 9:00. Tekið verður á móti umsóknum til 19. mars ´08. Nánari upplýsingar á www.leigulidar.is eða í síma 517-3440 Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.