Fréttablaðið - 20.04.2008, Blaðsíða 36
ATVINNA
20. apríl 2008 SUNNUDAGUR2012
Upplýsingar um starfið og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS,
Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00.
Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is.
ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum
verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa
um 650 manns, víðsvegar um landið
sem og erlendis.
ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem
var stofnað árið 1970 og hefur annast
ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór-
iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð
auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar
fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög,
fyrirtæki og einstaklinga.
TÆKJAVIÐGERÐAMENN
ÍSTAK óskar eftir að ráða rafvirkja, rafvélavirkja eða vélstjóra á rafmagns-
verkstæði fyrirtækisins. Starfið er fólgið í viðgerðum og viðhaldi á tækjum
og búnaði ÍSTAKS. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf og er
mikil vinna framundan. Góð vinnuaðstaða í boði í nýju húsnæði ÍSTAKS
á Tungumelum í Mosfellsbæ.
Möguleiki er á húsnæði fyrir utanbæjarfólk.
RAFVIRKJAR
Einnig óskar ÍSTAK eftir að ráða rafvirkja til fjölbreyttra verkefna. Um er
að ræða almenna rafmagnsvinnu við framkvæmdir á vegum ÍSTAKS.
Næg verkefni framundan og möguleiki á mikilli vinnu.
Framkvæmdagleði í fyrirrúmi
Umsóknarfrestur er til og með 30. apríl 2008.
Sérnámsstöður í heimilislækningum
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir átta námsstöður til
sérnáms í heimilislækningum lausar til umsóknar.
Stöðurnar eru lausar frá 1. ágúst 2008 og eru til
þriggja ára.
Gert er ráð fyrir að sérnámslæknir starfi á heilsu-
gæslustöðvum bæði í þéttbýli og dreifbýli og á
sjúkrahúsum og taki einnig þátt í fræðilegu námi.
Námið byggir á marklýsingu fyrir sérnám í
heimilislækningum (FÍH 2008) og er skipulagt
nánar í samráði við kennslustjóra sérnáms.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Læknafélags
Íslands og fjármálaráðherra.
Umsóknareyðublöð má fi nna á vef heilbrigðis-
ráðuneytisins www.heilbrigdisraduneyti.is
Umsóknarfrestur er til 20. maí nk. Umsóknir með
upplýsingum um fyrra nám og störf sendist Sveini
Magnússyni, skrifstofustjóra í heilbrigðisráðuneytinu,
Vegmúla 3, 150 Reykjavík. Nánari upplýsingar um
stöðurnar veitir Alma Eir Svavarsdóttir, aðjúnkt, í
síma 585-1800.
Heilbrigðisráðuneytið
Reykjavík, 20. apríl 2008
Metnaðarfullt og framsækið vefteymi leitar að snillingi
með framtíðarsamband í huga
Vísir leitar að vefforritara í fjölbreytt og skemmtileg verkefni.
Viðkomandi þarf að hafa þekkingu og reynslu í:
- forritun í .NET umhverfinu
- Web 2.0, css, html, xhtml, xml, javascript, ajax og fleiri skemmtilegum .net
skammstöfunum
- gagnagrunnstengingum (SQL), álitlegur kostur en ekki skilyrði
Menntun í ofangreindu er æskileg en ekki skilyrði ef reynsla er fyrir hendi.
Viðkomandi þarf einnig að:
- hafa til að bera brennandi áhuga á vefnum, framtíðinni og fjölmiðlum
- vera ábyrgðarfullur, vandvirkur, úrræðagóður og skemmtilegur
Ef þú ert vefsnillingur og hefur áhuga á að starfa með okkur, sendu inn umsókn á
vef 365 miðla - http://www.365midlar.is/Um-365/Storf-hja-365.
Sumarafl eysingar-Sölumaður
Sláturfélag Suðurlands óskar eftir að ráða sölumann
í afl eysingar í sumar.Viðkomandi þarf að hafa réttndi til
aksturs bifreiða allt að fi mm tonnum að þyngd.
Við leitum að stundvísum og duglegum
einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt.
Umsóknir berist SS, Fosshálsi 1,110 Reykavík.
Einnig er hægt að sækja um starfi ð á
heimasíðu fyrirtækisins www.ss.is
Nánari upplýsingar gefur Bjarni Stefánsson,
starfsmannastjóri í síma 575-6000
Sláturfélag Suðurlands er leiðandi matvælafyrirtæki með starfsstöðvar í Reykjavík,
á Selfossi og á Hvolsvelli. Hjá félaginu starfa um 330 starfsmenn.
Upplýsingar um SS er að fi nna á heimasíðu fyrirtækisins.