Fréttablaðið - 16.03.2008, Síða 88

Fréttablaðið - 16.03.2008, Síða 88
28 16. mars 2008 SUNNUDAGUR N1-deild karla: Haukar-HK 30-25 (17-13) Mörk Hauka (skot): Andri Stefan 6 (11), Elías Már Halldórsson 5 (6), Sigurbergur Sveinsson 5/4 (8/4), Gunnar Berg Viktorsson 4 (6), Freyr Brynjarsson 3 (4), Arnar Pétursson 3 (3), Kári Kristján Kristjánsson 2 (3), Jón Karl Björnsson 2/1 (3/1), Gísli Jón Þórisson (1). Varin skot: Gísli Guðmundsson 5/1 (19/3) 26 %, Magnús Sigmundsson 2 (13) 15 %. Hraðaupphlaup: 8 (Elías 4, Andri, Jón Karl, Freyr, Arnar). Fiskuð víti: 5 (Kári 3, Andri, Sigurbergur). Utan vallar: 10 mínútur. Mörk HK (skot): Ólafur Bjarki Ragnarsson 8 (17), Tomas Eitutis 5 (9), Augustas Strazdas 4 (7), Sergey Petraytis 3 (3), Árni Björn Þórarinsson 2 (3), Arnar Þór Sæþórsson 2/1 (4/1), Ragnar Hjaltested 1 (4/1), Gunnar Steinn Jónsson (1/1), Sigurgeir Árni Ægisson (1). Varin skot: Egidijus Petkevicius 13 (42/4) 31 %. Hraðaupphlaup: 2 (Strazdas, Ragnar). Fiskuð víti: 3 (Sergey 2, Arnar). Utan vallar: 10 mínútur. ÍBV-Akureyri 28-43 Iceland Express-deild kvk: Keflavík-Haukar 94-89 (40-34, 81-81) Stig Keflavíkur: TaKesha Watson 30 (7 frák., 7 stoðs.), Susanne Biemer 22, Birna Valgarðsdóttir 18, Pálína Gunnlaugsdóttir 10 (9 frák., 7 stoðs., 4 stolnir), Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir 8, Rannveig Randversdóttir 2, Halldóra Andrésdóttir 2, Mar grét Kara Sturludóttir 2 (8 frák., 6 varin, 4 stolnir. Stig Hauka: Victoria Crawford 32 (7 stoðs.), Unnur Tara Jónsd. 14 (10 frák. 4 stoðs.), Telma Björk Fjalarsd.14 (22 frák.), Kristrún Sigurjónsd. 14, Hanna Hálfdanard. 10, Guðbjörg Sverrisd. 3 (6 frák., 4 stolnir), Ragna Margrét Brynjarsdóttir 2 ÚRSLIT HANDBOLTI Haukar eru komnir með sex stiga forystu í N1-deild karla eftir gríðarlega mikilvægan sigur á HK, 30-25, að Ásvöllum í gær. Haukar eru í mjög vænlegri stöðu og ekkert nema stórslys virðist geta aftrað því að Haukar verði meistarar. „Haukarnir sýndu það í dag að þeir eru einfaldlega með besta liðið í deildinni. Ég get ekki neitað því að ég öfunda þá því þeir eru ekki bara með besta liðið heldur stórkostlega umgjörð í kringum félagið. Haukarnir voru betri á öllum sviðum,“ sagði Gunnar Magnússon, aðstoðarþjálfari HK, í leikslok en með tapinu fóru Haukar ekki bara í yfirburðastöðu heldur er HK alveg úr myndinni. „Í mínum huga er þetta búið. Haukarnir eru orðnir Íslands- meistarar og það mjög verðskuld- að,“ sagði Gunnar. Það er rétt hjá Gunnari að Haukarnir voru mun sterkari í leiknum í gær. Þeir tóku frum- kvæðið strax í upphafi og héldu því út allan leikinn. Það var alveg magnað að fylgjast með varnar- leik Hauka í gær sem er gríðar- lega öflugur og til marks um það varði hávörnin fleiri bolta en markverðir þeirra í gær. Þrátt fyrir enga markvörslu voru Haukar alltaf skrefi á undan og leiddu með fjórum mörkum í leik- hléi, 17-13. Haukarnir komust fljótlega í 20- 14 en þá kom góð rispa hjá HK þar sem vörnin small loksins almenni- lega hjá þeim. Kópavogsbúar minnkuðu muninn í 22-21 og þá tóku Haukar leikhlé. Meiri ró kom yfir liðið í kjölfarið og það hélt frumkvæðinu. HK-ingar voru klaufar því þeir fengu nokkur ágæt tækifæri til að ná yfirhönd- inni í leiknum en þá köstuðu þeir boltanum ítrekað klaufalega frá sér. Sanngjarn sigur Hauka stað- reynd og óhætt að tala um sigur varnar og liðsheildarinnar. Haukarnir spila geysilega vel sem lið og allir leikmenn leggja sitt lóð á vogarskálarnir. Meiðsli virðast ekki hrjá liðið því næsti maður er alltaf tilbúinn í slaginn. Það er sannkallaður meistarabragur á þessu Haukaliði. „Þetta var mjög ljúfur sigur. Þetta var erfitt og sem betur fer datt þetta okkar megin,“ sagði brosmildur þjálfari Hauka, Aron Kristjánsson, en hann vill ekki meina að Haukarnir séu komnir með aðra hönd á bikarinn. „Staðan er vissulega vænleg en það eru sjö leikir eftir.“ - hbg Haukar unnu mikilvægan sigur á HK, 30-25, og aðstoðarþjálfari HK segir að Íslandsmótið sé búið: Haukar eru verðskuldað Íslandsmeistarar LOK, LOK OG LÆS Haukavörnin var hreint út sagt frábær í gær og lagði grunninn að góðum sigri á HK. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR KÖRFUBOLTI Deildarmeistarar Keflavíkur eru komnar í 1-0 í und- anúrslitaeinvígi sínu gegn Hauk- um eftir 94-89 sigur í framlengd- um leik í Toyota-höllinni í Keflavík í gær. Staðan var 81-81 eftir venju- legan leiktíma. Keflavík var átta stigum undir þegar innan við tvær mínútur voru eftir en náðu að tryggja sér framlengingu þar sem þær lönd- uðu sigrinum. Kesha Watson fór fyrir Keflavík í fjórða leikhlutan- um þar sem hún skoraði 19 af 24 stigum liðsins en í framlenging- unni voru það hins vegar 7 stig og 4 fráköst Birnu Valgarðsdóttur sem gerðu gæfumuninn. Keflavíkurliðið var með frum- kvæðið framan af leik, var sex stigum yfir í hálfleik, 40-34, og tveimur stigum yfir fyrir loka leik- hlutann, 57-55. Haukarnir gáfust hins vegar ekki upp, héngu í Kefla- vík fram í fjórða leikhlutann þar sem liðið skoraði síðan tíu stig í röð og var komið í fín mál. Útlitið var ekki bjart þegar Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, tók síðasta leikhlé sitt þegar 1 mínúta og 57 sekúndur voru eftir af leiknum. Haukar voru sjö stigum yfir, 71- 78, og áttu tvö vítaskot. Annað víti fór rétta leið og Keflavík var átta stigum undir. Jón Halldór náði hins vegar að vekja sínar stelpur sem unnu næstu tvær mínútur 10- 2 og komu leiknum í framleng- ingu. Susanne Biemer og Pálína Gunn- laugsdóttir voru bestu menn Keflavíkur áður en þær Kesha og Birna sáu um að klára leikinn. Keflavík varð fyrir enn einu áfall- inu í vetur þegar Rannveig Randversdóttir meiddist í öðrum leikhluta. Victoria Crawford var sterk hjá Haukum með 32 stig og 7 stoð- sendingar en Telma Björk Fjalars- dóttir átti einnig mjög góðan leik en hún var með 14 stig og 22 frá köst. Þá skiluðu þær Kristrún Sigurjónsdóttir (14 stig, 5 stoð- sendingar) og Unnur Tara Jóns- dóttir (14 stig, 10 fráköst, 4 stoð- sendingar) sínu. ooj@frettabladid.is Undanúrslit Iceland Express-deildar kvenna: Lokaleikhlé Jóns kveikti í Keflavík MIKIL BARÁTTA Það var ekkert gefins í Keflavík í gær og hér hefur Haukastúlkan Kristrún Sigurjónsdóttir náð í boltann. VÍKURFRÉTTIR/JÓN BJÖRN
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.