Fréttablaðið - 24.04.2008, Síða 8
8 24. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
„Þetta eru fáheyrð
viðbrögð lögreglu,“
segir Guðjón A.
Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda
flokksins. „Hingað til
hefur ekki þurft að
koma til valdbeiting-
ar og ef rétt er hjá vörubílstjórum
að þeir hafi verið handteknir þegar
þeir voru að fara upp í bílana til að
aka þeim burtu þá hefur þetta farið
úr böndunum.“
Guðjón segir mótmæli atvinnu-
bílstjóra hafa farið friðsamlega fram
til þessa. „Ég tel að ríkið eigi að
lækka álögur á bensíni og olíu til að
hafa áhrif á verðlag og verðbólgu.“
Fara þarf fjörutíu ár aftur í tím-
ann til að finna átök lögreglu og
almennra borgara sem telja má
sambærileg við atburði gærdags-
ins. Á Þorláksmessu árið 1968
kom til átaka á milli hóps mót-
mælenda og lögreglu í Austur-
stræti. Þá var Víetnamstríðið í
algleymingi og mótmæli 68-kyn-
slóðarinnar alþjóðlegt fyrirbæri.
Meira kom þó til hér heima á
Íslandi því einnig var verið að
brýna stjórnvöld til að bregðast
við miklu atvinnuleysi á þeim
tíma.
Birna Þórðardóttir blaðamaður
varð andlit þessara átaka því í
fjölmiðlum birtust myndir af
henni alblóðugri eftir kylfur lög-
reglumanna. „Þarna fléttaðist
saman andstaða gegn ríkisstjórn-
inni vegna atvinnuleysis og
hvernig komið var fram við
verkafólk, og það sem okkur
fannst vera undirlægjuháttur
stjórnvalda gagnvart Banda-
ríkjastjórn.“ Birna segir að nokk-
ur hópur hafi verið handtekinn
en sjálf hafi hún endað á slysa-
deild. Stefán Pálsson sagnfræð-
ingur segir að árið 1968 hafi verið
nokkuð sérstakt því það ár hafi
nokkuð reglulega slegið í brýnu á
milli mótmælenda og lögreglu.
„Fyrir 1968 hafði ekkert gerst í
nokkuð langan tíma og næstu ár
þar á eftir gerist lítið. Ef menn
fara á krepputímann þá er það
auðvitað Gúttó-slagurinn 1932 og
allir þekkja svo mótmælin á Aust-
urvelli árið 1949.“
svavar@frettabladid.is
1. Hvað heitir forseti Palestínu
sem heimsótti Ísland á þriðju-
daginn?
2. Hvar er stærsta lunda-
varpsstöð í heimi?
3. Hvað heitir leikmaður Liver-
pool sem á þriðjudag skoraði
sjálfsmark í leik gegn Chelsea?
SJÁ SVÖR Á SÍÐU 62
Sparakstur með Volkswagen
5
Das Auto.
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Volkswagen – kolefnisjafnaður útblástur
Það er ódýrara
að bakka í stæði!
Þegar þú leggur bílnum skaltu ávallt reyna að snúa honum
þannig að þú getir ekið bílnum beint úr stæðinu þegar þú þarft
að nota hann næst. Þannig minnkar þú bæði eldsneytiseyðslu
og slit á búnaði bílsins.
Skráðu þig á námskeið í sparakstri
á volkswagen.is. Aðgangur ókeypis,
takmarkaður fjöldi sæta í boði.
Lau. 19/4, kl.
10:00 Fullt
Sun. 27/4, kl.
10:00 Fullt
Lau. 3/5, kl. 1
0:00 Örfá sæ
ti
Mið. 7/5, kl. 1
9:30 Örfá sæ
ti
Námskeiðin e
ru haldin
í HEKLU við L
augaveg.
ÁTÖK Í NORÐLINGAHOLTI
Guðjón A. Kristjánsson:
Fáheyrð við-
brögð lögreglu
Sjaldan slegist
við lögreglu hér
Leita þarf aftur til ársins 1968 til að finna síðast
dæmi um harkaleg átök almennings og lögreglu. Þá
kom til átaka í Austurstræti á Þorláksmessu.
1968 Átök brutust út á Suðurgötu vegna ráðherrafundar Atlantshafsbandalagsins.
Þetta ár var sérstakt á Íslandi vegna tíðra átaka mótmælenda og lögreglu.
MYND/LJÓSMYNDASAFN REYKJAVÍKUR
„Mér er mjög
brugðið og spyr
hvort óhjákvæmilegt
hafi verið að sýna
svona hörku,“ segir
Steingrímur J. Sigfús-
son, formaður VG.
Ósamræmi í fram-
göngu lögreglunnar milli daga sé
umhugsunarefni og gagnrýni fyrir
að sýna linkind framan af gagnvart
bílstjórunum megi ekki rétta af
með svona löguðu.
„Það er ónotalegt að sjá íslenska
lögreglu birtast eins og erlenda
óeirðalögreglu.“ segir Steingrímur.
Hann telur óhjákvæmilegt að farið
verði í saumana á málinu og segir
allsherjarnefnd Aþingis góðan
vettvang til þess.
„Þetta er nýtt hér,
hefur ekki gerst
áratugum saman og
kemur mér algjörlega
í opna skjöldu,“ segir
Guðni Ágústsson,
formaður Framsókn-
arflokksins. Atburðir
gærdagsins valda honum áhyggjum
enda telur hann þá til marks um að
aukin harka sé hlaupin í samfélag-
ið. Mikilvægt sé að mótmæli fari
friðsamlega fram og að friðhelgi
lögreglu sé virt. Nú þurfi allir að
slíðra sín sverð og fara yfir málið.
Guðni telur að þingið, til dæmis
allsherjarnefnd, eigi að fara yfir
atburðarás gærdagsins, ræða hvað
gerðist og hvers vegna.
Guðni Ágústsson:
Kom mér í
opna skjöldu
Steingrímur J. Sigfússon:
Ónotaleg sjón
Kalla þurfti út nítján manna auka-
lið hjá Slökkviliði höfuðborgar-
svæðisins vegna mótmælanna í
gær. Lögregla óskaði eftir sjúkra-
bílum á svæðið klukkan 10.50,
„vegna yfirvofandi hættu“. Innan
skamms mættu fjórir sjúkrabílar
og einn dælubíll á svæðið.
Sigurbjörn Guðmundsson,
aðstoðarvarðstjóri Slökkviliðs höf-
uðborgarsvæðisins, segir að fresta
hafi þurft fyrirfram pöntuðum
flutningi vegna mótmælanna. „Í
því felst flutningur sjúklinga á
milli deilda, í röntgen og fleira því
um líkt. Það frestaðist allt, en með
aukamannskap tókst okkur að
koma öllu í samt horf rétt fyrir
klukkan 16.“
Alls leituðu þrettán manns
aðhlynningar í bílunum og einn
var fluttur á slysadeild. Sigurbjörn
segir meðferðina fyrst og fremst
hafa falist í augnskolun. „Við bætt-
um við aukabirgðum af saltvatni í
bílana þegar við heyrðum hvernig
málið var vaxið. Þar að auki gerð-
um við ráðstafanir með hreyfan-
legar skolunarstöðvar. Önnur var
skammt frá vettvangi í gámi og
hina fluttum við upp á slysadeild
Landspítalans. Ekki kom til þess
að stöðvarnar yrðu settar upp,“
segir Sigurbjörn.
Samkvæmt lækni á slysadeild
voru þrír meðhöndlaðir vegna pip-
arúða. Þá leitaði einn lögreglu-
þjónn þangað eftir að hafa fengið
grjót í höfuðið. - kóp
Sjúkraflutningar töfðust
Kalla þurfti út aukaliðsafla hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins vegna
átaka gærdagsins milli mótmælenda og lögreglu. Sautján slösuðust.
AUGUN SKOLUÐ Sjúkraflutninga-
menn aðstoðuðu suma við að skola
augun, en aðrir björguðu sér sjálfir.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/PJETU
R
VEISTU SVARIÐ?