Fréttablaðið - 20.04.2008, Blaðsíða 80
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
Gautab
með ánægju
í sumar
14 áfangastaðir
Bókaðu
núna!
50%
Börn:
Börn, 11 ára og yngri í fylgd með
fullorðnum, fá helmingsafslátt af
verði fyrir skatta og aðrar greiðslur.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
5
7
2
9 Frankfurt Hahn, Berlín, Friedrichshafen, London, París,
Billund, Kaupmannahöfn, Gautaborg, Stokkhólmur,
Eindhoven, Basel, Barcelona, Alicante og Varsjá
Bókaðu núna á www.icelandexpress.is
Frankfurt Hahn
Berlín
Billund
Basel
Friedrichshafen
Gautaborg
Barcelona
Alicante
Eindhoven
Varsjá
Stokkhólmur
París
London
Køben
Ég hlustaði á merkilegt spjall hjá dætrum mínum á leið
heim úr leikskólanum um daginn
þar sem þær sátu saman í aftur-
sæti bílsins. Systurnar eru
þriggja og sex ára. Leiðin heim
úr leikskóla er gjarnan nýtt til að
fara yfir helstu tíðindi og segja
frá því sem þótti skemmtilegast í
leikskólanum, hvað Ásdís kokkur
eldaði fyrir krakkana og hverjir
voru duglegastir að borða.
NÝLEGA sagði sú yngri frá því
að sungið hefði verið til heiðurs
Jakobínu leikskólakennara sem
flutti norður í land. Hópur tveggja
og þriggja ára barna ákvað þá að
syngja svo hátt að Jakobína myndi
heyra sönginn alla leið norður.
Það fannst mér fallegt eins og svo
margt af því sem við foreldrarnir
fáum að heyra af starfi leik-
skólans.
Í þetta skipti var umræðan hins
vegar pólitísk, það voru eldfim
málefni bensínverðs. Sú eldri
sagði litlu systur sinni nú frá því
að vinkona hennar í leikskólanum
hefði daginn áður farið með
mömmu og systrum til að mót-
mæla háu bensínverði. Mæðgurn-
ar sátu í bíl og flautuðu svo lengi
að vinkonan hafði um tíma haldið
að hún yrði örugglega heyrnar-
laus. Svo varð þó blessunarlega
ekki.
STÓRA systirin bað mig vinsam-
legast um að minna hana á að
ræða málið við pabba þegar hann
kæmi heim í kvöld, hann yrði að
vita af þessu vandamáli með
bensínið. Faðirinn er þingmaður
og dóttirin hafði áttað sig á að
þetta þyrfti hann að vita. Hún fór
svo rækilega yfir stöðu mála og
sagði frá því að verðið hefði
hækkað mikið undanfarið og nú
yrði að lækka það. Það ættu þing-
mennirnir að gera. Hún útskýrði
svo snaggaralega fyrir litlu syst-
ur hvað bensínið gerir fyrir bíl-
inn, sem er eins og vatn og brauð
fyrir manninn.
Í anda upplýstrar umræðu voru
systurnar fljótlega farnar af
þeirri braut að skilgreina bara
vandann, þær ræddu lausnir.
Eftir að hafa hlýtt á erindið
spurði svo sú yngri þá eldri og
vísari að því hvernig þingmenn-
irnir lækkuðu eiginlega verðið og
var djúpt hugsi. „Eru þingmenn-
irnir með fjarstýringu?” spurði
hún en stóra systir svaraði að
bragði: „Nei, kjáninn þinn. Þeir
bara segja það.“ Og með því var
næsta mál sett á dagskrá.
Bensín og brauð
BAKÞANKAR
Þorbjargar
Sigríðar
Gunnlaugsdóttur
Í dag er sunnudagurinn 20. apríl,
110. dagur ársins.
5.37 13.27 21.18
5.13 13.11 21.12