Fréttablaðið - 13.03.2008, Blaðsíða 94
58 13. mars 2008 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT
2. kennimark 6. hvort 8. prjónavarn-
ingur 9. kyrra 11. guð 12. framrás
14. fet 16. gat 17. angra 18. aur 20.
gangflötur 21. traðkaði.
LÓÐRÉTT
1. land í S-Ameríku 3. belti 4. stólp-
agripur 5. rjúka 7. skref 10. struns
13. púka 15. svik 16. margsinnis 19.
holskrúfa.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lógó, 6. ef, 8. les, 9. róa,
11. ra, 12. útrás, 14. skref, 16. op, 17.
ama, 18. for, 20. il, 21. tróð.
LÓÐRÉTT: 1. perú, 3. ól, 4. gersemi,
5. ósa, 7. fótspor, 10. ark, 13. ára, 15.
fals, 16. oft, 19. ró.
Undirbúningur er hafinn hjá sjónvarpsstöð breska
ríkissjónvarpsins, BBC Comedy, að nýrri gaman-
þáttaröð með Helgu Brögu Jónsdóttur í aðalhlut-
verki.
Þættirnir, sem verða með matreiðsluívafi, fjalla
um íslenska húsmóður sem býr í Norður-Englandi.
Býður hún myndatökufólki inn í eldhúsið til sín þar
sem hún eldar nútímalegan breskan mat. Breski grín-
istinn David Hoyle hefur lýst yfir miklum áhuga á að
leika enskan eiginmann Helgu í þáttunum.
„Þetta er allt á byrjunarstigi en við erum komin
með einhvers konar „go“ á samstarf við BBC. Við
erum byrjuð að undirbúa útrás mína þarna á erlendri
grundu og mér líst bara mjög vel á þetta,“ segir Helga
Braga. „Það er í farteskinu að taka upp einn „skets“
og síðan myndi verða heill þáttur tekinn upp.“
Þættirnir eru runnir undan rifjum hugmyndahöf-
undar BBC sem þróaði persónu þáttanna með Helgu í
huga. Er hann á leiðinni hingað til lands í næsta mán-
uði til að vinna að þættinum ásamt Inga Þór Jónssyni,
sem hefur aðstoðað Helgu við útrás hennar í Bret-
landi, og David Hoyle sem heillaðist af Helgu eftir að
hafa séð hana fara á kostum í Fóstbræðrum.
Helga er á góðri leið með að leggja Bretland að
fótum sér því hún verður að öllum líkindum í viðtali í
þættinum Womens Hours á útvarpsstöðinni Radio 4 á
BBC á næstunni í tengslum við einleikinn A Comp-
lete Guide To a Sexual Misery, eða 100% hitt. Ætlar
hún að flytja hann í Bretlandi í sumar eins og komið
hefur fram í Fréttablaðinu. - fb
Helga í breskum gamanþætti
HELGA BRAGA JÓNSDÓTTIR Helga Braga gæti farið með aðal-
hlutverkið í breskum gamanþáttum á næstunni.
„Þessar fréttir komu mér auðvit-
að í opna skjöldu enda Arnar
ekki þekktur fyrir neitt annað en
að vera ljúfur sem lamb,“ segir
Ívar Guðmundsson, viðskipta-
félagi og vinur einkaþjálfarans
Arnars Grant. Eins og fjölmiðlar
greindu frá var Arnar nýlegar
kærður til lögreglunnar fyrir
eignaspjöll eftir að hafa brotið
rúðu í bíl sem lagt var í stæðið
hans. Útvarpsmaðurinn á Bylgj-
unni segist hafa fengið að heyra
hlið Arnars á málinu og veit sem
er að Arnar er reiðubúinn til að
rétta fram sáttahönd.
Ívar og Arnar tóku höndum
saman fyrir nokkru og settu á
markað íþróttasúkkulaði enda
verið áberandi í líkamsræktar-
æði þjóðarinnar. Og hefur aug-
lýsingaherferð þeirra, þar sem
vinirnir bregða sér í líki Rockys
Balboa, vakið verðskuldaða
athygli. Ívar segir að súkkulaðið
góða hafi lítil sem engin áhrif á
skap manna og að reiðikast Arn-
ars megi síður en svo rekja til
þess. „Nei, nei, það er líklegra að
menn bráðni ef eitthvað er,“
segir Ívar sem telur sig vita að
Arnar sjái mikið eftir þessu.
„Auðvitað stendur maður við
bakið á félaga sínum, fólk er bara
mannlegt og Arnar líka, þrátt
fyrir að vera hrikalegur að burð-
um.“ -fgg
Ívar Guðmunds styður Arnar Grant
FÉLAGAR Í BLÍÐU OG STRÍÐU Ívar Guðmundsson, til vinstri, segist vita að Arnar væri
reiðubúinn til að rétta fram sáttahönd í málinu. Arnar braut rúðu á bíl sem lagt var í
stæði hans. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Ég hef eiginlega aldrei tíma til
að borða morgunmat því ég er
alltaf farinn í vinnuna hálf sjö
á morgnana. Ég fæ mér samt
alltaf heimalagðan espressó,
annars fer ég ekki úr húsi. Ann-
ars er það bara þetta klassíska,
Cheerios og múslí.“
Þorvaldur H. Gröndal, trommuleikari
Trabant.
„Styrmir hefur verið sveipaður
einhvers konar leyndardómshjúpi.
Löngu kominn tími til að um hann
sé fjallað eins og aðrar dauðlegar
verur,“ segir Karl Th. Birgisson
ritstjóri tímaritsins Herðubreið.
Í Herðubreið, sem kemur út í
morgun, má finna harðskeyttan
palladóm um Styrmi Gunnarsson
ritstjóra Morgunblaðsins. Þar er
fjallað um Styrmi sem nú firrtan
talsmann afla í Sjálfstæðisflokkn-
um miklu frekar en blaðamann. Á
árum áður mátti færa rök fyrir því
að völd Styrmis væru nokkur, ekki
síst með því að safna upplýsingum
en skammta þær lesendum Morg-
unblaðsins – og þegja yfir því sem
gæti reynst óþægilegt. En með
breyttum tímum, breyttu lands-
lagi í fjölmiðlum, er Styrmir nú
valdalaus samkvæmt palladómn-
um – kemst ekki lengur upp með
að þegja atburði í hel. „Hann rótar
í flaginu sínu, telur sig áhrifamik-
inn spunameistara og reynir í
örvæntingu að hafa áhrif á rás
atburða. Á meðan siglir þjóðfélag-
ið fram hjá, áhugalaust um það
sem engu máli skiptir...“
Karl fellst ekki á að farið sé
ómjúkum höndum um Styrmi.
„Palladómur er palladómur og
verður að taka honum sem slíkum.
Hitt hef ég ekki orðið var við að
Styrmir hlífi nokkrum manni með
skrifum sínum.“
Karl segir að allir palladómar
séu nafnlausir en að sjálfsögðu
birtir á ábyrgð ritstjóra. En höf-
undur dómsins hafði samband við
fjölda fólks, innan sem utan Morg-
unblaðsins, og safnaði upplýsing-
um héðan og þaðan. „Úr þeim
raðar hann saman þessari mynd.“
Samhliða eru birt brot úr hálf-
gerðri huldubók eftir Jónínu Bene-
diktsdóttur, Ninna Nótt – taka tvö,
eins og til að styðja við þær ein-
kunnir sem Styrmi eru gefnar. Um
er að ræða bók sem kom út árið
2005 en virðist ekki hafa farið í
dreifingu.
„Þegar palladómurinn var í
vinnslu rak þessa bók á fjörur höf-
undarins. Við urðum forviða því
við vissum ekki til þess að hún
hefði komið út. Ég fór með hana til
Braga Kristjónssonar fornbóksala
og í ljós kom að þetta er ein örfárra
íslenskra bóka sem prentaðar hafa
verið og hann ekki séð – kannski sú
eina. Bókin barst okkur með því
fororði að ein persónan ætti sér
augljóslega fyrirmynd í Styrmi.“
Í Herðubreið er Sólon háskóla-
rektor sagður vera Styrmir. Meðal
setninga úr bókinni sem birtar
eru: „Sólon sótti vald sitt í sálarlíf
annarra.“ „Hann var þungt hugsi
og óttaðist afdrif Flokksins.“
„Hann var á skrifstofu æðsta emb-
ættis Íslands, rektorsskrifstof-
unni. Héðan er Íslandi stjórnað
hugsaði hann.“ jakob@frettabladid.is
KARL TH. BIRGISSON: PALLADÓMUR UM STYRMI Í HERÐUBREIÐ
Styrmir fyrirmynd persónu
í huldubók Jónínu Ben
Fáum kom á óvart þegar Sigríður
Anna Þórðardóttir var skipuð
sendiherra á dögunum. Nema ef til
vill henni sjálfri en fyrir um
tveimur árum tók Helgi Selj-
an, þá á Stöð 2, við hana
viðtal í tilefni þess að hún
lét eftir umhverfisráðu-
neytið við hrókeringar
í ríkisstjórn. Sigríður
Anna tók þessu létt og
Helgi spurði þá hvort
hún fengi einhverja sporslu á móti
því að hverfa svo ljúf úr ráðuneytinu.
Fyrtist þá Sigríður Anna mjög við, taldi
spurninguna til marks um dónaskap
og rauk út úr stúdíóinu nánast áður
en viðtalinu var lokið starfsfólki þar til
undrunar.
Og örlítið meira af Stöð 2 því
netheimar hafa gjörsamlega logað í
samsæriskenningum um að nafna-
breytingar séu í nánd á sjónvarps-
stöðvum 365. En vefsíðan
Orðið á götunni varpaði fyrst
fram þessum hugleiðingum
um hugsanlegar hræringar.
Ekki þykir ólíklegt að
Stöðvar 2-nafninu
verði skeytt fyrir
framan eins og gerðist
með Sirkus forðum
daga. Og að Sýn verði þá til að mynda
Stöð 2 Sport. Forkólfar sjónvarpssviðs
fjölmiðlafyrirtækisins með Pálma
Guðmundsson fremstan í flokki hafa
hins vegar þagað þunnu hljóði þegar
þetta berst í tal.
Sendinefnd á vegum skákfélagsins
Hróksins fer í sína 12. ferð til Græn-
lands á næstunni. Þeir munu meðal
annars heilsa upp á heiðursfélaga
Hróksins, Paul Napatoq sem er blind-
ur fjórtán ára piltur sem lærði að tefla
í fyrra. Drengurinn fer allra sinna ferða
á hundasleða á veturna en á hjóli á
sumrin og lætur sjónleysi sitt ekki
aftra sér að taka fullan þátt í lífinu
í Ittoqqortoormiit (Scoresbysund).
Fyrir leiðangursmönnum fer Þórður
Sveinsson, lögmaður hjá
Persónuvernd, en aðrir leið-
angurs- menn eru Róbert
Lagerman, Andri
Thorstensen og
Arnar Valgeirs-
son. - fgg/jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
HULDUBÓK JÓNÍNU
Karl Th. Birgisson, ritstjóri
Herðubreiðar,segir löngu
kominn tíma á að fjallað
sé um Styrmi Gunnars-
son eins og aðrar dauð-
legar verur. Í Herðubreið
er því haldið fram að ein
persóna í huldubók Jón-
ínu Benediktsdóttur eigi
sér augljóslega fyrirmynd
í Styrmi. Herðubreið
kemur út á morgun og
prýðir ritstjóri Morgun-
blaðsins forsíðu þess.
Nr. 11 - 2008
Verð 659 kr
. 13. mars. –
19. mars.
9
7
7
1
0
2
5
9
5
6
0
0
9
Nýr m
aður,
barn o
g hús
!
Gerir lí
fið
skemm
tilegra
!
Edduverðla
unahafinn N
anna Kristín
sneri baki v
ið bóhemlíf
inu:
FÖLDU SIG BA
K VIÐ
FIÐRILDAGRÍM
UR!
Flottustu k
onur lands
ins:
BARN
Á LEIÐINNI!
UNG, FRÆG
OG RÍK!
Krummi og Harpa
Einars:
FLUTT Í SUNDUR!
Gillzenegger
og Partý Hanz:
ÉG ÆTLA EKKI
Í HJÓLASTÓL!
Hamingjan
eltir Hann
a:
Sjáið
myndirn
ar!
Ástir og
örlög!