Fréttablaðið - 13.03.2008, Side 84
48 13. mars 2008 FIMMTUDAGUR
> HRIKALEGUR CRAIG
Leikarinn Daniel Craig leggur mikið upp
úr því að líta vel út, sér í lagi nú þegar
tökur á næstu Bond-mynd eru að hefj-
ast. Til að vöðvabúntið njóti sín sem
best í myndinni hefur hann fengið lík-
amsræktarstöð á tökustaðnum til einka-
nota. Þar verða lóð, hringir, kaðl-
ar, hlaupabretti og nuddbekkir
svo fátt eitt sé nefnt. Kven-
peningurinn getur því farið
að hlakka til að sjá „must-
erið“ á hvíta tjaldinu í lok
ársins.
Spánverjar taka þátt í fíflalátunum í
Eurovision í ár og auka á gremju
sanntrúaðra Eurovision-aðdáenda með
því að senda flippatriði. Á netsíðum
þar sem „alvöru“ Eurovision-aðdáend-
ur koma saman – fólk sem metur
keppnina út frá fagurfræði og listræn-
um hæfileikum flytjenda – er nú í
gangi herferð sem miðar að því að
baulað verði á spænska keppandann
þegar hann kemur fram. Að mati þessa
fólks er bara alls ekkert sniðugt þegar
einhver vogar sér að gera grín að
keppninni. Spánverjar eru sem
kunnugt er í hópi „stóru Eurovision-
þjóðanna“ og fara beint í úrslitaþáttinn.
Eftir viðamestu forkeppnina í mörg ár komust
Spánverjar að því að þeir ættu að flippa núna.
Grínfígúran Rodolfo Chikilicuatre
sigraði alvarlegri listamenn með
gríðarmiklum yfirburðum (fékk 57
prósent atkvæða) og lagið Baila el
Chiki-chiki dunar nú um allan Íberíu-
skaga. Rodolfo er leikinn af David
Fernandez og fæddist í grínþættinum
Buenafuente á einkareknu sjónvarps-
stöðinni LaSexta. Hann er viðkunnan-
legur auli, ekki ósvipaður Eiríki
Fjalari í tali, með Elvis-hár. „Skyld-
menni“ hans, sem líta svipað út, elta
hann um allar trissur og voru áberandi
í sjónvarpsþættinum spænska þegar
hann vann. Lagið er í svokölluðum
reggaeton-stíl með sniðugum texta sem hefur
verið endurgerður, að sögn til að gera hann
„pólitískt réttan“.
Spænskur Eiríkur Fjalar illa séður
SPÆNSKUR EIRÍKUR
FJALAR Verður Rodolfo
baulaður niður?
72 DAGAR TIL STEFNU
folk@frettabladid.is
„Já, mig langar til að
lýsa yfir stuðningi við
hann Bigga. Þetta eru
ómakleg og ósann-
gjörn ummæli Bubba,“
segir Jójó – tónlistar-
maðurinn og götulista-
maðurinn góðkunni.
Væringar Bubba
Morthens og Birgis
Arnar Steinarssonar
tónlistarmanns og rit-
stjóra tónlistartíma-
ritsins Mónitors hafa
farið hátt í vikunni.
Bubbi hefur kallað
Bigga falskan söngv-
ara og sá falski tónn
færist yfir í skrif hans.
Fjöldi tónlistarmanna
hefur lýst yfir furðu
sinni á ummælum Bubba, þeirra á
meðal Geir Ólafsson og nú Jójó.
„Biggi er heilbrigður ungur
maður og einn þeirra skemmtilegri
sem hafa komið fram
á sjónarsviðið. Það er
einmitt röddin hans
sem gerir tónlist
Maus. Sama hvað
hver segir.“
Jójó gengur skref-
inu lengra og nánast
líkir Bigga við Bob
Dylan. „Rödd Dylans
er svo ljót að fólk
elskar hana. Og það
sem Bubbi hefur að
segja um „Grafhýsi
frægðarinnar“… hlýt-
ur sá maður sem um
hana talar ekki að
hafa haft einhver
kynni af því grafhýsi
sjálfur,“ segir Jójó og
vísar til sjónvarps-
þáttanna Bandið hans Bubba en
þegar Bubbi slær fólk af í þættin-
um sendir hann það í grafhýsi
frægðarinnar. - jbg
Jójó til varnar Bigga
JÓJÓ Einn þeirra tónlistar-
manna sem rísa upp til varnar
Bigga í Maus eftir hráslagaleg
ummæli Bubba Morthens.
Stóra Bubba/Bigga-í-Maus málið
dregur dilk á eftir sér. Í Kastljósi á
þriðjudag sagði Bubbi að Biggi væri
svo laglaus að hann slægi meira að
segja Árna Johnsen út. Ummælin fóru
illa í Árna, sérstaklega þar sem Bubbi
hafði áður sagt opinberlega að hann
væri versti gítarleikari landsins.
„Það er orðið hvimleitt hvernig
Bubbi drullar ítrekað yfir fólk í hroka
sínum,“ segir Árni. „Eftir að ég sá
innslagið hafði ég strax samband við
Sigmar í Kastljósinu og skoraði
Bubba á hólm í gítarleik og söng.
Kastljósinu leist vel á þetta en Bubbi
þorði ekki. Til vara skoraði ég Bubba
á hólm í boxi. Hann er svo mikill
kjúklingur að hann þorði það ekki
heldur.“
Árni segir að þeir Bubbi noti í
grunninn jafn mörg gítargrip. „Við
notum þetta fimmtán grip, en hann er
nú samt flinkari en ég. Bubbi er
afburðatónlistarmaður og hefur
samið mörg yndisleg lög en hann
ræður bara ekkert við hrokann í sér.
Og hann ræður heldur ekki við
fjöldasöng. Þá hljómar hann bara eins
og stunginn grís eða api sem er festur
upp á þvottaklemmum í miðjum frum-
skógi.“
Og enn hjólar Árni Johnsen í
Kónginn. „Ef Bubbi finnur einn
falskan tón á nýjustu plötunni minni –
og það eru 32 lög á henni – þá skulda
ég honum þrjár milljónir. Sömu
upphæð og hann notar nú til að lokka
fólk í hljómsveitina sína því það gerir
enginn sjálfviljugur.“
- glh
Árni Johnsen skorar Bubba á hólm
HANN ER KJÚKLINGUR SEM ÞORIR EKKI Í MIG
Bubbi lagði ekki í Árna Johnsen í Kastljósinu.
Undirbúningur fyrir kvik-
mynd Dags Kára, The Good
Heart, er kominn á fullt en
áætlað er að tökur hefjist í
lok apríl. Gott að erfiðri bið
sé loksins að ljúka, segir
leikstjórinn.
„Við vorum í New York í tæpar
tvær vikur, eyddum smá tíma
saman og reyndum að kynnast
betur. Svo renndum við yfir
handritið og nokkur atriði úr
myndinni,“ segir Dagur Kári
sem var nýkominn heim frá
stóra eplinu þegar Fréttablaðið
náði tali af honum. Tökur á The
Good Heart hefjast 29. apríl í
borginni og er reiknað með að
þær standi yfir í tvær vikur þar.
Síðan heldur tökuliðið hingað til
Íslands og verður að í 28 daga.
„Þeir eru mjög spenntir fyrir að
koma hingað, Cox sagði sig alltaf
hafa langað að koma til Íslands
eftir að hafa millilent hér nokkr-
um sinnum og Dano var eigin-
lega sömu skoðunar,“ segir
Dagur.
Að sögn Dags urðu miklir
fagnaðarfundir þegar Cox og
Dano hittust en þeir léku saman
í einni af fyrstu kvikmynd
ung stirnisins, L.I.E, sem hlaut
frábærar viðtökur gagnrýnenda.
„En þeir hafa eiginlega ekkert
hist síðan þá,“ útskýrir Dagur.
The Good Heart hefur verið
lengi í farvatninu og Dagur við-
urkennir að það hafi verið mikill
léttir að fara til New York og
byrja alvöru vinnu í tengslum
við myndina. „Já, þetta var mjög
ánægjulegt enda hefur þetta
verið erfið bið,“ segir Dagur.
Handritið að kvikmyndinni vakti
mikla athygli á sínum tíma og
ákvað meðal annars Sundance-
kvikmyndahátíðin að veita því
styrk fyrir tæpum tveimur
árum. Fyrir ári urðu svo manna-
breytingar en eins og komið
hefur fram í Fréttablaðinu virð-
ast þær innáskiptingar hafa
heppnast ákaflega vel. Brian
Cox þykir feykilega virtur og
hefur leikið ófá aukahlutverk í
stórum kvikmyndum á borð við
Zodiac og Bourne-kvikmyndirn-
ar og Dano hefur slegið í gegn í
kvikmyndum á borð við There
Will Be Blood og Little Miss
Sunshine.
Að sögn Þóris Snæs Sigurjóns-
sonar, eins af framleiðendum mynd-
arinnar hjá kvikmyndafyrirtækinu
ZikZak, hefur ekki verið gengið frá
ráðningu í önnur hlutverk en það sé
allt í skoðun og ætti að skýrast á
allra næstu misserum. - fgg
Brian Cox og Dano æfðu
með Degi Kára í New York
Þeir Paul Dano, Brian Cox og Dagur
Kári æfðu saman í tvær vikur í New York
en tökur á The Good Heart hefjast þar
29.apríl.
VIÐ ÆFINGAR Í
NEW YORK
Aðal-vinningurToshibatölva!
Þú sendir SMS BT BTFá númerið 1900!Þú færð spurningu og þúsvarar með því að senda SMS-iðBT A, B eða C á númerið 1900.
10.
hve
r
vinn
ur!
GEGGJA
ÐIR
AUKA-
VINNIN
GAR!
*Aðalvinningar dregnir út úr öllum innsendum skeytum. Vinningar verða afhentir í BT Smáralind, Kópavogi.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið. Þú færð 5.mín til að svara spurningu. Leik lýkur 29. mars 2008
Aukavinningar: Ferða DVD spilari · PLAYSTATION 3 · iPod nano(4GB) · PANASONIC tökuvél · Sony myndavél · GSM símar·
Páskaegg frá Nóa Siríus nr 3, 5 og 7 · PSP tölvur · Bíómiðar á Awake · Gjafabréf á Tónlist.is · Kippur af gosi og enn meira af DVD,
geisladiskum, tölvuleikjum m.a. Ratatouille, Surfs up, Balls of fury, Fifa Street 3, Army of Two, Burnout Paradise