Fréttablaðið - 20.04.2008, Blaðsíða 26
Sunnulækjarskóli
Skóli með áherslu á þróunarstarf
og nýbreytni í starfsháttum
auglýsir eftir starfsfólki
Sveitarfélagið Árborg auglýsir eftir kennurum
til starfa veturinn 2008-2009
Sunnulækjarskóli
Kennara vantar til starfa við Sunnulækjarskóla á Selfossi
næsta haust. Skólinn var stofnaður haustið 2004 og mun
vaxa um einn árgang á ári næstu ár. Skólaárið 2008-2009
verða um 400 nemendur í skólanum í 1. - 8. bekk. Sérdeild
Suðurlands er deild í Sunnulækjarskóla.
Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta
kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu kennara,
ábyrgð nemenda og góða samvinnu allra sem að skóla-
starfi nu koma.
Umsjónarkennara vantar á yngsta, mið- og elsta stig.
Einnig vantar sérkennara og kennara til að kenna tónmennt,
heimilisfræði, íþróttir, sund, dans og smíðar. Þá vantar
dönsku- og enskukennara. Ýmist getur verið um heilar
stöður eða hlutastörf að ræða.
Umsækjandi þarf að hafa kennarapróf, góða skipulags-
hæfi leika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum.
Reynsla af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi eru
mikilvægir eiginleikar.
Nánari upplýsingar má fá hjá skólastjóra í síma 480 5400
eða birgir@sunnulaek.is og á heimasíðu skólans
www.sunnulaekjarskoli.is
Umsóknarfrestur er til 28. apríl næstkomandi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfé-
laga og KÍ.
Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu
og umsagnaraðilum berist Birgi Edwald, skólastjóra,
birgir@sunnulaek.is . Einnig er hægt að senda umsóknir á
heimilisfang skólans.